Studia Islandica - 01.07.1966, Blaðsíða 9
FORMÁLI
Ritsafnið Islenzk frœSi eða Síudia Islandica stofnaði Sigurður Nor-
dal 1937 og var útgefandi þess og ritstjóri allt til 1951. Síðan tók heim-
spekideild Háskóla íslands við útgáfunni, og frá 1962 hefur Bókaútgáfa
Menningarsjóðs einnig verið aðili að henni. Upphaflega birti það eink-
um erindi, sem flutt höfðu verið á rannsóknaræfingum íslenzkra fræða
í háskólanum, og kom þá út eftir þvi, sem á stóð. Síðar hefur efni verið
fengið viðar að, og nú á annan áratug hefur að jafnaði komið út eitt
hefti árlega (sbr. ritaskrána hér í bókarlok). I fyrra varð þó skarð í útgáf-
una, m. a. vegna veikinda ritstjóra. En í ár koma í staðinn út tvö hefti.
Flestar hafa ritgerðirnar verið á íslenzku, en einnig á ensku, norsku
og sænsku. Islenzk fræði eru nú stunduð býsna viða um heim, til að
mynda eru nú upp undir tiu útlendingar að semja meistaraprófs- og
doktorsritgerðir um efni úr íslenzkum bókmenntum 19. og 20. aldar,
auk alls annars. Studia Islandica getur þvi miður ekki tekið að sér birt-
ingu svo stórra ritverka. En ritinu er ánægja að því að greiða fyrir út-
gáfu á rannsóknum erlendra fræðimanna, eftir því sem föng eru á,
þótt þvi miður séu því þar skorður settar. Þegar hafa birzt í þessu safni
ritgerðir eftir Englendinga, Frakka, Hollending og Svía, auk Islendinga
vestan hafs og austan.
Að þessu sinni birtist ritgerð á sviði samanburðarbókmennta (lit-
térature comparée) eftir ungan brezkan fræðimann. Anthony Faulkes
stundaði nám hjá hinum merka íslenzkufræðingi prófessor Turville-Petre
í Oxford, lauk þar B.A.-prófi í fomensku og islenzku 1960. Hann var við
Háskóla Islands sem styrkþegi íslenzku ríkisstjómarinnar 1960—61 og
vann þá að ritgerð um elztu islenzku orðabókina, Specimen lexici runici
(Kh. 1650), sem hann birti í Lingua Islandica 1964. Hann lauk síðan
B. Litt.-prófi við háskólann í Oxford 1965. Ritgerðin, sem hér birtist, er
að verulegu leyti samin upp úr einni af þremur ritsmiðum, sem gerðar
vom til þess prófs (hinar tvær vom um HreiSars þátt og Orms þátt
Stórólfssonar). Höfundur er nú kennari (lecturer) í fornenskum og ís-