Fréttablaðið - 20.03.2021, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 20.03.2021, Blaðsíða 42
Sérfræðingur á skrifstofu landgæða Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings á skrifstofu landgæða. Helstu verkefni og ábyrgð Um er að ræða fullt starf á skrifstofu landgæða. Málefni skrifstofunnar snúa m.a. að vernd og sjálfbærri nýtingu auðlinda á landi, náttúruvernd, landgræðslu, skógrækt, umsjón lands og veiðistjórnun. Skrifstofan sinnir alþjóðastarfi á málefnasviði skrifstofunnar. Starfsvið sérfræðingsins felur í sér ábyrgð á verkefnum á sviði sjálfbærrar landnýtingar í tengslum við landgræðslu, skógrækt, loftslagsmál, líffræðilega fjölbreytni, landbúnað og skipulagsmál. Starfið felur í sér mikið samstarf við stofnanir ráðuneytisins, önnur ráðuneyti og hagaðila. Aukinheldur er um að ræða stefnumótun á málefnasviði umhverfismála. Hæfniskröfur • Háskólamenntun með meistaragráðu á sviði umhverfis- og auðlindamála eða sambærilegu sviði • Góð þekking á sviði sjálfbærrar landnýtingar • Reynsla af störfum innan stjórnsýslunnar er kostur • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta bæði í ræðu og riti • Reynsla af verkefnastjórnun er kostur • Reynsla af samráði og stefnumótun í umhverfis- og auðlindamálum er kostur • Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum og góðir skipulagshæfileikar • Góð almenn tölvukunnátta og þekking á Office 365 Í ráðuneytinu starfar um 45 manna samhentur hópur á sex skrifstofum. Ráðuneytið leggur áherslu á öfluga liðsheild og góðan starfsanda. Ráðuneytið hefur hlotið gæðavottun umhverfisstjórnunarkerfis og jafnlaunavottun. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf á íslensku þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Nánari upplýsingar veitir Björn Helgi Barkarson skrifstofustjóri á skrifstofu landgæða í síma 545 8600 eða bjorn.helgi.barkarson@uar.is Umsóknarfrestur er til og með 6. apríl nk. Sótt er um starfið á Starfatorgi – starfatorg.is Stafræn framtíð Við leitum að reyndum stjórnanda sem býr yfir: • Framsýni, metnaði, samskipta- og skipulagsfærni • Árangursríkri reynslu af stjórnun • Færni í að skapa liðsheild ásamt jákvæðu og lausnamiðuðu hugarfari • Þekking og reynsla af fjarskipta- og netöryggismálum æskileg • Reynsla á sviði nýsköpunar og tækni æskileg • Árangursríkri reynslu af stefnumótun og áætlanagerð • Háskólapróf sem nýtist í starfi ásamt meistaraprófi eða mikilli reynslu sem nýtist í starfi • Góðri færni í íslensku og ensku í ræðu og riti • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið leitar að stjórnanda sem hefur brennandi áhuga, þekkingu og/eða reynslu af stafrænni þróun til að stjórna skrifstofu stafrænna samskipta hjá ráðuneytinu. Hlutverk skrifstofunnar er að leiða og styðja við stafræna þróun í samfélaginu m.a. með mótun og eftirfylgni stefnu á sviði fjarskipta- og upplýsingatækni þar með töldum netöryggismálum. Þá krefjast verkefni skrifstofunnar töluverðra alþjóðasamskipta. Við leitum að einstaklingi sem vill ná árangri fyrir samfélagið með því að mæta áskorunum og nýta tækifæri sem fylgja stafrænum samskiptum og fjarskiptatækni. Skipað verður í embætti skrifstofustjóra til fimm ára frá og með 1. júní nk. Umsóknarfrestur er til og með föstudagsins 9. apríl. Einstaklingar óháð kyni eru hvattir til að sækja um. Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi með upplýsingum um ástæðu umsóknar og þann árangur sem viðkomandi hefur náð í starfi og telur að nýtist embættinu. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri, ragnhildur.hjaltadottir@srn.is eða 545-8200. Umsóknum skal skila rafrænt á starfatorg.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.