Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2021, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2021, Blaðsíða 34
Ólst upp í sviðsljósinu Friðhelgi einkalífsins telst til mannréttinda. Leikkonan Brooke Shields naut aldrei þeirra réttinda en aðeins 11 mánaða lék hún sitt fyrsta hlutverk. U mræðan um friðhelgi einkalífs barna hefur fengið aukið vægi undanfarin ár, sérstaklega í ljósi þess að ósjaldan birtast myndir af börnum á sam­ félagsmiðlum foreldra. Þeirri spurningu hefur verið varpað fram hvort börn svonefndra áhrifavalda njóti yfirhöfuð friðhelgi einkalífsins og hvaða áhrif það kunni að hafa á þau þegar þau eldast. Samfélagsmiðlar eru nýir af nálinni. Fyrir þeirra tíma kom það þó fyrir að friðhelgi barna kæmi til umræðu, þá einkum barna sem reyndu fyrir sér í leiklist. Leikkonan Brooke Shields er gott dæmi um barn sem aldrei naut frið­ helgi einkalífs. Frægð með móðurmjólkinni Teri Shields var samkvæmis­ ljón sem dreymdi um frægð og frama. Árið 1965 fæddist henni forkunnarfögur dóttir sem fékk nafnið Brooke. Þegar Brooke var aðeins fimm daga gömul ákvað Teri að dóttir hennar skyldi verða fræg, og ákvað samtímis að gerast um­ boðsmaður dóttur sinnar. Brooke var ekki orðin eins árs þegar hún fékk fyrsta smjörþefinn af frægðinni. Ellefu mánaða gömul lék hún í sinni fyrstu auglýsingu og varð fljótlega þekkt sem „fal­ legasta barn Ameríku“. Fallegasta barnið varð fljótt að ungri fegurðardrottningu með blómlegan feril fram und­ an. Allar dyr virtust standa henni opnar. En á sama tíma fór almenningur sem og fjöl­ miðlar að fylgjast náið með henni. Helst varð Brooke fræg fyrir að vera ung og falleg og fjölmiðlar kepptust við að kyn­ gera hana. Sat fyrir nakin tíu ára Brooke dreymdi um að fá að vera venjulegt barn, en það stóð henni ekki til boða. Móðir hennar var kröfuhörð og öllu skyldi til kostað til að tryggja frægð dótturinnar. Brooke mátti hafa sig alla við til að uppfylla kröfur og væntingar móður sinnar. Samkvæmt fjölda heimilda stjórnaði Teri öllu lífi dóttur sinnar, bæði ferlinum og einkalífinu. Allt undir því yfirskyni að hún vissi hvað væri barni sínu fyrir bestu. Þegar Brooke var aðeins tíu ára gömul bókaði móðir hennar myndatöku þar sem Brooke var látin sitja fyrir nakin. Fyrir myndatökuna fengu mæðgurnar greidda 450 dollara og Teri skrifað undir samning sem heimilaði notkun myndanna, sem voru teknar fyrir tímaritið Play­ boy. Þegar Brook var sextán ára reyndi hún að koma í veg fyrir að myndirnar yrðu not­ aðar frekar. Dómari í málinu komst að þeirri niðurstöðu að myndirnar gætu ekki talist barnaklám og að barn væri skuldbundið þeim skilmálum Erla Dóra Magnúsdóttir erladora@dv.is sem forráðamaður hefði sam­ þykkt fyrir þeirra hönd. Eins taldi dómari að barn gæti ekki sjálft síðar afturkallað sam­ þykki forráðamanns. Hins vegar skilaði einn dómari í málinu sératkvæði þar sem hann sagði að barni ætti ekki að vera refsað fyrir „dóm­ greindarleysi móðurinnar“. Ellefu ára vændiskona Ellefu ára gömul lék Brooke kornunga gleðikonu í kvik­ myndinni Pretty Baby. Atriði í kvikmyndinni eru talin hafa brotið blað í kvikmyndasög­ unni. Móðir Brooke, Teri, var harðlega gagnrýnd í kjölfarið. Að móðir skyldi láta barn sitt leika í jafn djarfri kvikmynd aðeins 12 ára að aldri? Fólk botnaði ekkert í þessu. Ekki bætti svo úr skák að tveimur árum síðar lék hin 14 ára gamla Brooke í kvik­ myndinni Blue Lagoon sem varð ekki síður umdeild. Kvikmyndin fjallar um tvö börn sem eru strandaglópar á eyðieyju. Þau