Fréttablaðið - 20.03.2021, Blaðsíða 26
Kr istján K r istjáns-son var nýf luttur til landsins þegar hann sló í gegn fyrir 30 árum með plötunni Lucky One, sem seld-
ist í bílförmum og gerði hann sem
KK að þjóðareign nánast á einni
nóttu.
KK verður 65 ára í næstu viku og
tvöföld plata með úrvali laga hans
frá upphafi tónlistarferilsins 1985
til 2000 er væntanleg. KK segir þó
algera tilviljun að Andri Freyr Við-
arsson, sem hann kynntist á flandri
þeirra um Kanada í sjónvarpsþætti
þess síðarnefnda, hafi hvatt hann
til þess að gefa út vínilplötu á sama
tíma.
„Það er engin pæling á bak við
þetta. Ekkert: Ah! Nú ertu 65 ára
þá verðum við að gera þetta … Sko,
ég veit ekki hvað það er. Hlutirnir
gerast bara. Þetta er ekkert ákveðið.
Hver planleggur einhvern feril? Eða
kannski gerir fólk það. Ég veit það
ekki,“ segir KK hugsi.
„Hlutir bara ske og í þessu til-
felli þá kom Andri Freyr með þessa
hugmynd, að ég ætti að koma með
vínilplötu. Ég hef aldrei gefið út
vínil plötu áður.“
Ha? Hvað ertu að segja?
„Nei, ég byrjaði svo seint. Ég
vildi gefa út vínil. Ég ólst upp með
vínil en ég er 35 ára þegar ég kem
með Lucky One, fyrstu plötuna
mína 1991, og þá er geisladiskurinn
mættur big time. „Það verður að
vera vínill,“ segi ég við Steinar og
Pétur Kristjáns sem gáfu þetta út.
„Nei, nei, nei,“ sögðu þeir. „Það
er algjörlega búið dæmi. Þú getur
gleymt því sko. Það er bara geisla-
diskur og kassetta.“ Kassettan lifði
síðan næstu fimm árin til þess að
hafa í bílnum.
Þannig að ég varð að lúffa fyrir
því og það er ekki fyrr en núna sem
ég kem með fyrstu breiðskífuna og
það er tvöfalt albúm með lögum
sem Andri er búinn að velja. Safn-
platan heitir einfaldlega Árin 1985–
2000 sem segir allt sem segja þarf
um lagavalið.
Ferillinn byrjar hjá mér ’85. Þá
fer ég í fyrsta skipti í stúdíó og
fyrsta lagið sem ég tek upp í stúdíói
á ævinni er á þessari plötu. Þetta
er lag eftir J.J. Cale sem heitir The
Breeze,“ segir KK, sem er með meiri
vínil í eldinum.
„Þetta ár verður svolítið magnað
sko af því ég hugsa að það verði
þrjú albúm sem ég kem út með á
þessu ári. Safnplatan kemur fyrst
og svo 16. júní kemur Lucky One
út aftur og það verða tónleikar í
Háskólabíói. Vegna þess að það eru
30 ár síðan hún var gefin út. Þetta
er platan sem ég vildi fá á vínil og
ég fæ hana þannig núna. Síðan er
ég byrjaður að taka upp fyrir nýja
plötu sem kemur í haust og verður
líka á vínil.“
Hvað er eftir ósagt?
KK er búinn að vera í sviðsljósinu í
þrjá áratugi og hefur farið í slíkan
aragrúa viðtala að fátt er ósagt, sem
setur bæði blaðamann og viðmæl-
anda í ákveðna klemmu.
Um hvað eigum við eiginlega að
tala?
„Akkúrat. Þess vegna reyni ég
að vera sem minnst í viðtölum.
Ég meina, hvað er hægt að segja
meira? En svo er þetta bara vinna,
sko. Andri Freyr og strákarnir eru
búnir að hafa svolítið fyrir þessu og
vilja selja plötuna svo þetta fari ekki
í mínus. Og ég er bara með. Þetta er
partur af því, að plögga. Við reynum
náttúrlega bara að gera skemmtilegt
viðtal.
Mér hefur bara alltaf fundist það
vera svolítið hlægilegt að ætla sér
að vera frægur á Íslandi,“ segir KK
og bætir við að hann telji sig ekki
heimsfrægan á Íslandi en er með-
vitaður um að hann er þekktur.
Eftirsótt, annarlegt ástand
„Ég er mjög gæfusamur að vera þar
og það eru allir voða góðir við mig.
