Fréttablaðið - 20.03.2021, Blaðsíða 78
„Við þurfum auðvitað
ekkert að leysa þessa
eldspýtnaþraut,“
sagði Kata. „Róbert er
örugglega löngu búinn
að því.“ Róbert varð hálf
kindarlegur á svipinn
við þessi orð. „Skrifaðir
þú ekki líka bók um
eldspýtnaþrautir þarna
um árið,“ bætti hún við
glottandi. „Svona nú,“
sagði Lísaloppa. „Hættu
að stríða Róberti, hann
getur reynt að leysa
þessa þraut eins og við.“
„Er það ekki Róbert?“
bætti hún við.
„Jú, jú,“ sagði Róbert.
„Getum við ekki bara öll
reynt að leysa hana?“
Það var langt síðan það
hafði verið svona mikill
sáttatónn í rödd Róberts.
Konráð
á ferð og flugi
og félagar
446
Getur þú
leyst þessa
eldspýtna-
þraut?
?
?
?
„Jæja,“ sagði
Lísaloppa. „Svona er
þrautin.“
„Getur þú tekið burtu
tvær eldspýtur svo
eftir verði bara tveir
ferningar?“
Lausn á gátunni
Ef tekin er burtu eldspýtan í miðjunni í efri röðinni og eldspýtan
í miðjunni í röðinni hægra megin, verða til tveir rétthyrndir
ferhyrningar. Allar ytri eldspýturnar mynda einn og í
horninu niðri vinstra megin verður til annar minni.?
Af hverju fór Mikki
mús út í geiminn?
Hann var að leita að Plútó.
Hvað sagði veggurinn við hinn
vegginn?
Hittumst á horninu!
Getur kengúra hoppað hærra en
Hallgrímskirkja?
Auðvitað, Hallgrímskirkja getur
ekki hoppað.
Hvernig segir maður þúsundkall í
fleirtölu?
Þið sundkallar.
Hvað gerði kúrekinn
þegar hann datt af
baki?
Hann fór aftur-á-bak.
Hvert er uppáhalds-
súkkulaði geimfara?
Mars.
Í suðurhlíðum Himalajafjalla býr
lítið, rauðbrúnt dýr sem kallað
er rauða panda eða litla panda.
Latneskt heiti þess er: ailurus
fulg ens. Þó að það sé kallað panda
þá er það ekkert skylt svarthvítu
pöndunni sem við köllum panda-
björn. En hún á það sameiginlegt
með henni að vera í útrýmingar-
hættu, enda er feldur hennar
eftirsóttur og skottið ekki síður.
Það er mikið notað í húfur.
Rauða pandan er ekki einu sinni
bjarndýr, heldur af sinni eigin ætt-
kvísl sem er skyld þvottabjörnum,
skunkum og hreysiköttum.
Pönduheitið má rekja til nepalska
orðsins poonya, sem
þýðir einfaldlega
bambus-
æta
því
talið er að tveir þriðju af fæðu
rauðu pöndu séu bambussprotar.
Hún gæðir sér líka á ávöxtum,
eggjum, fuglum, skordýrum og
litlum spendýrum.
Rauða panda getur orðið 1,2 m
að lengd, með skottinu, og þrjú
til fimm kíló að þyngd. Hún er
flokkuð með svokölluðum lifandi
steingervingum, í þann hóp falla
þau dýr sem hafa lítið eða ekkert
breyst í milljónir ára.
Heimild/Íslenska alfræðiorða-
bókin o.fl.
Rauða pandan
Elín Magna innan um uppáhaldsleikföngin, bangsa og dýr. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Elín Magna Skúladóttir er átta ára.
Skólastjórinn hennar býr rétt hjá
henni. Hvernig finnst henni það?
Það er ágætt. Einu sinni vorum við
Ásta vinkona á trampólíni í garð
inum og hnéð á mér fór í vörina og
aðra framtönnina, ég meiddi mig
og mér varð rosa kalt. Mamma og
pabbi voru ekki heima, þau voru
að kaupa í matinn, en Sigga skóla
stjóri heyrði öskrin í mér og kom og
huggaði mig, hún fann klaka og setti
við sárið.
Hver finnst þér skemmtilegasta
námsgreinin í skólanum? Eigin
lega stærðfræðin.
Lærið þið ljóð í skólanum? Við
skrifum ljóð og svo syngjum við
ljóð og vísur í morgunsöngnum.
Núna geta bara nokkrir bekkir í
einu sungið á sal þar sem píanóið
er, þeir skiptast á og hinir syngja í
skólastofunum, þá er ljóðið skrifað
á töfluna.
Hvað langar þig að gera þegar þú
verður stór? Veit ekki. Kannski
langar mig að verða skautakennari
því ég æfi á skautum og finnst það
skemmtilegt. Á laugardögum þarf
ég að vakna kortér í sjö því æfing
byrjar hálf átta.
Áttu f leiri áhugamál? Ég æfi líka
á trommur. Ef ég held áfram fæ ég
örugglega trommur næsta vetur og
þá fæ ég kannski að spila í Skóla
hljómsveit Austurbæjar. Sumir æfa
körfubolta í skólanum, ég var líka í
honum en hætti.
Kanntu að prjóna? Bara að putta
prjóna.
Leikur þú þér með dúkkur? Ég er
ekki mjög mikið fyrir dúkkur en ég
á marga bangsa og líka dýr sem mér
finnst gaman að leika með. Ég er
stundum kölluð hundahvíslari því
ég elska hunda. Svo eigum við stóra
kisu sem heitir Ronja. Hún er ekki
mikið fyrir að leika en stundum er
hún í stuði.
Hefurðu farið til útlanda? Ég hef
komið til Danmerkur, Þýskalands
og Svíþjóðar. Við bjuggum í tvö ár í
Danmörku. Fluttum út þegar ég var
að verða fjögurra ára og komum til
baka þegar ég var að verða sjö.
Áttu þá vini í Danmörku? Já,
við förum á hverju sumri til Dan
merkur að heilsa upp á þá, síðast
þegar ég fór var skóli þar enn þá og
ég fór í heimsókn í bekkinn minn.
Við förum örugglega í sumar ef það
verður leyft út af COVID.
Er stundum kölluð
hundahvíslari
DýriðGlettur
ÉG ER EKKI MJÖG
MIKIÐ FYRIR DÚKKUR
EN ÉG Á MARGA BANGSA OG
LÍKA DÝR SEM MÉR FINNST
GAMAN AÐ LEIKA MEÐ.
2 0 . M A R S 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R40 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
KRAKKAR