Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2021, Side 35
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir
Naut
6. maí 1987
n Áreiðanleg
n Þolinmóð
n Trygglynd
n Ábyrg
n Þrjósk
n Ósamvinnuþýð
S öngkonan stórkostlega Bríet er listakona af guðs náð. Hún er fædd í Hrútsmerkinu og er því fædd leiðtogi, er með góðan aga
og vill gera hlutina vel. Þrátt fyrir gott skipu-
lag þá er Hrúturinn alveg óhræddur við að
taka áhættu og prófa nýja hluti.
Margir frumkvöðlar eru í Hrútsmerkinu því
þeir eru hugrakkir. Hrúturinn er með keppnis-
skap sem drífur hann áfram en á það til að
vera harður í sjálfsgagnrýninni og mætti alveg
sýna sjálfum sér þá ást og umhyggju sem hann
sýnir öðrum.
Elskendurnir
Ást | Sátt | Sambönd | Gildi | Val
Vissulega getur þetta spil verið táknrænt fyrir farsælt
ástarsamband en þetta spil táknar líka ákvarðana-
töku og mér finnst það eiga meira hér við. Þú virðist
standa frammi fyrir nokkrum valmöguleikum og þarft
að velja hvað er best fyrir þig hverju sinni. Mér finnst
einmitt eins og þú sért að verða betri í því og sért einn-
ig að gefa þér þann tíma sem þú þarft til þess að vega
og meta. Þú ert ófeimin við að segja skoðanir þínar
og finnur að með því að standa með sjálfri þér þegar
það er erfitt þá er það alltaf besta útkoman fyrir alla.
Treystu innsæinu.
Drottning í sverðum
Sjálfstæði | Óhlutdrægni | Skýr mörk | Bein samskipti
Þetta spil segir okkur að þetta sem þú þarf að taka
ákvörðun um verður ekki svo erfið ákvörðun því þú ert
að sjá hlutina svo skýrt og veist nákvæmlega hvað þú
vilt. Það er mikið sjálfstæði og sjálfstraust sem fylgir
spilinu. Þú ert að lofa sjálfri þér að hlusta á innsæið og
ekki láta utanaðkomandi aðstæður flækja hlutina. Mér
finnst þetta klárlega vera þú í spilinu, þú munt jafnvel
koma sjálfri þér á óvart því þú átt auðveldara með að
setja mörk og meðvirkni er ekki lengur í boði.
Riddari í sverðum
Hugmyndir | Forvitni | Þekking | Nýjar samskiptaleiðir
Þetta spil er svo fallegt og sýnir þig vera að gera vel í
þínu fagi sem þú hefur valið þér. Þú hefur mikinn metnað
Skilaboð frá spákonunni
Þú virðist vera að standa með sjálfri þér þessa dag-
ana, við hrósum þér fyrir það!
STJÖRNUSPÁLESIÐ Í TAROT Bríet
SVONA EIGA ÞAU SAMAN
Vikan 26.02. – 04.03.
Hlustar á innsæið…
Erfingi kominn í heiminn
MYND/VALLI
stjörnurnarSPÁÐ Í
Þ órhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, og unnusti hennar, Rafal Orpel, eignuðust son síðastliðinn sunnudag.
Drengurinn fékk nafnið Anton Örn Orpel.
DV lék forvitni á að vita hvernig nýbökuðu
foreldrarnir eiga saman ef litið er til stjörnu-
merkjanna.
Þórhildur Sunna er Naut og Rafal er Krabbi.
Bæði eru afar viljasterkir og þrjóskir ein-
staklingar og þegar þessi merki koma saman
á rómantískan hátt er yfirleitt um mjög farsælt
samband að ræða.
Þau eiga margt sameiginlegt, þau eru heima-
kær og vilja öryggi ofar öllu. Þau elska að
hugsa vel um maka sinn og finnst fátt vera jafn
heillandi og kósíkvöld.
Krabbinn er viðkvæmur og á það til að
byrgja tilfinningar sínar inni, hann þarf að
vera skýr í samskiptum sínum við Nautið sem
er mjög opinskátt og segir hlutina eins og
þeir eru. Þau deila sömu gildum þegar kemur
að fjölskyldu og heimili og eru oft parið sem
önnur pör líta upp til. n
MYND/FACEBOOK
Hvað segja stjörnurnar um þig þessa vikuna?
Hrútur
21.03. – 19.04.
Vikan þín verður andlegri en
venjulega. Þú skellir þér í jóga-
tíma eða kakóseremóníu sem mun
losa um gamlar stíflur. Það er svo
gott að tengja inn á þessa vitund
og fá að sýna viðkvæmu hliðina
sína. Gera upp það gamla til þess
að halda sterkari áfram út í lífið.
