Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2021, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2021, Blaðsíða 35
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Naut 6. maí 1987 n Áreiðanleg n Þolinmóð n Trygglynd n Ábyrg n Þrjósk n Ósamvinnuþýð S öngkonan stórkostlega Bríet er listakona af guðs náð. Hún er fædd í Hrútsmerkinu og er því fædd leiðtogi, er með góðan aga og vill gera hlutina vel. Þrátt fyrir gott skipu- lag þá er Hrúturinn alveg óhræddur við að taka áhættu og prófa nýja hluti. Margir frumkvöðlar eru í Hrútsmerkinu því þeir eru hugrakkir. Hrúturinn er með keppnis- skap sem drífur hann áfram en á það til að vera harður í sjálfsgagnrýninni og mætti alveg sýna sjálfum sér þá ást og umhyggju sem hann sýnir öðrum. Elskendurnir Ást | Sátt | Sambönd | Gildi | Val Vissulega getur þetta spil verið táknrænt fyrir farsælt ástarsamband en þetta spil táknar líka ákvarðana- töku og mér finnst það eiga meira hér við. Þú virðist standa frammi fyrir nokkrum valmöguleikum og þarft að velja hvað er best fyrir þig hverju sinni. Mér finnst einmitt eins og þú sért að verða betri í því og sért einn- ig að gefa þér þann tíma sem þú þarft til þess að vega og meta. Þú ert ófeimin við að segja skoðanir þínar og finnur að með því að standa með sjálfri þér þegar það er erfitt þá er það alltaf besta útkoman fyrir alla. Treystu innsæinu. Drottning í sverðum Sjálfstæði | Óhlutdrægni | Skýr mörk | Bein samskipti Þetta spil segir okkur að þetta sem þú þarf að taka ákvörðun um verður ekki svo erfið ákvörðun því þú ert að sjá hlutina svo skýrt og veist nákvæmlega hvað þú vilt. Það er mikið sjálfstæði og sjálfstraust sem fylgir spilinu. Þú ert að lofa sjálfri þér að hlusta á innsæið og ekki láta utanaðkomandi aðstæður flækja hlutina. Mér finnst þetta klárlega vera þú í spilinu, þú munt jafnvel koma sjálfri þér á óvart því þú átt auðveldara með að setja mörk og meðvirkni er ekki lengur í boði. Riddari í sverðum Hugmyndir | Forvitni | Þekking | Nýjar samskiptaleiðir Þetta spil er svo fallegt og sýnir þig vera að gera vel í þínu fagi sem þú hefur valið þér. Þú hefur mikinn metnað Skilaboð frá spákonunni Þú virðist vera að standa með sjálfri þér þessa dag- ana, við hrósum þér fyrir það! STJÖRNUSPÁLESIÐ Í TAROT Bríet SVONA EIGA ÞAU SAMAN Vikan 26.02. – 04.03. Hlustar á innsæið… Erfingi kominn í heiminn MYND/VALLI stjörnurnarSPÁÐ Í Þ órhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, og unnusti hennar, Rafal Orpel, eignuðust son síðastliðinn sunnudag. Drengurinn fékk nafnið Anton Örn Orpel. DV lék forvitni á að vita hvernig nýbökuðu foreldrarnir eiga saman ef litið er til stjörnu- merkjanna. Þórhildur Sunna er Naut og Rafal er Krabbi. Bæði eru afar viljasterkir og þrjóskir ein- staklingar og þegar þessi merki koma saman á rómantískan hátt er yfirleitt um mjög farsælt samband að ræða. Þau eiga margt sameiginlegt, þau eru heima- kær og vilja öryggi ofar öllu. Þau elska að hugsa vel um maka sinn og finnst fátt vera jafn heillandi og kósíkvöld. Krabbinn er viðkvæmur og á það til að byrgja tilfinningar sínar inni, hann þarf að vera skýr í samskiptum sínum við Nautið sem er mjög opinskátt og segir hlutina eins og þeir eru. Þau deila sömu gildum þegar kemur að fjölskyldu og heimili og eru oft parið sem önnur pör líta upp til. n MYND/FACEBOOK Hvað segja stjörnurnar um þig þessa vikuna? Hrútur 21.03. – 19.04. Vikan þín verður andlegri en venjulega. Þú skellir þér í jóga- tíma eða kakóseremóníu sem mun losa um gamlar stíflur. Það er svo gott að tengja inn á þessa vitund og fá að sýna viðkvæmu hliðina sína. Gera upp það gamla til þess að halda sterkari áfram út í lífið. Naut 20.04. – 20.05. „Blast from the past!