Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2021, Síða 34
Ólst upp í
sviðsljósinu
Friðhelgi einkalífsins telst til mannréttinda.
Leikkonan Brooke Shields naut aldrei þeirra réttinda
en aðeins 11 mánaða lék hún sitt fyrsta hlutverk.
U mræðan um friðhelgi einkalífs barna hefur fengið aukið vægi
undanfarin ár, sérstaklega í
ljósi þess að ósjaldan birtast
myndir af börnum á sam
félagsmiðlum foreldra. Þeirri
spurningu hefur verið varpað
fram hvort börn svonefndra
áhrifavalda njóti yfirhöfuð
friðhelgi einkalífsins og hvaða
áhrif það kunni að hafa á þau
þegar þau eldast.
Samfélagsmiðlar eru nýir
af nálinni. Fyrir þeirra tíma
kom það þó fyrir að friðhelgi
barna kæmi til umræðu, þá
einkum barna sem reyndu
fyrir sér í leiklist. Leikkonan
Brooke Shields er gott dæmi
um barn sem aldrei naut frið
helgi einkalífs.
Frægð með móðurmjólkinni
Teri Shields var samkvæmis
ljón sem dreymdi um frægð
og frama. Árið 1965 fæddist
henni forkunnarfögur dóttir
sem fékk nafnið Brooke. Þegar
Brooke var aðeins fimm daga
gömul ákvað Teri að dóttir
hennar skyldi verða fræg, og
ákvað samtímis að gerast um
boðsmaður dóttur sinnar.
Brooke var ekki orðin eins
árs þegar hún fékk fyrsta
smjörþefinn af frægðinni.
Ellefu mánaða gömul lék hún
í sinni fyrstu auglýsingu og
varð fljótlega þekkt sem „fal
legasta barn Ameríku“.
Fallegasta barnið varð fljótt
að ungri fegurðardrottningu
með blómlegan feril fram und
an. Allar dyr virtust standa
henni opnar. En á sama tíma
fór almenningur sem og fjöl
miðlar að fylgjast náið með
henni. Helst varð Brooke fræg
fyrir að vera ung og falleg og
fjölmiðlar kepptust við að kyn
gera hana.
Sat fyrir nakin tíu ára
Brooke dreymdi um að fá að
vera venjulegt barn, en það
stóð henni ekki til boða. Móðir
hennar var kröfuhörð og öllu
skyldi til kostað til að tryggja
frægð dótturinnar. Brooke
mátti hafa sig alla við til að
uppfylla kröfur og væntingar
móður sinnar. Samkvæmt
fjölda heimilda stjórnaði Teri
öllu lífi dóttur sinnar, bæði
ferlinum og einkalífinu. Allt
undir því yfirskyni að hún
vissi hvað væri barni sínu
fyrir bestu.
Þegar Brooke var aðeins
tíu ára gömul bókaði móðir
hennar myndatöku þar sem
Brooke var látin sitja fyrir
nakin. Fyrir myndatökuna
fengu mæðgurnar greidda
450 dollara og Teri skrifað
undir samning sem heimilaði
notkun myndanna, sem voru
teknar fyrir tímaritið Play
boy. Þegar Brook var sextán
ára reyndi hún að koma í veg
fyrir að myndirnar yrðu not
aðar frekar. Dómari í málinu
komst að þeirri niðurstöðu að
myndirnar gætu ekki talist
barnaklám og að barn væri
skuldbundið þeim skilmálum
Erla Dóra
Magnúsdóttir
erladora@dv.is
sem forráðamaður hefði sam
þykkt fyrir þeirra hönd. Eins
taldi dómari að barn gæti ekki
sjálft síðar afturkallað sam
þykki forráðamanns. Hins
vegar skilaði einn dómari í
málinu sératkvæði þar sem
hann sagði að barni ætti ekki
að vera refsað fyrir „dóm
greindarleysi móðurinnar“.
Ellefu ára vændiskona
Ellefu ára gömul lék Brooke
kornunga gleðikonu í kvik
myndinni Pretty Baby. Atriði
í kvikmyndinni eru talin hafa
brotið blað í kvikmyndasög
unni. Móðir Brooke, Teri, var
harðlega gagnrýnd í kjölfarið.
Að móðir skyldi láta barn sitt
leika í jafn djarfri kvikmynd
aðeins 12 ára að aldri? Fólk
botnaði ekkert í þessu.
Ekki bætti svo úr skák að
tveimur árum síðar lék hin
14 ára gamla Brooke í kvik
myndinni Blue Lagoon sem
varð ekki síður umdeild.
