Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2021, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2021, Blaðsíða 30
30 FÓKUS Að hlaupa 100 km á mánuði BLAÐAMAÐUR FÓRNAR SÉR 26. FEBRÚAR 2021 DV 3,2 kílómetrar á dag hljómar sem lítið mál – þangað til ég gleymdi því og allt í einu átti ég 45 kílómetra eftir og aðeins fjóra daga til að hlaupa þá. Já og ég er lélegur hlaupari. En ég skyldi klára þetta þó að ég myndi skríða Ægisíðuna skælandi. Þorbjörg Marinósdóttir tobba@dv.is É g er í grunninn ekki hlaupari. Bara alls ekki. Mér finnst spinn- ing, lyftingar, fjallgöngur, alls konar agressíf líkamsrækt skemmtileg en hlaupin hafa hingað til ekki heillað mig neitt sérstaklega nema þegar vel viðrar. En nú var komið að því – 100 kílómetrar í janúar var takmarkið og því skyldi náð. Lítið mál, enda 31 dagur í janúar sem gera að meðaltali 3,2 kílómetra á dag sem er vel gerlegt og tekur ekki nema sirka 20 mínútur fyrir óvanan hlaupara. Veðrið í janúar var misgott og í bjartsýniskasti skráði ég mig líka á námskeið tvisvar í ákafri líkamsrækt, Innfra Pow er eins og það kallast í heitum sal. Eftir á að hyggja var það ekki svo sniðugt því það var ekki gott að hlaupa sama dag eða daginn eftir æf- inguna vegna harðsperra. Ég mætti á námskeiðið og fannst það frábært en snar- gleymdi hlaupunum sem ég hafði byrjað svo samviskusam- lega á. Því fór svo að fjórum dögum fyrir janúarlok átti ég 45 kílómetra eftir. Ég hafði sofnað allverulega á verðinum og varð að gefa í. Gat ég hlaupið 45 kílómetra á fjórum dögum? Ég hafði aldrei hlaupið meira en 10 kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu en nú yrði ég að hlaupa lágmark vel það daglega. Fokk! Úti var brjálæðislega kalt, hált og ég frekar fúl yfir að hafa ekki náð að halda tak- markinu á lofti. Ég yrði að klára þetta. Pepp Ísland Ég kíkti inn í Pepp Ísland-hóp- inn og sá þar alls konar gott fólk vera að tjá sig og hvetja aðra áfram. Ég fann hugrekkið kitla mig í iljarnar. Af hverju gæti ég ekki hlunkast þetta í rólegheitum eins og aðrir? Ég tæki bara minn tíma. Hlustaði á hljóðbók og tæmdi hugann. Ég sagði því eiginmann- inum að plokkfiskurinn væri í ofninum og ég væri farin út að hlaupa. Ég lagði upp með að finna mér hring þar sem þá gengi verr að svindla mér leið eða gefast upp ef ég væri komin nægilega langt frá sóf- anum. Hér skiptir miklu máli að vera með spennandi hljóðbók og vera helst kominn vel inn í söguþráðinn. Gott er að vera með lagalista sem inniheldur „powerlög“, það er að segja hvetjandi taktfasta tónlist til- búna á Spotify til að breyta yfir í ef gefa á í eða til að rífa upp stemminguna. Langaði ekki í rauðvín Fyrstu 3 til 5 kílómetrarnir Ég hljóp hægt en örugglega. Skjaldbakan skilar sér. MYND/TM eru erfiðastir. Ekki hjálpaði til að það lak stanslaust úr nefinu á mér í frostinu og ég var illa klædd eins og auli. Kuldinn hjálpaði þó til og varð til þess að ég hljóp hraðar til að ná upp hita. Ég kláraði 10 kílómetra og var langt í frá að vera upp- gefin þegar ég kom heim rétt rúmum 60 mínútum síðar. Mér leið ótrúlega vel. Það létti til í heilaþokunni sem fylgir því að vera með mörg krefjandi verkefni á lofti og ég var mun minna