“ Einhver úr fortíðinni lætur sjá sig. Gæti verið annaðhvort kærkominn gamall vinur eða gömul ást sem blómstrar á ný. Það er spennandi vika fram undan hjá Nautinu. Tvíburi 21.05. – 21.06. Samningar eru í kortunum. Þú skrifar undir mikilvæga pappíra og við mælum með að lesa þá vel yfir. Þetta gæti tengst vinnu, húsnæðismálum eða bankaláni. Þetta boðar breytingar en það er alltaf gott að fá einhvern til þess að lesa vel yfir. Krabbi 22.06. – 22.07. Krabbinn á það til að vera prívat því hann er svo upptekinn af því að hjálpa öðrum og gerir þar af leiðandi lítið úr sínum málum. En þú æfir þig þessa vikuna, líkt og Hrúturinn, í að opna þig og sýna viðkvæmu hliðina þína. Það er mikill styrkur í því. Ljón 23.07. – 22.08. Lukkuhjólið heldur áfram að snúast hjá Ljóninu þessa dagana. Þú sérð allt svo skýrt, bæði þarfir þínar og langanir. Þú sérð einnig hvernig þú munt komast að settu marki. Þú tekur smáskref í að elta drauma þína en sýnir mikla þolin- mæði því þú veist svo vel hvert þú stefnir. Meyja 23.08. – 22.09. Andleg hreinsun! Þegar Meyjan verður tiltektaróð og þrífur hátt og lágt og skipuleggur þá er eins og að hún sé að taka til í huga sér um leið. Andlegt skipulag. Þú ert að hreinsa til fyrir nýja tíma. Vog 23.09. – 22.10. Þú ert með gráa fiðringinn burt séð frá því hversu gömul þú ert. Þig langar helst að klippa af þér hárið eða lita það blátt. Nú væri góður tími til þess að staldra aðeins við og hringja í vin áður en þú framkvæmir eitthvað of drastískt. Sporðdreki 23.10. – 21.11. Þú ert að átta þig á því að þú þarft mögulega að brjóta upp ákveðið munstur. Það er eina leiðin til þess að fá aðra útkomu. Hvað í lífinu hefur verið einsleitt fyrir þig og heldur þar af leiðandi aftur af þér? Bogmaður 22.11. – 21.12. Meiri háttar ferðaplön eru í bí- gerð hjá Bogmanninum sem getur ekki lengur beðið og þráir ekkert heitar en að komast í hlýrra lofts- lag og stinga tánum í sandinn. Nauthólsvík dugar ekki til! Eitt rauðvínsglas til og þú bókar ferðina. Steingeit 22.12. – 19.01. Þú færð aukna ábyrgð í vinnunni og loks rætist aðeins úr fjármál- unum. Þú hefur þurft að berjast fyrir þínu en rétt skal vera rétt og þú færð það sem þú átt skilið. Vel gert að standa svona með sjálfri þér. Vatnsberi 20.01. – 18.02. Þetta er í raun bara viðvörun fyrir þá Vatnsbera sem eru á lausu því þú munt fara á ágætlega vand- ræðalegt stefnumót sem verður þó að skemmtilegri sögu sem þú munt lengi segja frá. Þú mátt undirbúa þig andlega. Fiskur 19.02. – 20.03. Fiskurinn veit að þegar hann þarf að synda á móti straumnum þá er það einungis tímabundið. Syndir af krafti þar til hægist á straumnum. Tilveran getur verið algjör rörsýn meðan synt er en fiskurinn er svo æðrulaus og um- burðarlyndur að mótlætið styrkir hann. og fullkomnunaráráttu. Þig langar að gera enn betur og langar að bæta við þig þekkingu, mögulega nám fram undan? Þig langar að prófa eitthvað nýtt og sýna á þér aðrar hliðar. Það er eitthvert nýtt sköpunarverk í kort- unum, það verður spennandi að sjá hvað verður. Rafal Orpel Krabbi 18. júlí 1991 n Frjór í hugsun n Tilfinningaríkur n Heiðarlegur n Geðfelldur n Svartsýnn n Óöruggur FÓKUS 35DV 26. FEBRÚAR 2021

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.