Kannski væru þeir ekki svona góðir
við mig ef ég væri ekki frægur, svo ég
fæ ábyggilega að njóta þess að ég sé
frægur án þess að vita af því. Konan
mín segir það allaveganna og að ég
haldi að það séu bara allir svona
almennilegir alltaf. Það er víst tóm
vitleysa,“ segir KK og hlær sínum
milda hlátri.
Lögin á safnplötunni eru frá ára-
bilinu 1985 til 2000 þannig að þú
verður þá væntanlega edrú einhvers
staðar á þessu tímabili?
„Mér hefur alveg gjörsamlega
mistekist að vera edrú. Þetta verður
fyrirsögnin,“ segir KK og hlær. „Mér
hefur gjörsamlega mistekist að vera
edrú, en ég hef ekki drukkið brenni-
vín eða notað nein efni til þess að
breyta hugarástandi mínu í 25 ár,“
segir KK og bætir við að vitaskuld
verði breyting á honum sem tónlist-
armanni þegar hann hætti að nota.
„Já, sem betur fer er maður í alls
konar lægðum og hæðum, sem
kemur fram í tónlistinni. Hvort
sem maður er í neyslu eða ekki. Ég
hélt sko áður en þetta neysluástand
hætti hjá mér að ég gæti ekki verið
án þess til þess að lyfta mér upp.
Þú veist, til þess að komast í
annarlegt ástand sem ég sóttist svo-
lítið eftir. En síðan hef ég komist að
því, eftir að ég hætti að nota, að ég
er alltaf í þessu annarlega ástandi.
Og þetta annarlega ástand sem við
erum að leita að er eitthvað sem
heitir gleði. Ekki satt?“
Þrúgur reiðinnar
„Og með því að beita ákveðnum
aðferðum sem mér var kennt að
gera, þá hefur mér tekist að vera í
þessu annarlega ástandi. Ef ég er
ekki í þessu gleðiástandi þá hef ég
bara sjálfum mér um að kenna. Sem
eru góðar fréttir vegna þess að þá er
það ég sem get lagað það. En ef það
er einhverjum öðrum að kenna þá
get ég ekki lagað það.“
Það er samt rosalega alkóhól-
íserað að kenna alltaf einhverjum
öðrum um. Það er ferlega auðvelt
þegar maður er að nota. Minnir mig.
„Já. Það er þægilegt ef það er
öðrum að kenna, en það hefur ekk-
ert bara með alkóhólisma að gera.
Heldur bara allt,“ segir KK og hættir
sér út á slóðir stjórnlausu reiðinnar
á samfélagsmiðlum.
„Þú getur bara tekið pólitíkina
sem við erum að tala um í dag. Hvað
það er auðvelt fyrir okkur að gagn-
rýna hægri og vinstri á Facebook
eða þessum netvettvangi. Þá er
hægt að deila á fólk en eftir stendur
spurningin: Hvað er ég að gera?
Ef ég er að hella mér yfir aðra
og draga fram það neikvæða í fari
þeirra, er ég þá ekki bara að hefja
sjálfan mig upp? Er það ekki tilgang-
urinn? Kannski. Stundum. Vil ég
gera það? Viljum við vera egóistar?
Sjálfumglaðir? Við viljum kannski
fara í búning sem lætur okkur líta
vel út. En er það þá ekki óþægileg
tilfinning að vera í þessum búningi
og vita að þú eigir það ekki skilið?
Og maður þarf ekkert að vera fullur
til þess sko.“
Vítahringur óheiðarleikans
„Og erum við þá ekki orðnir óheið-
arlegir? Og ef við erum óheiðar-
legir þá fer okkur að líða illa og svo
viljum við ekki viðurkenna að við
séum óheiðarlegir og þá þurfum
KK siglir glaður á Æðruleysinu
KK er að verða 65 ára. Hann er löngu hættur að nota hugbreytandi efni en segist þó aldrei hafa tekist að vera
edrú. Hans annarlega ástand er gleðin sem hann finnur þegar hann siglir Æðruleysinu og fiskarnir brosa til hans.
„Það er engin pæling á bak við þetta. Ekkert: Ah! Nú ertu 65 ára, þá við verðum að gera þetta…,“ segir KK um fyrstu vínilplötuna sína, sem kemur út í kringum afmælið hans. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÞAÐ ER ENGIN PÆLING Á
BAK VIÐ ÞETTA. EKKERT:
AH! NÚ ERTU 65 ÁRA ÞÁ
VERÐUM VIÐ AÐ GERA
ÞETTA …
Þórarinn
Þórarinsson
thorarinn@frettabladid.is
2 0 . M A R S 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð