Fréttablaðið - 20.03.2021, Blaðsíða 37
Meðal verkefna velferðarsviðs eru almenn félagsleg ráðgjöf, fjárhagsaðstoð, húsnæðismál, málefni aldraðra, félagsleg
heimaþjónusta, málefni fatlaðs fólks og málefni barna og ungmenna, þar með talin vinnsla mála samkvæmt barnaverndarlögum.
Sviðsstjóri velferðarsviðs er ráðinn af bæjarstjórn og er bæjarstjóri hans yfirmaður. Sviðsstjóri er hluti af stjórnendateymi
bæjarins.
SVIÐSSTJÓRI VELFERÐARSVIÐS
KÓPAVOGSBÆR LEITAR AÐ LEIÐTOGA
Helstu verkefni
• Dagleg yfirstjórn og samhæfing þjónustu og starfskrafta
velferðarsviðs
• Ábyrgð á stjórnun og framkvæmd velferðarþjónustu í umboði
bæjarstjórnar og velferðarráðs
• Undirbúningur mála fyrir velferðarráð og ábyrgð og eftirfylgni með
ákvörðunum ráðsins
• Forysta við þróun og innleiðingu nýrra tækifæra og úrræða í
velferðarþjónustu, ásamt mati á árangri og eftirliti
• Ábyrgð á starfs- og fjárhagsáætlun ásamt annarri áætlanagerð fyrir
velferðarsvið
• Ábyrgð á rekstri og stjórnsýslu sviðsins, þ.m.t. fjármálum og
starfsmannamálum
• Samráð við félagasamtök og aðra hagsmunaaðila um velferðarmál
• Samstarf við opinbera aðila í velferðarmálum innanlands og utan
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf á meistarastigi sem nýtist í starfi
• Leiðtogahæfileikar og farsæl stjórnunarreynsla, ásamt reynslu af því
að leiða breytingar
• Þekking og reynsla af rekstri, þjónustustarfsemi og opinberri
stjórnsýslu
• Víðtæk þekking og reynsla af velferðarmálum
• Þekking og reynsla af stefnumótunarvinnu
• Lipurð og færni í mannlegum samskiptum
• Framsýni, metnaður, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku, kunnátta í
norðurlandatungumáli kostur
Umsóknarfrestur er til og með 29. mars 2021. Nánari upplýsingar á hagvangur.is
Í stefnu Kópavogsbæjar segir að hlutverk sveitarfélagsins sé að tryggja lífsgæði íbúanna með góðri og fjölbreyttri þjónustu. Með það að
markmiði samþykkti bæjarstjórn nýverið breytingar á skipuriti bæjarins svo að rekstur og stjórnsýsla sveitarfélagsins verði enn skilvirkari.
Skipurit Kópavogs telur því fimm svið. Tvö stoðsvið; stjórnsýslusvið og fjármálasvið og þrjú fagsvið; menntasvið, velferðarsvið og
umhverfissvið.
Við leitum að öflugum forritara til starfa í hópi
reyndra sérfræðinga í Hugbúnaðarlausnum
á Upplýsingatæknisviði. Þetta er spennandi
tækifæri fyrir þá sem hafa brennandi áhuga
á að taka þátt í breytingum og takast á við
krefjandi þróunarverkefni.
„Mér finnst mikilvægt
að verkefnin séu
krefjandi – þannig
lærir maður mest“
Starf forritara í Hugbúnaðarlausnum
Nánari upplýsingar atvinna.landsbankinn.is
Inga Dögg – Lánaumsjón