Fréttablaðið - 20.03.2021, Blaðsíða 4
LAGERSALA
LÍN DESIGN
FLATAHRAUNI 31 HAFNARFIRÐI
Á MÓTI KAPLAKRIKA
ALLT AÐ
80%
AFSLÁTTUR
LAUGARDAG KL. 11-17
SUNNUDAG KL. 12-17
Hvetja punghafa og punglausa til sjálfsskoðunar
SAMFÉLAG „Ég var upprunalega að
leita að skemmu þar sem ég gæti
unnið með sjávarþang,“ segir Dana
Marlin, nýr eigandi Óðinshúss á
Eyrarbakka. „Þegar ég uppgötvaði
Óðinshús fékk ég hins vegar alls
konar hugmyndir og datt í hug að
opna kaffihús með smá þangívafi.“
Óðinshús var byggt árið 1913.
Sambyggt húsinu er gamla Rafstöð-
in sem var í seinni tíð meðal ann-
ars notuð af slökkviliðinu. Húsin,
sem voru veigamikil í útgerðar-
sögu Eyrarbakka, eru bæði friðuð
og voru sett á sölu árið 2019.
Dana, sem er maltneskur að upp-
runa, kom fyrst til Íslands fyrir um
áratug. Hann hefur starfað hér sem
efnafræðingur en vinnur nú hörð-
um höndum að því að koma hús-
inu í lag þar sem hann hyggst opna
kaffihús og bar. „Þetta er mikil
vinna en mig langar að endurreisa
húsið í sinni upprunalegu mynd.“
Þá hefur Dana biðlað til íbúa á
Eyrarbakka um að leggja sér lið
með því að gefa sér timbur til fram-
kvæmda ef þeir eiga það aflögu.
„Ég var að keyra hér um daginn
þegar ég rak augun í timburhrúgu
sem lá í vegkantinum,“ segir hann.
„Mér datt í hug að ef íbúar Eyrar-
bakka myndu hjálpa til við að
leggja fram timbur yrði samfélags-
andi verkefnisins ef til vill sterkari.“
Í Óðinshúsi er rúmgóður kjallari
sem Dana hyggst nýta til að þurrka
þangið en hugmyndin er að selja
gestum það síðan sem matvöru og
krydd. Hugmyndina fékk Dana á
ferðum sínum um Falklandseyjar.
„Ég var að sigla um Lófóten-
eyjar í Noregi þegar ég hitti tvær
konur sem ráku fyrirtæki sem seldi
sjávarþang, mestmegnis söl,“ segir
hann. „Sjávarþang er á mikilli upp-
leið í heiminum. Það hefur verið
nýtt í matargerð í Austurlöndum
í margar aldir en hefur nýverið
verið að sækja í sig veðrið á Vestur-
löndum.“
Enn eru ekki allar hugmyndir
Dana um Óðinshús upptaldar en
hann stefnir líka á að opna og reka
lítið brugghús í Rafstöðinni. „Hér
var áður bruggsmiðja sem hefur
verið lögð af,“ segir hann. „Ef til
vill gæti verið gaman að opna lítið
brugghús, ekki til að selja í vínbúðir
landsins heldur bara hér í þorpinu.
Mig langar að brugga bjór sem fang-
ar bragðið af gömlu dögum Eyrar-
bakka og fólkinu sem vann hér og
bjó.“ arnartomas@frettabladid.is
Brugg og kaffi með
ívafi af sjávarþangi
Nýr eigandi Óðinshúss á Eyrarbakka hyggst opna þar kaffihús og brugg-
smiðju með sjávarþangsívafi. Hann vill endurreisa húsið í upprunalegri
mynd og vonast til að þorpsbúar ljái verkefninu samfélagslegan anda.
Óðinshús er friðað en það var byggt árið 1913. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Sjávarþang er á
mikilli uppleið í
heiminum. Það hefur verið
nýtt í matargerð í Austur-
löndum í margar aldir en
hefur nýverið verið að sækja
í sig veðrið á Vesturlöndum.
