Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2021, Page 30
30 FÓKUS
Að hlaupa
100 km á mánuði
BLAÐAMAÐUR
FÓRNAR SÉR
26. FEBRÚAR 2021 DV
3,2 kílómetrar á dag hljómar sem lítið mál – þangað
til ég gleymdi því og allt í einu átti ég 45 kílómetra
eftir og aðeins fjóra daga til að hlaupa þá. Já og ég
er lélegur hlaupari. En ég skyldi klára þetta þó að ég
myndi skríða Ægisíðuna skælandi.
Þorbjörg
Marinósdóttir
tobba@dv.is
É g er í grunninn ekki hlaupari. Bara alls ekki. Mér finnst spinn-
ing, lyftingar, fjallgöngur, alls
konar agressíf líkamsrækt
skemmtileg en hlaupin hafa
hingað til ekki heillað mig
neitt sérstaklega nema þegar
vel viðrar. En nú var komið að
því – 100 kílómetrar í janúar
var takmarkið og því skyldi
náð.
Lítið mál, enda 31 dagur í
janúar sem gera að meðaltali
3,2 kílómetra á dag sem er vel
gerlegt og tekur ekki nema
sirka 20 mínútur fyrir óvanan
hlaupara.
Veðrið í janúar var misgott
og í bjartsýniskasti skráði ég
mig líka á námskeið tvisvar
í ákafri líkamsrækt, Innfra
Pow er eins og það kallast í
heitum sal. Eftir á að hyggja
var það ekki svo sniðugt því
það var ekki gott að hlaupa
sama dag eða daginn eftir æf-
inguna vegna harðsperra.
Ég mætti á námskeiðið og
fannst það frábært en snar-
gleymdi hlaupunum sem ég
hafði byrjað svo samviskusam-
lega á. Því fór svo að fjórum
dögum fyrir janúarlok átti ég
45 kílómetra eftir. Ég hafði
sofnað allverulega á verðinum
og varð að gefa í.
Gat ég hlaupið 45 kílómetra á
fjórum dögum? Ég hafði aldrei
hlaupið meira en 10 kílómetra í
Reykjavíkurmaraþoninu en nú
yrði ég að hlaupa lágmark vel
það daglega.
Fokk!
Úti var brjálæðislega kalt,
hált og ég frekar fúl yfir að
hafa ekki náð að halda tak-
markinu á lofti. Ég yrði að
klára þetta.
Pepp Ísland
Ég kíkti inn í Pepp Ísland-hóp-
inn og sá þar alls konar gott
fólk vera að tjá sig og hvetja
aðra áfram. Ég fann hugrekkið
kitla mig í iljarnar. Af hverju
gæti ég ekki hlunkast þetta í
rólegheitum eins og aðrir? Ég
tæki bara minn tíma. Hlustaði
á hljóðbók og tæmdi hugann.
Ég sagði því eiginmann-
inum að plokkfiskurinn væri
í ofninum og ég væri farin út
að hlaupa. Ég lagði upp með
að finna mér hring þar sem
þá gengi verr að svindla mér
leið eða gefast upp ef ég væri
komin nægilega langt frá sóf-
anum.
Hér skiptir miklu máli að
vera með spennandi hljóðbók
og vera helst kominn vel inn í
söguþráðinn. Gott er að vera
með lagalista sem inniheldur
„powerlög“, það er að segja
hvetjandi taktfasta tónlist til-
búna á Spotify til að breyta
yfir í ef gefa á í eða til að rífa
upp stemminguna.
Langaði ekki í rauðvín
Fyrstu 3 til 5 kílómetrarnir
Ég hljóp hægt en örugglega. Skjaldbakan skilar sér. MYND/TM
eru erfiðastir. Ekki hjálpaði til
að það lak stanslaust úr nefinu
á mér í frostinu og ég var illa
klædd eins og auli. Kuldinn
hjálpaði þó til og varð til þess
að ég hljóp hraðar til að ná upp
hita. Ég kláraði 10 kílómetra
og var langt í frá að vera upp-
gefin þegar ég kom heim rétt
rúmum 60 mínútum síðar. Mér
leið ótrúlega vel. Það létti til í
heilaþokunni sem fylgir því
að vera með mörg krefjandi
verkefni á lofti og ég var mun
minna svöng um kvöldmatar-
leytið og langaði ekki í rauð-
vínsglas eða súkkulaði. Líkam-
inn var sáttur. Og athugið að ég
elska að fá mér eitt rauðvíns-
glas við eldamennskuna – það
var í raun undarleg tilfinning
að „vanta“ ekki neitt. Líklega
er rauðvínsglasið líka liður í að
„stytta“ sér leið í slökun eftir
krefjandi dag en hlaupin höfðu
séð um að létta heilaþokunni.
