Studia Islandica - 01.06.1949, Blaðsíða 22

Studia Islandica - 01.06.1949, Blaðsíða 22
20 En í lin- og nef-hljóðum hafa lengdarandstæður ver- ið tíðar frá upphafi íslenzkunnar, og er þróun þeirra býsna lærdómsrík fyrir hina andhverfu þróun and- stæðnanna. Bæði Z:ZZ og n:nn hafa ýkt andstæðuna — á svipað- an hátt og p:pp — með því að framleiða munnkvætt lokhljóð í byrjun langa hljóðsins: ZZ verður alltaf dl, og nn verður dn á eftir sérhljóðum, sem löng voru að fornu (þar með talin tvílhjóð, sem ávallt voru löng að fornu). Dæmi sýna, að þessi skerping andstæðnanna er all-fom, a. m. k. frá því á 14. öld (sjá Jóh. L. L. Jóhannesson, Nokkrar sögulegar athuganir, bls. 78 og 82). Af því mætti kannske ráða, að greiningin á p:pp (ph:hpp) sé frá svipuðum tíma, ef hún er ekki eldri.*) Hins vegar hlýtur ZZ í gælunöfnum (og fáeinum út- lendum orðum) að vera yngra en breytingin ZZ > dl. Mætti líklega komast nálægt aldri gælunafnanna með því að skyggnast eftir því, hvenær þau koma fyrst fyr- ir í bréfum eða bókum. Guðmundur Finnbogason („Gælunöfn“, Skírnir 1926) virðist helzt líta svo á, að þetta sé bamamál, og má það vel vera. Gæti það þá *) Hin forblásnu lokhljóð eru með einkennilegustu hljóðum i islenzku, og er ekkert samsvarandi til í frændmálunum, ef litið er á ríkismálin ein. En fyrir nokkrum árum benti C. J. S. Mar- strander á það, að forblásnu lokhljóðin kæmu fyrir ekki aðeins í sumum norskum mállýzkum, ásamt færeysku, heldur einnig í keltneskum mállýzkum á Skotlandi og víðar. Dró hann af þessu þá ályktun, að hér væri fornt samband á milli, enda er erfitt að verjast þvi, að líta svo á. Hitt gæti verið álitamál, hvort þetta sanni, að forblásturinn sé frá þeim tíma, sem sambandið var raunverulegt, þ. e. frá land- námsöldinni, eða hvort öll þessi mál hafi aðeins haft skilyrði til að þróast á þennan hátt og að sú þróun hafi komið síðar. Það virð- ist við fyrsta álit ólíklegra. En þess er að geta, sem Marstrander gáði ekki, að í lappneskum mállýzkum í Noregi og víðar hafa þessi sömu forblásnu lokhljóð myndazt undir svipuðum kringum- stæðum. Er hér líka um beint samband að ræða, eða eru þess- ar „svipuðu kringumstæður“ undirrót breytinganna í þrem al- óskyldum málum? Sjá Marstrander, „Occlusiver og substrater" í Norsk tidsskrift for sprogvidenskab 1932, V, 258—314 og E. Lagercrantz, Struktur- typen und Gestaltwechsel im Lappischen, Helsinki 1927.

x

Studia Islandica

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.