Kvikmyndin fjallar um tvö
börn sem eru strandaglópar
á eyðieyju. Þau verða kyn
þroska á eyjunni og fella hugi
saman, en atriði í myndinni
eru nokkuð djörf og kynferð
isleg. Aftur var Teri harðlega
gagnrýnd, þrátt fyrir að síðar
kæmi fram að Brooke hefði
stuðst við staðgengil í djarfari
atriðum myndarinnar. Þótti
það ekki forsvaranlegt að
fjórtán ára barn væri fengið í
hlutverk af þessu tagi.
Kynferðisleg
auglýsingaherferð
Fyrirsætuferill Brooke olli
einnig umtali. Tólf ára gömul
sat hún fyrir á forsíðu ungl
ingatímaritsins Seventeen og
vakti þar athygli hins fræga
hönnuðar Calvin Klein sem
fékk Brooke til að vera andlit
auglýsingaherferðar. Þá var
Brooke aðeins fimmtán ára en
var í sjónvarpsauglýsingum
látin fara með línuna „Viltu
vita hvað er að finna á milli
mín og gallabuxna minna?
Ekkert.“ Línan þótti alltof
kynferðisleg fyrir svona unga
stúlku og bönnuðu sumar
sjónvarpsstöðvar sýningu á
auglýsingunum. Hins vegar
er það svo að það er ekkert
til sem heitir slæmt umtal og
umtalið sem auglýsingin olli
varð til þess að auka á frægð
bæði Calvin Klein og Brooke
sjálfrar.
Gagnrýnin á hæfileika
hennar sem móður og um
boðsmanns reyndist Teri
þungbær, sem og þrýstingur
inn sem hún beitti sjálfa sig og
Brooke í nafni frægðarinnar.
Teri greip, líkt og svo margir
í Hollywood, á það ráð að leita
huggunar í flöskunni og varð
drykkfelld með eindæmum.
Það kom því í hlut Brooke,
sem enn var barn að aldri, að
sjá um móður sína samhliða
ferlinum, fjölmiðlaathyglinni,
umtalinu og gífurlegum kröf
um móður hennar.
„Ég ólst upp hjá alkóhól
ista,“ sagði Brooke í samtali
við The New York Times árið
1994. „Ég var í hlutverki um
mönnunaraðilans sem vildi
bara gera allt betra, en þú get
ur ekki gegnt því hlutverki til
lengdar, eða svo er mér sagt.“
Brooke hefur einnig haldið
því fram að móðir hennar hafi
verndað hana fyrir kynferðis
legri áreitni og sagði í samtali
við The Telegraph’s Stella ma
gazine í janúar 2019 að móðir
hennar hefði sagt hverjum
þeim er leit á hana ósæmilega:
„Ég sker undan þér eistun og
læt þig éta þau.“
Internetið gleymir aldrei
Svo virðist sem Brooke hafi
komist frekar heil undan því
að vera barnastjarna. Hún
var ávallt með báða fæturna
á jörðinni og notaði vinsældir
sínar til að vekja athygli á
góðum málum og hvetja til
heilbrigðs lífsstíls.
Hún missti meydóminn 22
ára að eigin sögn en móðir
hennar hafði innrætt henni
að kynlíf væri syndsamlegt.
Í dag á Brooke tvær dætur
og vill fyrir alla muni forðast
að gera sömu mistök og móðir
hennar gerði. Þar til dætur
hennar fara í háskóla mega
þær ekki koma nálægt kvik
myndaiðnaðinum og Brooke
hefur sagt fjölmiðlum að hún
sé mótfallin því að unglingar
séu notaðir í auglýsingar og
tískusýningar.
„Við ættum ekki að vera að
horfa á líkama 15 ára barna.
Ég vil ekki líkama 15 ára
barns. Ég vil ekki líta út eins
og lítill drengur.“
Eins hefur Brooke alið upp
í dætrum sínum að fara gæti
lega á samfélagsmiðlum, því
að internetið gleymir aldrei
neinu.
Hins vegar hefur Brooke
aldrei séð eftir æsku sinni,
eða því að hafa glatað frið
helgi einkalífs síns, enda
þekkir hún ekkert annað. „Ég
byrjaði í bransanum 11 mán
aða gömul svo þetta hefur
alltaf verið líf mitt.“ n
Þrátt fyrir að móðir hennar væri drykkfelld og stjórnsöm voru mægðurnar nánar. MYNDIR/GETTY
14 ÁRA Í NEKTARSENU
Brooke var aðeins 14 ára þegar hún lék í Blue Lagoon
þar sem hún kemur fram ber að ofan.
11 ÁRA VÆNDISKONA
12 ára gömul lék hún barnunga gleðikonu, en hlut-
verkið olli miklu hneyksli.
34 FÓKUS 26. FEBRÚAR 2021 DV