Fréttablaðið - 20.03.2021, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 20.03.2021, Blaðsíða 70
Út fyrir kassann Sigmundur Ernir Rúnarsson Höfundur er sjónvarpsstjóri Hringbrautar, sem rekin er af Torgi, sem jafn- framt gefur út Fréttablaðið. Þetta er oft svona ÞRENNT SAGÐI AFI MINN VERA MIKILVÆGAST Í LÍFINU. AÐ VERA BJART- SÝNN, NÁ SÉR Í GÓÐA KONU OG KJÓSA FRAMSÓKNAR- FLOKKINN. Umræðuvaldið hefur færst úr stað á Íslandi. B l e s s u n a r -lega. Frá gömlu frekjupólitík- inni til fræðilegrar upplýsingar. Burt úr gortsamri og kokhraustri yfirlýsingagleðinni, oft og tíðum án innihalds, að vel rýndri visku sem sett er fram án sérhagsmuna. Þetta hefur gerst hægt og bítandi, en á síðustu árum nokkuð augljóslega – og veldur þar mestu síaukið framboð af áheyrilegum og trúverð- ugum sérfræðingum af öllu tagi, ekki síst vel mennt- uðum konum í seinni tíð sem geisla af sjálfstrausti og áreiðanleika í hverju fréttaviðtalinu af öðru, sakir góðrar menntunar, upplýstrar umræðu, kven- frelsis og víkjandi karlaveldis. Og ekki síst vegna kröfu fólks um að því sé sagt satt og rétt frá, að bullið víki fyrir vitinu. Ómurinn af innantómu gaspri er nefnilega farinn að svíða í eyru.  Stjórnmálamenn ráða ekki lengur þjóðmálaumræðunni, ólíkt fyrri tímum, sérstaklega á síðustu öld – og tímunum þar á undan – þegar orð þeirra voru hafin yfir allan vafa af fylgispökum sann- færendum. Þá töluðu menn yfir hausamótum fólks. Ekki við lýð- inn, heldur til hans. Þjóðfélagið skiptist á milli pólitíkussins og pöp- ulsins. Einn var æðri, annar lægri. Þannig var tíðarandinn. Og það var ekkert við því að gera. Alltént lengi framan af.  Þrennt sagði afi minn vera mikilvægast í líf- inu. Að vera bjartsýnn, ná sér í góða konu og kjósa Framsóknarflokk- inn. Þar væri komin sannkölluð uppskrift að gæfu manns í lífinu. Þarna talaði bóndinn úr ystu byggðum Íslands, af Ströndum norður, í veglausri byggð. Inni í stofunni hans á Melum hékk ljósmynd af Hermanni Jónassyni, formanni Framsóknarflokksins til næstum tveggja áratuga á síðustu öld, sjálfum glímukóngi Íslands frá 1921, þjóðhetjunni, heljarmenninu, en umfram allt þingmanni Stranda- manna í heilan aldarfjórðung þar til kjördæmakerfinu var breytt undir 1960, í óþökk afskekktra bænda.  Afi var ekki einn um þetta. Onei. Karlinn var ekkert sér á báti. Til- beiðsla hans á formanni og f lokki var í anda þeirrar ævilöngu tryggð- ar og hollustu sem menn á þessum tíma sýndu sjálfum fæðingarflokki sínum.  Svona var þetta í öllum flokkum fram eftir síðustu öld. Æviskeiðið var ætlað einum og sömu samtök- unum. Þegnskapurinn var ofar öllu. Og menn skiptu ekki um skoðun. Slík svik voru til ævarandi skamm- ar. Þau jafngiltu útlegð úr sýslunni, alltént úr hreppnum. Og þvíumlíkt var aldrei áhætt- unnar virði.  