Naut
20.04. – 20.05.
„Blast from the past!“ Einhver
úr fortíðinni lætur sjá sig. Gæti
verið annaðhvort kærkominn
gamall vinur eða gömul ást sem
blómstrar á ný. Það er spennandi
vika fram undan hjá Nautinu.
Tvíburi
21.05. – 21.06.
Samningar eru í kortunum. Þú
skrifar undir mikilvæga pappíra
og við mælum með að lesa þá
vel yfir. Þetta gæti tengst vinnu,
húsnæðismálum eða bankaláni.
Þetta boðar breytingar en það er
alltaf gott að fá einhvern til þess
að lesa vel yfir.
Krabbi
22.06. – 22.07.
Krabbinn á það til að vera prívat
því hann er svo upptekinn af því
að hjálpa öðrum og gerir þar af
leiðandi lítið úr sínum málum. En
þú æfir þig þessa vikuna, líkt og
Hrúturinn, í að opna þig og sýna
viðkvæmu hliðina þína. Það er
mikill styrkur í því.
Ljón
23.07. – 22.08.
Lukkuhjólið heldur áfram að
snúast hjá Ljóninu þessa dagana.
Þú sérð allt svo skýrt, bæði þarfir
þínar og langanir. Þú sérð einnig
hvernig þú munt komast að settu
marki. Þú tekur smáskref í að elta
drauma þína en sýnir mikla þolin-
mæði því þú veist svo vel hvert þú
stefnir.
Meyja
23.08. – 22.09.
Andleg hreinsun! Þegar Meyjan
verður tiltektaróð og þrífur hátt
og lágt og skipuleggur þá er eins
og að hún sé að taka til í huga sér
um leið. Andlegt skipulag.
Þú ert að hreinsa til fyrir nýja
tíma.
Vog
23.09. – 22.10.
Þú ert með gráa fiðringinn burt
séð frá því hversu gömul þú ert.
Þig langar helst að klippa af þér
hárið eða lita það blátt. Nú væri
góður tími til þess að staldra
aðeins við og hringja í vin áður
en þú framkvæmir eitthvað of
drastískt.
Sporðdreki
23.10. – 21.11.
Þú ert að átta þig á því að þú
þarft mögulega að brjóta upp
ákveðið munstur. Það er eina
leiðin til þess að fá aðra útkomu.
Hvað í lífinu hefur verið einsleitt
fyrir þig og heldur þar af leiðandi
aftur af þér?
Bogmaður
22.11. – 21.12.
Meiri háttar ferðaplön eru í bí-
gerð hjá Bogmanninum sem getur
ekki lengur beðið og þráir ekkert
heitar en að komast í hlýrra lofts-
lag og stinga tánum í sandinn.
Nauthólsvík dugar ekki til! Eitt
rauðvínsglas til og þú bókar
ferðina.
Steingeit
22.12. – 19.01.
Þú færð aukna ábyrgð í vinnunni
og loks rætist aðeins úr fjármál-
unum. Þú hefur þurft að berjast
fyrir þínu en rétt skal vera rétt og
þú færð það sem þú átt skilið. Vel
gert að standa svona með sjálfri
þér.
Vatnsberi
20.01. – 18.02.
Þetta er í raun bara viðvörun fyrir
þá Vatnsbera sem eru á lausu því
þú munt fara á ágætlega vand-
ræðalegt stefnumót sem verður
þó að skemmtilegri sögu sem
þú munt lengi segja frá. Þú mátt
undirbúa þig andlega.
Fiskur
19.02. – 20.03.
Fiskurinn veit að þegar hann
þarf að synda á móti straumnum
þá er það einungis tímabundið.
Syndir af krafti þar til hægist á
straumnum. Tilveran getur verið
algjör rörsýn meðan synt er en
fiskurinn er svo æðrulaus og um-
burðarlyndur að mótlætið styrkir
hann.
og fullkomnunaráráttu. Þig langar að gera enn betur og
langar að bæta við þig þekkingu, mögulega nám fram
undan? Þig langar að prófa eitthvað nýtt og sýna á þér
aðrar hliðar. Það er eitthvert nýtt sköpunarverk í kort-
unum, það verður spennandi að sjá hvað verður.
Rafal Orpel
Krabbi
18. júlí 1991
n Frjór í hugsun
n Tilfinningaríkur
n Heiðarlegur
n Geðfelldur
n Svartsýnn
n Óöruggur
FÓKUS 35DV 26. FEBRÚAR 2021