Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2021, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2021, Blaðsíða 27
KYNNING 27DV 26. FEBRÚAR 2021 S unna Ben hefur verið áberandi á listasviðinu enda hæfileikarík kona þar á ferð. Að sögn hefur hún einnig mikinn áhuga á heilsu, mataræði og hvernig hægt er að nota mat og náttúrulegar afurðir til þess að vinna gegn heilsufarsvandamálum. „Ég er menntuð sem einkaþjálfari og hef verið að sökkva mér í þessi málefni, bæði af einlægum nördaskap en líka tengt eigin ástandi. Sjálf er ég með IBS eða iðrabólgu, sem hefur valdið vægast sagt dramatískum meltingartruflunum hjá mér,“ segir Sunna. Iðrabólga á sér stað við truflun á starfsemi ristils og smáþarma. Í stað þess að dragast reglubundið saman og flytja þannig fæðuna taktfast áfram, verða samdrættir á mismunandi stöðum ristils og smáþarma sam­ tímis. Þessar truflanir koma oftast í kjölfar máltíða. „Við þessu ástandi mínu er svo sem ekkert að gera nema reyna að stjórna því með mataræði. Þá er gerjaður matur eins og kom­ bucha algjör draumur fyrir mína annars dramatísku meltingu,“ segir Sunna. Forfallið heilsunörd Sunna segist hafa kynnst kombucha fyrst í gegnum vinkonu, en hún hafði séð drykknum bregða fyrir hér og þar. Þá hafði hún lesið sér til um góð­ gerla í ýmsum heilsugreinum og álíka lesefni. „Ég vinn mikið við að skrifa um heilsu og bætiefni og það hentar mér vel að þekkja ágætlega það sem talið er heilsueflandi. En aðallega grúska ég í þessum málefnum af einlægum áhuga, því ég er forfallið heilsunörd. Svo sá ég vinkonu mína, sem vann á veitingastaðnum Gló, drekka eitthvað sjúklega girnilegt lavender kombucha sem þar fékkst og ég fékk að smakka. Eftir það varð ekki aftur snúið. Þetta var vissulega ást við fyrsta smakk en ég var samt leitandi í svolitla stund að smakka mismunandi bragð frá mis­ munandi framleiðendum, og ég var lengi að finna bragð sem mér fannst virkilega gott. Ég keypti Kombucha Iceland fyrst vegna þess að drykkur­ inn er framleiddur á Íslandi og vegna þess að mér fannst flaskan svo eigu­ leg. Þegar ég prufaði svo krækiberja kombucha frá þeim vissi ég að ég var búin að finna mína hillu. Ég veit ekki hvað ég hef drukkið margar flöskur af því áður en ég færði mig yfir í krækingifer og svo engiferbragðið frá Kombucha Iceland. Reyndar er ég búin að drekka svo mikið af komb­ ucha frá Kombucha Iceland að ég held að næstum allar bragðtegundirnar hafi einhvern tímann verið uppáhalds bragðið. Mér fannst líka jólabragðið Spicy Chai alveg ótrúlega gott og ég er búin með mjög margar flöskur af því, en ég held ég haldi mig við kræk ingifer og engifer fram að næstu jólum,“ segir Sunna. Passar við lífsstílinn Sunna segist drekka mikið kombucha Draumur fyrir dramatíska meltingu Sunna Ben hefur á síðustu árum unnið sér gott orðspor sem ljósmyndari, samfélags­ miðlaráðgjafi, plötusnælda og myndlistarkona. Þá er hún forfallinn aðdáandi komb­ ucha frá Kombucha Iceland, en drykkurinn hjálpar henni að halda iðrabólgu í skefjum. Að sögn Sunnu Ben hafa líklega allar bragð- tegundir Kombucha Iceland verið í uppáhaldi hjá henni á einhverjum tímapunkti. Upp- haflega var hún kolfallin fyrir krækiberja- bragðinu. Þá eru engifer og krækingifer núna í uppáhaldi og hafa verið lengi. Einnig var hún afar hrifin af Spicy Chai sem kom út sem jóladrykkurinn 2020. Sunna Ben segist drekka mikið kom- bucha frá Kom- bucha Iceland að staðaldri enda er drykkurinn bæði svalandi og góm- sætur. Svo hjálpa góðgerlarnir henni að halda melt- ingartruflunum í skefjum. MYND/ERNIR Eftirfarandi aðilar í Reykjavík eru meðlimir í Kombucha Iceland-fjölskyldunni Krónan | Melabúðin | Fjarðarkaup | Heilsu- húsið | Matarbúðin Nándin | Brauð og co. og nú nýlega fáanlegt í Heimkaupum. Einnig fæst Kombucha Iceland í BioBorgara | Kaffihúsi Vesturbæjar | Le Kock | Kaffi Laugalæk | Mr. Joy | Mamá | Te og Kaffi| Systrasamlaginu og á fleiri stöðum. Einnig eru nokkrir sölustaðir úti á landi: Vistvera á Selfossi| Ljómalind í Borgarnesi | Fisk kompaní á Akureyri | Hús handanna á Egilsstöðum og Kaja Organic á Akranesi. að staðaldri til þess að styðja við meltinguna og finn hvað það hefur góð áhrif á mig. Kombucha frá Kom­ bucha Iceland er eitt það fyrsta sem ég gríp til ef ég finn að meltingin er eitthvað að stríða mér. Það kemur líka á daginn að kombucha hefur góð áhrif á mig og það hjálpar til við að róa meltinguna. Svo er þetta bara svo sjúklega frískandi og bragðgott! Kombucha passar líka vel inn í minn lífsstíl. Mér finnst best að fá mér eina flösku af ísköldu kombucha eftir kvöldmat, hvort sem ég er að vinna fram á kvöld eða slaka á yfir sjónvarpinu, það er svo gott trít á kvöldin.“ Sunna er ekki síður hrifin af fyrir­ tækinu en drykknum. „Mér finnst þau Ragna og Manuel alveg frábær og starfsemin engu síðri. Kombucha frá Kombucha Iceland er framleitt á Íslandi á svo vandaðan hátt úr gæða­ efnum, af góðu fjölskyldufyrirtæki. Svo er þetta alveg gríðarlega bragð­ gott og stútfullt af góðgerlum sem eru svo hollir. Ég bið ekki um meira enda held ég að það sé ekki hægt.“ n MYND/DANI GUINDO MYND/DANI GUINDO MYND/SUNNA BEN að staðaldri. „Það er algert möst fyrir mig að eiga kombucha frá Kombucha Iceland í ísskápnum og ég þarf alveg að halda aftur af mér og drekka bara eitt á dag vegna þess að mér finnst það svo sjúklega gott og frískandi. En eins og áður kom fram er ég með erfiða meltingu. Ég drekk kombucha

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.