Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2020, Page 17

Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2020, Page 17
Sameiginlegt forræði samkynja para er heldur ekki endilega meginreglan í lögunum, því þó að bæði í barnalögum og hjúskaparlögum sé minnst á sameiginlegt forræði gerist það ekki ósjálfrátt að hinsegin foreldrar séu skráðir foreldrar. Hatursglæpir og -áróður Undirritaður telur að árangur Íslands í þessum flokki komi fólki hvað mest á óvart en Ísland skorar aðeins 26%, og það í flokki sem ekki þarf mikið til að uppfylla skilyrði. Á Íslandi eru einfaldlega engin lög þegar kemur að hatursglæpum gegn þeim hópum sem falla undir flokkana kynhneigð, kynvitund og/eða kyneinkenni. Það eina sem Ísland uppfyllir er hatursáróður þegar kemur að kynhneigð og kynvitund og þess ber að geta að kynvitund kom þar inn fyrir tilstilli Evrópulöggjafar. Því er margt sem þarf að bæta í málaflokknum. Fyrst og fremst þurfa íslensk stjórnvöld að setja sér metnaðarfulla stefnu til að sporna gegn hatri í hvaða formi sem er. Hatursglæpir og -áróður fer vaxandi og stjórnvöld verða að veita málaflokknum aukna athygli. Einnig þarf að uppfæra almenn hegningarlög þegar kemur að hatursáróðri og bæta þar við kyneinkennum og kyntjáningu sem og að setja ný lög er taka á hatursglæpum fyrir alla hópa hinsegin samfélagsins. Eins og er þá er lítil sem engin vernd fyrir hinsegin fólk í núgildandi lögum. Líkamleg friðhelgi og viðurkenning á skráðu kyni Það braust út mikill fögnuður þegar Alþingi samþykkti lög um kynrænt sjálfræði. Með þeim voru loksins komin almennileg heildarlög fyrir trans fólk og kynsegin fólk sem veittu þeim hópi rétt til að skrásetja kyn sitt á þann hátt er hann kaus og viðurkenndu tilvist þeirra sem falla ekki inn í kynjatvíhyggjuna með því að gefa leyfi fyrir X-skráningu í Þjóðskrá. Lög um kynrænt sjálfræði veittu fullorðnu intersex fólki vernd og sjálfsákvörðunarrétt, en því miður ekki intersex börnum undir sextán ára aldri. Því hafa þau mál verið í nefnd á vegum forsætisráðuneytisins og mun hún skila af sér niðurstöðum í ágúst. Þjóðskrá þarf einnig að kynna X-merktu skráninguna núna í desember og allar opinberar stofnanir sem safna kynskráningum á einhvern máta þurfa að bjóða upp á þriðju kynskráninguna. Samtökin ’78 og Trans Ísland hafa útbúið leiðbeiningar fyrir stofnanir og fyrirtæki er safna kynskráningum og þær má finna á vef Samtakanna ’78. Það sem þarf að gerast er að Alþingi samþykki breytingar nefndarinnar sem nú er að störfum og veiti öllu intersex fólki, óháð aldri, líkamlega friðhelgi. Borgaraleg afnot af rými og landi Í þessum flokki fær Ísland fullt hús stiga. Á Íslandi má boða til fjöldafunda er varða málefni hinsegin fólks, hér eru hinsegin aktívistar ekki í hættu, engar hömlur eru á starfsemi frjálsra félagasamtaka er tengjast hinsegin málefnum og ríkisvaldið hindrar ekki samtök hinsegin fólks í að fjármagna sig heldur þvert á móti tekur þátt í fjármögnun þeirra. Eins er ekkert sem bannar að hinsegin fólk tjái sig eða að fjallað sé um það, t.d. í fjölmiðlum. Alþjóðleg vernd Í fyrsta skipti í ár fékk Ísland einhvern punkt í þessum málaflokki en það var vegna laga um kynrænt sjálfræði og að hælisleitendur geta nú sótt um breytingu á kynskráningu og nafni. Annars er fátt annað hér að finna í málaflokknum. Ekki er litið til kynhneigðar, kynvitundar eða kyneinkenna þeirra einstaklinga sem leita að alþjóðlegri vernd á Íslandi og ekki er minnst einu orði á hinsegin fólk í útlendingalögum, ekki einu sinni þar sem fjallað er um viðkvæma hópa. Þrátt fyrir að í greinargerð frumvarpsdraga útlendingalaga mætti finna eitthvað um hinsegin fólk þá rataði það ekki inn í lögin. Lögskýringartexti er einfaldlega ekki lög og sérstaklega ekki þegar lögunum er ekki beitt á þann hátt sem lögskýringartexti mælti fyrir um eða gaf vísbendingu um. Í þessum flokki þarf að gera stórvægilegar breytingar, viðurkenna að hinsegin fólk sé vissulega í viðkvæmum hópi og setja hér stefnu til framtíðar í útlendingamálum. Lög fyrir hver? En af hverju er svo mikilvægt að nefna hinsegin fólk eða hinseginleika, t.d. kynvitund, kynhneigð og kyneinkenni, í lögum? Af hverju á að setja sér lög um hinsegin fólk? Vegna þess að innan hinsegin samfélagsins má finna mjög jaðarsetta hópa sem þarf að vernda með lögum. Hinsegin fólk er berskjaldaðara en aðrir þegar kemur að fordómum, ofbeldi og annars konar mismunun. Velferðarríki sem kennir sig við jöfnuð og jafnrétti skal setja sér metnaðarfulla löggjöf er verndar þau sem eru „á skjön“ eða ekki „í norminu“. Hinsegin fólk hefur barist ötullega fyrir réttindum sínum og þó að margt hafi áunnist á síðustu árum, sérstaklega þegar kemur að kynhneigð, þá er fullu jafnrétti ekki náð fyrr en öllum hópum hinsegin samfélagsins er tryggður réttur. Það er þunglamalegt og erfitt að setja lög en það er mögulegt að taka þau af okkur með einu pennastriki. Því hefur það aldrei verið jafn mikilvægt að hinsegin fólk standi með hvert öðru og þrýsti á um metnaðarfyllri löggjöf fyrir okkur öll. Gleymum því ekki að á meðan aðeins 54% réttindum er náð þá eigum við eftir 46% af sjálfsögðum réttindum. 46% misrétti. Frekari upplýsingar Regnbogakort ILGA-Europe er opinbert á vefsíðunni rainbow-europe.org. Samtökin ’78 vinna að því að þýða Regnbogakortið á íslensku og verður það opinbert á vef Samtakanna ’78 í ágúst. Ef þú, lesandi góður, vilt leggja okkur lið þá minnum við á sjálfboðaliðaverkefnin okkar og að hafa samband við okkur. Næstu skref eru stór og það tekur á að fylla upp í þessi 46%. Þú getur orðið að liði. ÖRVIÐTAL Nafn, fornafn, aldur Margrét Nilsdóttir, hann/ hán/hún, 41 árs. Hvenær fórstu fyrst í gleðigöngu? Árið 2016. Hefur þú farið í gleðigöngu annars staðar en á Íslandi? Nei, ekki ennþá en það er svo sannarlega á stefnuskránni að prófa það. Hver er þín uppáhaldsminning tengd Gleðigöngunni og hvaða ár var það? Ég fann fyrir alveg stórkostlegri tilfinningu í göngunni í fyrra, innilegum samhug og einingu og mér fannst ég tilheyra einhverju stórkostlegu. Ég var eiginlega í hálfgerðri gleðivímu alla leiðina. Hvers vegna gengur þú? Ég geng til að minna sjálfa mig og aðra á að enginn á að skammast sín fyrir hneigðir sínar eða kyngervi og að við eigum öll að styðja við hvert annað. 17

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.