svöng um kvöldmatar- leytið og langaði ekki í rauð- vínsglas eða súkkulaði. Líkam- inn var sáttur. Og athugið að ég elska að fá mér eitt rauðvíns- glas við eldamennskuna – það var í raun undarleg tilfinning að „vanta“ ekki neitt. Líklega er rauðvínsglasið líka liður í að „stytta“ sér leið í slökun eftir krefjandi dag en hlaupin höfðu séð um að létta heilaþokunni. Björk og Palli Næsta dag var ég vandræða- lega spennt yfir hlaupunum. Hafði pantað mér góðar hlýjar hlaupabuxur, var á spennandi stað í bókinni, með vasann fullan af snýtubréfi og mér ekkert að vanbúnaði. Ég hafði fengið góðan vin til að skrúfa nagla upp í gamla hlaupaskó sem ég gat hlaupið á eftir hvaða ísilögðu stétt sem er. Ég var ósigrandi! Þangað til eftir 2,5 kíló- metra. Þá bara nennti ég þessu ekki. Lufsaðist hægt áfram. Íhugaði tilgang lífs- ins og af hverju ég væri yfir höfuð að þessu. Og af hverju er ég til? Hver er ég? Ég hljóp með fram Ægissíð- unni og fram hjá Björk Guð- munds og Páli Óskari. Ég gat ekki látið þau sjá mig labba í hlaupagallanum. Lufsaðist áfram. Brosti og hljóp hrað- ar. Maður þarf að hugsa um ímyndina. Mig langaði samt að skríða. Þá dró til tíðinda í hljóðbók- inni og ég snýtti mér, gaf í og hugsaði áfram, áfram. Þegar 5 kílómetrar voru komnir var ég í banastuði. Farin að hugleiða hálfmaraþon og ný hlaupaföt. Ég vil meira Síðasta daginn hljóp ég rúma 10 kílómetra og kláraði áskorunina. Ég fékk aldrei harðsperrur eða leið illa þó að ég hefði auðvitað átt að leggja meiri áherslu á teygjur. Hlaupin gerðu mér ekki síður gott andlega þar sem verkefni dagsins eru oft yfirþyrmandi en hlaupin léttu á öllu – bæði andlega og líkamlega. Daginn eftir að ég kláraði hlaupin hafði ég ákveðið að hvíla líkamann eftir þessa 45 kílómetra striklotu á fjórum dögum en saknaði þess strax að fá ekki þennan „ég“ tíma. Stærsta áskorunin var ekki hlaupin heldur að fá rúma klukkustund (fyrir utan sturtu) handa mér sjálfri og það yfirleitt á úlfa- eða mat- málstíma þar sem það hentar mér ekki að hlaupa fyrir vinnu þegar verið er að koma börnum í skóla. Best er að hlaupa í hádeginu en það er aðeins hægt þegar ég vinn heima því ekki býð ég sam- starfsfélögum mínum upp á svitapartí og ég hef ekki tíma til að fara í sturtu í hádeginu. Stundum var svo flókið að komast frá þennan klukku- tíma að börnin voru hvort á sínum staðnum í pössun ef Kalli var að vinna lengur. Dagurinn er svo stuttur að skólatíminn rúmar ekki vinnutímann, hvað þá hlaup eða líkamsrækt. Dæmið geng- ur illa upp en þarf að gera það ef ekki á að brenna kertið í báða enda. Ég hef tapað hlaupunum niður en ætla nú að taka þau aftur upp – ég finn að ég þarf þess til að halda andlegri og líkamlegri heilsu í góðu jafn- vægi.n GÓÐ VETRARHLAUPARÁÐ • Gott þykkt krem til að verja húð- ina fyrir kuldanum er mikilvægt. • Góð hljóðbók getur borið þig áfram. • Snýtupappír í vasa. • Hlýr og góður fatnaður. • Notast við app sem hvetur áfram. • Hvatningarhópar á Facebook á borð við Pepp Ísland. • Hlaupa í hring frekar en fram og til baka. • Hlaupafélagar hjálpa til við að koma manni af stað. • Ekki hugsa um tímann – kláraðu bara verkefnið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.