Fréttablaðið - 20.03.2021, Blaðsíða 88
AUKATÓNLEIKAR
22. mars kl. 20.00
Eldborg Hörpu
GESTASÖNGVARAR
Ellen Kristjánsdóttir
Jón Jónsson
Sigríður Thorlacius
Sigurður Guðmundsson
STJÓRNANDI & KYNNIR
Sigurður FlosasonMIÐASALA Á HARPA.IS OG Í SÍMA 528 5050
UPPSELT 21. MARS!
ÖRFÁ
SÆTI
LAUS
Leikstjórinn Marteinn Þ ór s s on f r u m s ý nd i kvikmynd sína Þorpið í bakgarðinum undir lok vikunnar. Óhætt er að segja að myndin standi
undir titlinum því Marteinn tók
hana að mestu upp í bakgarðinum
heima hjá sér í Hveragerði, þar sem
hann og Guðrún Eva Mínervudóttir,
eiginkona hans, eru með nokkuð
sérstæða ferðaþjónustu í tveimur
huggulegum kofum.
Breski leikarinn Tim Plester leik-
ur annað aðalhlutverkið í myndinni
á móti Laufeyju Elíasdóttur. „Það
var virkilega ánægjulegt að gera
þessa mynd og ég hefði viljað koma
á frumsýninguna en COVID kom í
veg fyrir það, en við fáum vonandi
tækifæri til að sýna hana einhvern
tímann á Englandi,“ segir Tim.
Elskar Ísland
„Þarna var í raun draumur að rætast
hjá mér vegna þess að ég fékk ekki
aðeins að vera í myndinni heldur
fékk ég líka frábært frí á Íslandi.
Það var það frábæra við þetta allt
saman. Ekki bara að gera myndina
heldur að vera kominn aftur til
Íslands og njóta menningarinnar,
landslagsins og fólksins aftur, en
ég kom í frí til Íslands um áramót
2011 með kærustunni minni sem
nú er eiginkonan mín.“
„Þetta voru mjög eftirminnileg
áramót og frí. Ég elska Ísland. Í
alvöru. Ég hef allar götur síðan verið
að leita leiða til þess að koma aftur.“
Ólafs þáttur Darra
Tim kynntist Marteini í þessari ferð
eftir krókaleiðum í gegnum sam-
eiginlegan vin, eins og hann orðar
það. „Ég hafði aðeins áður leikið í
bresku sjónvarpsþáttunum 1066:
The Battle for Middle Earth, með
tveimur íslenskum leikur-
um, Birni Thors og Ólafi
Darra Ólafssyni og ég
hafði samband við
þá báða áður en ég
kom til Íslands.
Óla f u r Da r r i
benti Tim á að
hann ætti að hitta
vin sinn sem væri
k v i k my nd a lei k-
stjóri. „Ísland er lítið
og Reykjavík er enn
þá minni. Allir þekkja
alla. Segðu bara að ég hafi
sagt að hann ætti að vera
almennilegur við þig á
meðan þú ert í bænum,“
segir Tim um skilaboðin sem hann
átti að bera Marteini frá Ólafi Darra.
„Matti bauð mér og kærustunni
í mat eitt kvöldið og við náðum vel
saman. Eins og ég held að Darri
hafi vitað að við myndum gera.“
Tim segir þá eiginlega hafa haldið
stöðugu sambandi síðan. „Það var
mikið um pósta á milli okkar þegar
Íslandi gekk vel í heimsmeistara-
keppninni og ég man eftir vin-
gjarnlegum bréfaskriftum þegar
Ísland sigraði England á EM.“
Tim segir þá Martein einnig
deila áhuga á svipuðum kvik-
myndum og sama kvikmynda-
gerðarfólkinu. „Við töluðum um
að það væri gaman að fá tækifæri
til þess að vinna saman. Ég vonaði
að það myndi gerast en ég held að
ég hafi aldrei búist við því að það
myndi gerast.“
Heillandi verkefni
Marteinn sá þó til þess og hafði
samband við Tim haustið 2019 og
spurði hvort hann mætti senda
honum handrit. „Auðvitað. Mér
fannst þetta hljóma frábærlega og
varð strax yfir mig hrifinn af hlut-
verki Marks, sem ég held að hafi
að hluta til verið skrifað með mig
í huga,“ segir Tim og bætir við að
hann hafi verið nokkuð upp með
sér.
