Fréttablaðið - 20.03.2021, Blaðsíða 14
Miðstöð íslenskra
bókmennta
auglýsir eftir
umsóknum um
Nýræktarstyrki
sem veittir eru fyrir skáldverk
höfunda sem eru að stíga sín
fyrstu skref á ritvellinum.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl 2021.
Allar nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð
á islit.is/styrkir/nyraektarstyrkur
LANDSBANKINN. IS
Við leggjum til allt að 12.000 króna
mótframlag þegar fermingarbörn leggja
inn á Framtíðargrunn og í verðbréfasjóð.
Það borgar sig að spara til framtíðar.
Velkomin í Landsbankann.
Við stækkum
fermingar-
gjöfina þína
SKRÁÐU ÞIG Á
PÓSTLISTANN
Fáðu blað dagsins
sent rafrænt
ALÞJÓÐAMÁL Í fyrradag funduðu
háttsettir stjórnmálamenn Banda-
ríkjanna og Kína í Anchorage, ríkis-
höfuðborg Alaska. Þetta eru fyrstu
fundahöld milli ríkjanna síðan Joe
Biden tók við embætti forseta.
Strax frá upphafi var andrúms-
loftið spennuþrungið. Kínverskir
ríkismiðlar saka Bandaríkjamenn
um að hafa frá byrjun fundarins
hagað sér með ósæmilegum hætti
og Kínverjar svarað í sömu mynt.
Anthony Blinken, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, hóf fundinn
á því að lýsa áhyggjum af meintum
mannréttindabrotum Kínverja.
Bandalagsríki þeirra, til að mynda
Japan og Suður-Kórea, óttuðust
aukin ítök Kína í Asíu og vaxandi
valdboðsstefnu Kínverja. Auk þess
hefði aukin harka færst í samskipti
Kína við nágrannaríki sín.
Yang Jiechi, æðsti diplómati Kín-
verja, svaraði fyrir þessar ásakanir í
fimmtán mínútna ræðu sem virðist
hafa farið illa í Blinken, samkvæmt
The Guardian. Hann svaraði fyrir
fullyrðingar Blinkens um meint
mannréttindabrot Kínverja og
sagðist vona að Bandaríkin „tækju
sig á í mannréttindamálum. Stað-
reyndin er sú að það eru mörg
vandamál tengd mannréttindum í
Bandaríkjunum, sem þau hafa sjálf
viðurkennt.“
Mannréttindamál í Bandaríkj-
unum hefðu lengið verið í ólestri,
þau hefðu ekki einungis sprottið
fram með hreyfingum á borð við
Black Lives Matter. Yang sagði að
það væri óverjandi að Bandaríkja-
menn reyndu að troða sínum hug-
myndum um mannréttindi upp
á önnur fullvalda ríki, á meðan
ástandið væri eins og það er í
Bandaríkjunum.
Fundurinn átti að vera tækifæri
fyrir ríkin tvö til að meta aðstæður
í viðskiptamálum, mannréttinda-
brot Kína í Tíbet og Xinjiang, auk
málefna Taívan. Einnig stóð til að
ræða aðgerðir Kína í Suður-Kína-
hafi og COVID-19 faraldurinn.
thorvardur@frettabladi.is
Bandaríkin og Kína
munnhöggvast á ný
Hart var tekist á um meint mannréttindabrot Kínverja á fundi Bandaríkjanna
og Kína í Alaska í gær, þeim fyrsta síðan Joe Biden tók við embætti. Ásakanir
um slík brot gengu á víxl og litlu var áorkað til frekara samstarfs ríkjanna.
Það andaði köldu á fundi Bandaríkjanna og Kína í Alaska. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
2 0 . M A R S 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð