Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2020, Síða 7
STÖNDUM SAMAN
GEGN RASISMA
Sumarið 2020 verður lengi
í manna minnum fyrir
margra hluta sakir og þar
hefur #blacklivesmatter
hreyfingin verið hvað
mest áberandi. Rasismi er
vandamál í öllum löndum,
öllum samfélögum og við
í hinsegin samfélaginu
erum þar ekki undanskilin.
Hér á eftir fylgja nokkrar
ábendingar fyrir hvítt
hinsegin fólk um hvernig
við getum sem best stutt
við bakið á svörtu hinsegin
fólki og BLM-hreyfingunni í
heild sinni.
Black lives matter has been
the theme heard all over
the world in the summer of
2020. Racism is a problem
in every country and every
society and we in the
rainbow communities are
not free of racism either.
Here are some tips for white
rainbow people to consider
in relation to how to support
our black community
members as well as the BLM
movement in general.
TAKTU ÁBYRGÐ Ekki fara
í vörn eða gera lítið úr
málefninu. Við þurfum öll,
hvert og eitt okkar, að taka
þátt í baráttunni og það
er í verkahring okkar sem
erum hvít að tala við annað
hvítt fólk um rasisma. Við
erum öll saman í þessari
baráttu.
TAKE RESPONSIBILITY
Do not get defensive and
dismissive, we all have our
share to do and it is our job
as white people to talk with
other white people about
racism. We are all in this
together.
LÆRÐU Lestu þér til um
kerfisbundna mismunun
og hvernig henni er
viðhaldið í samfélaginu
svo þú skiljir hvernig þú,
óafvitandi, tekur þátt í að
viðhalda henni. Það er
forsenda þess að hægt sé
að útrýma henni.
LEARN Educating oneself
on systematic oppression
and the structures which
uphold it, pave the way to
understanding how you,
unknowingly, contribute
to white supremacy. Only
then can the system be
deconstructed.
HLUSTAÐU Leitastu við
að kynna þér verk svartra
höfunda, fylgstu með
svörtum einstaklingum
á samfélagsmiðlum og
hinsegin aktívistum í þeirra
hópi. Taktu meðvitaða
ákvörðun um að styðja
við sköpun svartra,
hvort sem er í listum, á
samfélagsmiðlum eða í
viðskiptum. En það sem
mikilvægast er, hlustaðu
þegar þau tala um reynslu
sína.
LISTEN Actively seek to
recognise and follow work
by black authors, media
sources and rainbow
activists. Make a conscious
decision to support black
creators, in the arts as
well as on social media
and businesses. Most
importantly, when they
speak of their experiences,
you listen.
ÞETTA SNÝST EKKI
UM ÞIG Notaðu
forréttindastöðu þína
sem hvítur einstaklingur,
til að hjálpa, styðja við
og vernda þegar ástæða
er til en ekki einblína á
eigin afrek. Gættu þess
að hreykja þér ekki af því
að þú, hvíta manneskjan,
komir til bjargar. Ekki eigna
þér menningu svartra. Það
ætti að vera þér eðlislægt
að berjast gegn rasisma.
Ef það er ekki órjúfanlegur
hluti af lífi þínu, gættu þess
þá að vera styðjandi og
sýna virðingu.
THIS IS NOT ABOUT YOU
Use your white privilege
to help, support and
when necessary, protect.
But do not centre your
actions around your own
heroics. White saviorism
is patronising, so be
critical of your motives.
Appropriating black culture
is inappropriate. Anti-racism
should be a given, a way of
life. Until it is, be a reliable,
respectful ally.
ÞETTA KREFST
HUGREKKIS Þetta mun
verða erfitt og stundum
óþægilegt. Að taka
afstöðu gegn kúgun
minnihlutahópa er ekki
alltaf vinsælt. Ekki gleyma
að allir gera mistök og
að enginn er fullkomin
baráttumanneskja gegn
rasisma. Hafðu augu, eyru
og hjarta þitt opið, biddu
afsökunar þegar þess þarf,
taktu eitt skref til baka
þegar nauðsyn krefur
og vertu viðbúin/nn/ð
gagnrýni.
IT TAKES COURAGE It is
going to be challenging.
At times it will be
uncomfortable, frustrating
and even painful. Standing
up to oppression is not
always popular. At times,
you will fail and make
mistakes. No one is ever the
perfect activist or anti-racist.
Be ready to apologize, to
take a step back and to
take criticism. The only way
forward is to approach the
matter with humility and an
open heart.
MEÐ, EKKI Á MÓTI Bjóddu
fólki að ræða málin, taktu
vel á móti þeim og hvettu
aðra til að gera slíkt hið
sama. Það er kannski
klisja en þú þarft að vera
breytingin sem þú vilt sjá
í heiminum ef draumur
okkar um öruggan
hinsegin heim á að verða
að veruleika.
INCLUDE INSTEAD OF
EXCLUDING Invite people
into discussions and spaces,
encourage others. Give
space, do not take it. It may
be a cliche, but you need to
be the changing power you
want to see in the world,
we need to live our queer
safer space utopia into an
everyday reality