Fréttablaðið - 20.03.2021, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 20.03.2021, Blaðsíða 24
Undir hatti samstarfs utanríkisráðuneytisins við íslensk félagasamtök í þróunarsamvinnu auglýsir ráðuneytið eftir umsóknum um styrki til þróunarsamvinnuverkefna og eru allt að 100 milljónir króna til úthlutunar. Hafa þín félagasamtök áhuga á að leggja sitt af mörkum til að ná heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna? Markmið styrkjanna er að draga úr fátækt, bregðast við neyðar- ástandi og styðja við atvinnusköpun og sjálfbæran vöxt í þróunarlöndum. Sérstök áhersla er lögð á mannréttindi, jafnrétti kynjanna og loftlagsmál í samræmi við stefnu Íslands um alþjóðlega þróunarsamvinnu. Horft verður sérstaklega til verkefna sem koma til framkvæmda í áherslulöndum Íslands í tvíhliða þróunarsamvinnu. Opið er fyrir umsóknir vegna styrkja til þróunarsamvinnuverkefna til 30. apríl 2021. Einnig er vakin athygli á því að ráðuneytið tekur á móti umsóknum vegna styrkja til mannúðaraðstoðar allt árið, með fyrirvara um að fjárheimildir séu til staðar. Nánari upplýsingar um umsóknarferlið ásamt verklagsreglum á www.utn.is/felagasamtok Óskir um nánari upplýsingar og frekari fyrirspurnir skal senda á netfangið felagasamtok.styrkir@utn.is Þróunarsamvinna og mannúðaraðstoð: Styrkir til félagasamtaka Hlaðið á Hótel Kötlu Á Hótel Kötlu í Vík í Mýrdal hefur verið boðið upp á svokallaðar hleðsluhelgar sem eru blanda af jóga og útivist í stórbrotinni nátt- úru milli hafs og jökuls frá því í byrjun febrúar og munu þær verða hverja helgi fram í enda maí. Markmiðið: Að hlaða batteríin og endurnæra. Innifalið: Gisting í tvær nætur með kvöldverðum, hádegisverði, nesti í göngu, morgunverði, jóga- tímum með djúpslökun, jöfnun orkuflæðis, öndunaræfingum og fleiru. Einnig er farið í gönguferð í nágrenni hótelsins. Jógahelgunum er stjórnað af Írisi Dögg Oddsdóttur jógakenn- ara frá Yogabliss en auk þess að vera jógakennari er hún og lærður leiðsögumaður með mikla ástríðu fyrir jóga og heilunarmætti nátt- úrunnar. Hún hefur elskað útivist frá barnsaldri og veit fátt betra en að komast út að leika. Kraftar náttúrunnar eru áþreif- anlegir á svæðinu og margt að upplifa. Farið er meðal annars inn í yoda hellinn við Hjörleifshöfða. Gönguferð lýkur á kakóstund með hreinu „seremoníal“ kakói í faðmi náttúrunnar og hugleiðslu. Frekari upplýsingar má finna á kea- hotels.is/is/tilbod Hlaðið og hreinsað í sveitasælu Íslendingar í leit að slökun og heilsubót koma aldeilis ekki að luktum dyrum á áður ferðamannafylltum hótelum landsins. Hvort sem sóst er eftir jóga, afeitrun eða slökun í heitri laug, þá er það í boði rétt utan við borgarmörkin. Á Hótel Kötlu í Vík býður jógakennarinn Íris Dögg upp á hleðsluhelgar. Flothetta stendur fyrir slökunarmeðferðum í samstarfi við Hótel Húsafell. Detox-námskeiðin á Hótel Örk eru í höndum Þóru Valnýjar markþjálfa. Vatnsslökun í Húsafelli Hótel Húsafell býður upp á lúxus slökunar og vatns – vellíðunar- helgar í samstarfi við Flothettu, undir heitinu Slökun, vatn og vellíðan. Markmiðið: Að leiða viðkom- andi inn í djúpt slökunarástand í vatninu. Mikilvægt er að sá sem flýtur upplifi sig í öruggum höndum fagfólks sem hefur þekk- ingu og visku til að meta ólíkar þarfir hvers og eins og sé fær um að sýna umhyggju og traust. Innifalið: Gisting í tvær nætur með morgun-, hádegis- og kvöld- verði. Flotmeðferðir, jógatímar og leidd slökun. Helgarnar sem ganga allar út á að gefa eftir, sleppa takinu og leyfa allri spennu að líða úr kroppnum er stjórnað af starfs- mönnum Flothettu, fólks sem hefur að baki viðurkennda menntun og reynslu af flot- og vatnsmeðferðarvinnu. Jóga nidra, liggjandi hugleiðsla, er notað til að leiða gesti mjúklega inn í kyrrðarástand og svo farið á dýpið í djúpslakandi flotmeðferðum. Í flotmeðferð er boðið upp á heil- andi snertingu og meðhöndlun í þyngdarleysi vatnsins sem nærir líkama og sál. Þess er gætt að gefa gott andrými á milli meðferða, njóta útivistar í fallegu umhverfi Húsa- fells og alls þess góða sem hótelið býður upp á. Einnig fá gestir að njóta heilnæms og góðs matar að hætti hússins. Frekari upplýsingar má finna á Facebooksíðu Flothettu og á hotel- husafell.is Hreinsun á Hótel Örk Á Hótel Örk er boðið upp á viku eða tíu daga námskeiðið: Detox, vellíðan og slökun, þar sem heil- brigð næring, andleg og líkamleg, og hreyfing eru aðalsmerkið ásamt góðri slökun. Markmiðið: Hvíld, slökun, heilsubætandi hreyfing, innri til- tekt og hvíld fyrir meltinguna og losun eiturefna. Innifalið: Gisting, fullt detox fæði og heilsubætandi afþreying alla daga en hægt er að velja um viku eða tíu daga eða fá sérsniðna lengd eftir óskum.  Hótel Örk hefur um nokkurra ára skeið boðið upp á detox vikur og hafa starfsmenn þess vegna mikla þekkingu á þessu mataræði og hvernig best er að gera það, þannig að það sé bæði bragð- gott og hollt. Það er markþjálfinn og verkefnastjórinn Þóra Valný sem stendur að meðferðunum sem standa í viku eða tíu daga. Þóra Valný hefur í vetur boðið upp á námskeiðið „Operation kjörþyngd“ en á því námskeiði eru teknar fyrir hugsanavillur og hefðbundið hegðunarmynstur sem kemur í veg fyrir að fólk geti náð árangri. Í detoxi felst að ákveðið mataræði er sett fyrir sem byggir aðallega á grænmeti og ávöxtum, um það bil 480 hitaeiningum á dag, í beinu sambandi við hvíld og slökun, jóga og sund, hreyfingu og gufuböð. Dvölin hefst með einstaklingsmarkþjálfunartíma, þar sem farið er yfir markmið og væntingar hvers og eins. Á kvöldin er kvöldvaka með léttu ívafi og þá er einnig upplagt að fara í sund eða slaka á fyrir svefninn í heitu pottunum eða gufubaðinu. En hver og einn getur hagað sinni dagskrá að vild og tekið þátt í því sem hann vill. Sundlaugin er opin allan daginn og daglega verður boðið upp á tíma í hreyfingu eða andlegri næringu, til dæmis jóga nidra, heilsuleikfimi, vatnsjóga, núvitundarhugleiðslu, framtíðar- stefnumótun og margt fleira. Nánari upplýsingar má finna á vef- síðunni: www.valogvirdi.is undir detox og slökun. 2 0 . M A R S 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð HELGIN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.