Man þegar ég stóð á stóra sviðinu í Súlnasal Hótel Sögu vorið 1990. Borgarstjórnarkosningar voru að baki. Og byrjað að telja. Kosninga- vaka Stöðvar 2 var að nálgast suðu- markið. Spennan í algleymingi. Og ég á rétta staðnum. Þar sem stórfréttin blasti við. Eftir fagurbláu teppinu gekk sigurvegari kvöldsins, vígreifur og bar hökuna hátt: Davíð Oddsson hafði af lað Sjálfstæðis- f lokki sínum 60 prósenta fylgi í Reykjavík, en þar var kominn stærri sigur íhaldsins en nokkru sinni, fyrr og síðar. Yfirburðirnir voru algerir. Og Davíð gerði gys að smáflokk- unum sem fengu klinkið upp úr kjörkössunum. Dró forystumenn þeirra sundur og saman í háði og spotti. Hafði ríka innistæðu fyrir því. Átti borgina. Og tók landsvöldin ári síðar. Hélt þeim lengur en nokkur annar. En þarna í Súlnasalnum góndi ég ekki aðeins á gustmikinn borgar- stjórann. Heldur líka á hirðina. Aldrei á minni stuttu frétta- mennskutíð hafði ég augum litið aðra eins lotningu f lokksmanna fyrir foringja sínum og þetta maí- kvöld við Hagatorg. Karlar komust við og konur grétu. Klappið ætlaði aldrei að hætta, ekki frekar en upp- klappið á uppklappið ofan. Þetta var engu líkt. Heilög stund. Það var eins og himneskum bjarma hefði slegið á salinn. Fólkið féll á hnén, alltént í huganum. Framtíðin var ráðin.  Tíu árum fyrr hafði Gunnari heitnum Thoroddsen nánast tekist að eyðileggja íhaldsaf lið sem öllu þurfti að ráða. Og honum var aldr- ei fyrirgefið það. Hann klauf Sjálf- stæðisf lokkinn. Blóðið rann úr Geirsarminum. Það voru ekki bara flokkssvik heldur föðurlandssvik. En Davíð reddaði þessu. Það mátti ekki seinna vera. Klæðskera- saumaði f lokkinn upp á nýtt – og varð kóngur um stund. Gekk inn bláa dregilinn eins og guðleg vera. Það er ógleymanlegt.  Hann stýrir núna síðasta flokks- blaðinu sem veit raunar ekki hvoru megin hryggjar það á að hanga, Miðflokksmegin eða á Sjálfstæðis- síðunni. Og lesturinn er ekki nema svipur hjá sjón frá því höllin hýsti blaðið. Það er núna úti í móa.  Og það er svo sem eftir öðru í íslenskri pólitík sem hefur tapað áttum á nýrri öld. Í öllu falli með- fæddri fylgispektinni. Lífstíðar- fullvissunni. Það er ekki lengur svo að af f lokki skuli maður koma. Og að f lokki skuli maður aftur verða. Flokkurinn er ekki lengur lífsspurs- mál. Það er líf án skírteinis. Akkúrat það hefur breyst. Varan- lega. Og ástæðan er ekki aðeins sú að upplýsing og fjölmiðlun hefur orðið faglegri og hlutlægari, svo og langtum gætilegri og sannreyndari en fyrr á tímum, heldur hitt: Það er búið að hafa vit fyrir pólitíkinni. Fólk veit meira en flokkurinn. Og svo þetta: Vangaveltur tveggja pólitíkusa sem ausa hvor annan hæfilega miklum formælingum – og helst af öllu ærumeiðingum – eru ekki lengur eftirsóknarverðar í huga fólks. Hanaslagur af því tagi var forvitnilegur í gamla daga þegar stjórnmálamenn voru lands- frægar fígúrur sem skemmtikraftar hermdu eftir á mannamótum. Það er búið. Tími valdaglaðra stórmenna í stjórnmálum er búinn. Og stóru f lokkanna líka. Og af hverju? Jú, af því að vitið vann. 2 0 . M A R S 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R32 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.