verða kyn­ þroska á eyjunni og fella hugi saman, en atriði í myndinni eru nokkuð djörf og kynferð­ isleg. Aftur var Teri harðlega gagnrýnd, þrátt fyrir að síðar kæmi fram að Brooke hefði stuðst við staðgengil í djarfari atriðum myndarinnar. Þótti það ekki forsvaranlegt að fjórtán ára barn væri fengið í hlutverk af þessu tagi. Kynferðisleg auglýsingaherferð Fyrirsætuferill Brooke olli einnig umtali. Tólf ára gömul sat hún fyrir á forsíðu ungl­ ingatímaritsins Seventeen og vakti þar athygli hins fræga hönnuðar Calvin Klein sem fékk Brooke til að vera andlit auglýsingaherferðar. Þá var Brooke aðeins fimmtán ára en var í sjónvarpsauglýsingum látin fara með línuna „Viltu vita hvað er að finna á milli mín og gallabuxna minna? Ekkert.“ Línan þótti alltof kynferðisleg fyrir svona unga stúlku og bönnuðu sumar sjónvarpsstöðvar sýningu á auglýsingunum. Hins vegar er það svo að það er ekkert til sem heitir slæmt umtal og umtalið sem auglýsingin olli varð til þess að auka á frægð bæði Calvin Klein og Brooke sjálfrar. Gagnrýnin á hæfileika hennar sem móður og um­ boðsmanns reyndist Teri þungbær, sem og þrýstingur­ inn sem hún beitti sjálfa sig og Brooke í nafni frægðarinnar. Teri greip, líkt og svo margir í Hollywood, á það ráð að leita huggunar í flöskunni og varð drykkfelld með eindæmum. Það kom því í hlut Brooke, sem enn var barn að aldri, að sjá um móður sína samhliða ferlinum, fjölmiðlaathyglinni, umtalinu og gífurlegum kröf­ um móður hennar. „Ég ólst upp hjá alkóhól­ ista,“ sagði Brooke í samtali við The New York Times árið 1994. „Ég var í hlutverki um­ mönnunaraðilans sem vildi bara gera allt betra, en þú get­ ur ekki gegnt því hlutverki til lengdar, eða svo er mér sagt.“ Brooke hefur einnig haldið því fram að móðir hennar hafi verndað hana fyrir kynferðis­ legri áreitni og sagði í samtali við The Telegraph’s Stella ma­ gazine í janúar 2019 að móðir hennar hefði sagt hverjum þeim er leit á hana ósæmilega: „Ég sker undan þér eistun og læt þig éta þau.“ Internetið gleymir aldrei Svo virðist sem Brooke hafi komist frekar heil undan því að vera barnastjarna. Hún var ávallt með báða fæturna á jörðinni og notaði vinsældir sínar til að vekja athygli á góðum málum og hvetja til heilbrigðs lífsstíls. Hún missti meydóminn 22 ára að eigin sögn en móðir hennar hafði innrætt henni að kynlíf væri syndsamlegt. Í dag á Brooke tvær dætur og vill fyrir alla muni forðast að gera sömu mistök og móðir hennar gerði. Þar til dætur hennar fara í háskóla mega þær ekki koma nálægt kvik­ myndaiðnaðinum og Brooke hefur sagt fjölmiðlum að hún sé mótfallin því að unglingar séu notaðir í auglýsingar og tískusýningar. „Við ættum ekki að vera að horfa á líkama 15 ára barna. Ég vil ekki líkama 15 ára barns. Ég vil ekki líta út eins og lítill drengur.“ Eins hefur Brooke alið upp í dætrum sínum að fara gæti­ lega á samfélagsmiðlum, því að internetið gleymir aldrei neinu. Hins vegar hefur Brooke aldrei séð eftir æsku sinni, eða því að hafa glatað frið­ helgi einkalífs síns, enda þekkir hún ekkert annað. „Ég byrjaði í bransanum 11 mán­ aða gömul svo þetta hefur alltaf verið líf mitt.“ n Þrátt fyrir að móðir hennar væri drykkfelld og stjórnsöm voru mægðurnar nánar. MYNDIR/GETTY 14 ÁRA Í NEKTARSENU Brooke var aðeins 14 ára þegar hún lék í Blue Lagoon þar sem hún kemur fram ber að ofan. 11 ÁRA VÆNDISKONA 12 ára gömul lék hún barnunga gleðikonu, en hlut- verkið olli miklu hneyksli. 34 FÓKUS 26. FEBRÚAR 2021 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.