Tim er líklega þekktastur fyrir
að hafa leikið ófétið Black Walder
Rivers í Game of Thrones, en þar
bar sótrafturinn sá og skyldmenni
ábyrgð á níðingsverkinu sem kennt
er við rauða brúðkaupið. Hann er
alkunnur stórum verkefnum en
kann ekki síður við sig í minni
myndum eins og Þorpinu í bak-
garðinum. „Það er það sem var svo
sjarmerandi og heillandi við þetta.
Ég er líka mjög hrifinn af því
hvernig Marteinn vinnur með það
sem hann hefur, en myndin var
tekin í garðinum heima hjá honum
og ég svaf bókstaf lega á settinu.
Þetta var mjög heimilislegt og
þetta varð sameiginleg upplifun.
Ég held það fylgi svona lítilli fram-
leiðslu að allir eru þarna vegna
þess að þá langar til þess. Þetta var
eins og vinahópur að skemmta sér
og þá snýst þetta ekki um að græða
peninga eða öðlast frægð og frama.
Ég held að þetta minni mann svo-
lítið á hvers vegna maður fór út á
þessa braut til að byrja með.“
Sunnan við vegginn
„Þegar ég fékk hlutverk í Game of
Thrones hugsaði ég strax: „Frá-
bært, ég fæ að fara til Íslands.“ En
allar senurnar mínar voru sunnan
við vegginn og voru teknar á Norð-
ur-Írlandi þannig að ég fékk því
miður ekki að koma til Íslands.“
Tim segist aðspurður
ek k i ha f a f u nd ið
f y r i r n e i n u m
eftirköstum eða
andúð fyrir að
h a f a l e i k i ð
ei n n þei r r a
sem slátruðu
heilli br úð-
kaupsveislu í
hinum magn-
a ð a þ æ t t i
R au t t b r ú ð -
kaup.
„Ég held að þar
sem þeir voru allir
drepnir og enduðu í
böku hafi fólk dálítið
fyrirgefið þeim mis-
gjörðir þeirra. Fólk er líka stundum
svolítið hrifið af vondu köllunum.
Er það ekki? Ég rekst oft á fólk sem
biður mig um að stilla mér upp á
mynd með hníf upp að hálsinum
á því.“
Gengur aldrei einn
Þar sem Tim lét sig varða leik
Íslands og Englands á EM verður
ekki hjá því komist að spyrja hann
nánar út í enska boltann. „Ég er
Liverpool- aðdáandi.“
Nú, já. Þá hefurðu verið vel sett-
ur á Íslandi.
„Nákvæmlega. Ég held að eitt af
því sem tengdi okkur Darra saman
þegar við vorum að leika saman sé
að hann er líka Púllari. Þannig að
það var mikið talað um fótbolta og
Liverpool þegar við urðum vinir.“
toti@frettabladid.is
Úr blóðbrúðkaupi í Þorpið í garðinum
Breski leikarinn Tim Plester heillaðist af Íslandi við fyrstu kynni fyrir nokkrum árum. Þar sem Game of Thrones
skilaði honum ekki til landsins tók hann fagnandi boði Marteins Þórssonar um hlutverk í Þorpinu í bakgarðinum.
Ólafur Darri kom Tim í samband við Martein sem skrifaði Þorpið í bakgarðinum með hann í huga. MYND/AÐSEND
Hnífslög Tims eru eftir-
sótt eftir níðingsverkið
í blóðuga brúðkaupinu.
2 0 . M A R S 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R50 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