Björk og Palli
Næsta dag var ég vandræða-
lega spennt yfir hlaupunum.
Hafði pantað mér góðar hlýjar
hlaupabuxur, var á spennandi
stað í bókinni, með vasann
fullan af snýtubréfi og mér
ekkert að vanbúnaði. Ég hafði
fengið góðan vin til að skrúfa
nagla upp í gamla hlaupaskó
sem ég gat hlaupið á eftir
hvaða ísilögðu stétt sem er. Ég
var ósigrandi!
Þangað til eftir 2,5 kíló-
metra. Þá bara nennti ég
þessu ekki. Lufsaðist hægt
áfram. Íhugaði tilgang lífs-
ins og af hverju ég væri yfir
höfuð að þessu. Og af hverju
er ég til? Hver er ég?
Ég hljóp með fram Ægissíð-
unni og fram hjá Björk Guð-
munds og Páli Óskari. Ég gat
ekki látið þau sjá mig labba
í hlaupagallanum. Lufsaðist
áfram. Brosti og hljóp hrað-
ar. Maður þarf að hugsa um
ímyndina. Mig langaði samt
að skríða.
Þá dró til tíðinda í hljóðbók-
inni og ég snýtti mér, gaf í og
hugsaði áfram, áfram. Þegar
5 kílómetrar voru komnir
var ég í banastuði. Farin að
hugleiða hálfmaraþon og ný
hlaupaföt.
Ég vil meira
Síðasta daginn hljóp ég
rúma 10 kílómetra og kláraði
áskorunina. Ég fékk aldrei
harðsperrur eða leið illa þó
að ég hefði auðvitað átt að
leggja meiri áherslu á teygjur.
Hlaupin gerðu mér ekki síður
gott andlega þar sem verkefni
dagsins eru oft yfirþyrmandi
en hlaupin léttu á öllu – bæði
andlega og líkamlega.
Daginn eftir að ég kláraði
hlaupin hafði ég ákveðið að
hvíla líkamann eftir þessa 45
kílómetra striklotu á fjórum
dögum en saknaði þess strax
að fá ekki þennan „ég“ tíma.
Stærsta áskorunin var ekki
hlaupin heldur að fá rúma
klukkustund (fyrir utan
sturtu) handa mér sjálfri og
það yfirleitt á úlfa- eða mat-
málstíma þar sem það hentar
mér ekki að hlaupa fyrir
vinnu þegar verið er að koma
börnum í skóla. Best er að
hlaupa í hádeginu en það er
aðeins hægt þegar ég vinn
heima því ekki býð ég sam-
starfsfélögum mínum upp á
svitapartí og ég hef ekki tíma
til að fara í sturtu í hádeginu.
Stundum var svo flókið að
komast frá þennan klukku-
tíma að börnin voru hvort á
sínum staðnum í pössun ef
Kalli var að vinna lengur.
Dagurinn er svo stuttur
að skólatíminn rúmar ekki
vinnutímann, hvað þá hlaup
eða líkamsrækt. Dæmið geng-
ur illa upp en þarf að gera það
ef ekki á að brenna kertið í
báða enda.
Ég hef tapað hlaupunum
niður en ætla nú að taka þau
aftur upp – ég finn að ég þarf
þess til að halda andlegri og
líkamlegri heilsu í góðu jafn-
vægi.n
GÓÐ VETRARHLAUPARÁÐ
• Gott þykkt krem til að verja húð-
ina fyrir kuldanum er mikilvægt.
• Góð hljóðbók getur borið þig
áfram.
• Snýtupappír í vasa.
• Hlýr og góður fatnaður.
• Notast við app sem hvetur
áfram.
• Hvatningarhópar á Facebook á
borð við Pepp Ísland.
• Hlaupa í hring frekar en fram og
til baka.
• Hlaupafélagar hjálpa til við að
koma manni af stað.
• Ekki hugsa um tímann – kláraðu
bara verkefnið.