Dana Marlin,
efnafræðingur
Þau Guðmundur Helgi Harðarson og Kjartan Ásbjörnsson hjá GK bakarí á Selfossi og Guðmunda Egilsdóttir frá Krabbameinsfélagi Árnessýslu,
steiktu ástarpunga til styrktar félaginu í gær. Bakararnir hvetja alla, punghafa sem punglausa, til sjálfsskoðunar og að skoða síðuna karlaklefinn.is
þar sem finna má fræðsluefni um karla og krabbamein. Átta pungar kosta þúsundkall sem rennur óskertur til málefnisins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Töluvert er um veikindi á leikskólum
borgarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HEILBRIGÐISMÁL Alls hafa 114
börn greinst með RS-vírusinn það
sem af er ári. Í byrjun mánaðarins
greindust 32 börn með vírusinn en
þau hafa verið í kringum tíu síðan
tilslakanir voru kynntar í byrjun
febrúar. Í byrjun árs voru yfirleitt
eitt til þrjú börn að greinast. Þetta
kemur fram í svari Landlæknis-
embættisins við fyrirspurn Frétta-
blaðsins.
Töluvert hefur borið á veikindum
leikskólabarna að undanförnu
og dæmi um að deildir séu afar
fámennar um þessar mundir.
Ekkert barn hefur greinst með
inflúensu það sem af er ári en þret-
tán börn hafa greinst með nóró-
veiruna. – bb
RS-vírusinn í
sókn á árinu
LANDBÚNAÐUR Gámhleri gaf sig
vegna gasmyndunar á fimmtudag
þegar verið var að f lytja riðusmit-
aðan úrgang til brennslu í Kölku á
Suðurnesjum. Uppgötvaðist þetta
skammt frá Hvalfjarðargöngum.
Í tilkynningu Matvælastofnunar
segir að ástand gámsins hafi tvisvar
verið kannað á leiðinni. Ekki var
meira magn af hræjum í gámnum
en almennt tíðkast.
Flutningurinn var samstundis
stöðvaður og ástand gáma á gáma-
þjónustusvæði Akraness kannað.
Hluta farmsins var umhlaðið áður
en f lutningur hófst að nýju en þá
helltist blóð og annar vökvi úr farm-
inum. Þrif og sótthreinsun er lokið
og jarðvegsskipti munu fara fram
eins og kostur er. – bb
Gámur gaf sig
vegna riðugass
Blóð og annar vökvi helltist niður
við umhleðslu gámsins á Akranesi.
STJÓRNMÁL Gunnar Tryggvason,
aðstoðarhafnarstjóri Faxaf lóa-
hafna íhugar að gefa kost á sér til
forystu á lista Samfylkingarinnar
í Norðvesturkjördæmi fyrir kom-
andi alþingiskosningar. „Jú það hafa
margir skorað á mig að gefa kost á
mér og ég hef fallist á að íhuga það
en mun taka mér þann frest sem ég
hef til að gera þetta upp við mig,“
segir Gunnar.
Gunnar er Vestfirðingur og er
verkfræðingur að mennt. Hann var
aðstoðarmaður Oddnýjar Harðar-
dóttur þegar hún var fjármálaráð-
herra á árunum 2011 og 2012.
Gylfi Þór Gíslason, varðstjóri
á Vestfjörðum, tilkynnti í gær að
hann gæfi kost á sér í 1. til 2. sæti
fyrir f lokkinn í kjördæminu. Segist
hann vilja bæta kjör íbúa á lands-
byggðinni, efla löggæslu og taka á
fíkniefnaneyslu í landinu, en ekki
með afglæpavæðingu. – aá
Gunnar íhugar
framboð fyrir
Samfylkinguna
2 0 . M A R S 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð