Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2020, Síða 23

Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2020, Síða 23
ekki íslensku mun samtalið ekki endast lengi, ég lofa. Viðbrögð Þessi grein er ekki fyrsta tilraun mín til að koma þessum málum á framfæri. Ég hef verið frekar hreinskilinn um hvernig það er að vera svartur hommi og lifa á mótum þessara tveggja sjálfsmynda. Þó að margir hafi tekið vel á móti mér og hrósað mér fyrir að koma fram og segja frá minni upplifun hafa líka margir gagnrýnt mig. Við þessu má búast þar sem ekki er hægt að gera alla ánægða en það er samt erfitt þegar verið er að draga úr eða jafnvel afneita upplifun minni sem svartur samkynhneigður maður. Slíkt er ákveðin tegund af gaslýsingu eða gaslighting. Ég skil að það getur verið mikilvægt að koma sjónarhorni hvítra homma á framfæri í þessari umræðu en það má gera án þess að gera lítið úr umkvörtunum okkar. Slík nálgun á þessi málefni er óviðeigandi vegna þess að ekki er tekið tillit til þess að hvítt fólk er almennt í forréttindastöðu í vestræna heiminum og þar af leiðandi er það ekki í stöðu til að skilgreina hvað sé og sé ekki fordæmafull hegðun. Þessi skilaboð fékk ég í gegnum app frá íslenskum manni en ég hafði komið því skýrt á framfæri að ég væri íslenskumælandi. ÖRVIÐTAL Nafn, fornafn Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson, hann Hvenær fórstu fyrst í gleðigöngu? 2009. Hefur þú farið í gleðigöngu annars staðar en á Íslandi? Já, í Kaupmannahöfn, Aarhus og Barcelona. Hver er þín uppáhaldsminning tengd Gleðigöngunni og hvaða ár var það? 2015 þegar stjórn Hinsegin daga, sem ég var þá hluti af, gekk í fyrsta skipti í göngunni. Ég og Gunnlaugur Bragi blönduðum pinnahælum, glimmerpilsum og buxum saman við kjólföt. Við höfðum aldrei gengið á hælum áður og vorum ekki lítið fegnir að sjá glitta í Arnarhól. Skórnir fengu svo að fjúka við fyrsta tækifæri. Á meðan göngunni stóð heilsaði mér sonur vinkonu minnar af miklum ákafa en hann vill stundum fara í kjól í leikskólann. Gleðin sem frá honum skein við að sjá einhvern annan strák gera slíkt hið sama var ómetanleg. Hvers vegna gengur þú? Ég geng því það er ennþá verið að leggja hinsegin ungmenni í einelti og hinsegin fólk fær ennþá hnút í magann við tilhugsunina um að koma út úr skápnum. Ég geng einnig stoltur við tilhugsunina um allan þann árangur sem hefur náðst og þá staðreynd að nú sé stafrækt hinsegin félagsmiðstöð fyrir ungmenni. Von fyrir framtíðina Þótt ég hafi fengið viðbjóðslega meðferð frá hvítum íslenskum hommum er ég samt vongóður. Margir hvítir hommar á þessu landi hafa komið vel fram við mig og þeir eru smátt og smátt að læra um kynþáttamál, sérstaklega innan okkar samfélags. En það þarf ennþá að tækla ákveðna hluti betur og takast á við þau vandamál sem kynþáttur veldur meðal homma. Hér eru bara nokkur dæmi: – Hlustaðu á upplifanir annarra. Mikilvægt er að viðurkenna að ef þú ert hvítur getur þú ekki samsamað þig með upplifunum homma af öðrum kynþáttum. – Ekki láta staðalímyndir stýra hugmyndum þínum. Viðurkenndu að við erum líka manneskjur með okkar eigin persónueinkenni. Það er mikilvægt að átta sig á að svartir menn eru ekki allir „thugs“, asískir menn eru ekki allir undirgefnir, o.s.frv. – Lærðu um áhrif homma af lituðum kynþætti á homma víða um heiminn. Tónlist, dansstílar, orðaforði og ýmislegt fleira sem margir hommar líta á sem hluta af „hommamenningu“ á rætur að rekja til menningar Bandaríkjamanna af afrískum uppruna, til dæmis. Þetta er mikilvægt að muna vegna þess að það kemur í veg fyrir að gert sé lítið úr hommum af lituðum kynþætti. – Áttaðu þig á því að þú getur líka verið með fordóma. Margoft hef ég heyrt homma segja að hann geti ekki verið rasisti eða hugsað á rasískan hátt vegna þess að hann sé sjálfur í jaðarsettum hópi eða vegna þess að hann á svartan vin. Ég skil mjög vel að maður vilji ekki líta á sjálfan sig sem fordómafullan en ef maður vill breytingar af einhverju tagi, hvort sem þær eru að stöðva rasisma eða stöðva ásakanir gagnvart þér um rasisma, er lykilatriði að maður taki mark á hugsun og viðhorfum sem halda fordómafullum hugmyndum á lofti. Að lokum verð ég að segja að ég hef skemmt mér ofboðslega vel innan hommasamfélagsins hér á landi. Ég hef eignast marga vini hér sem eru mér nákomnir og kærir en hér er líka margt sem má bæta. Ég hlakka til að sjá hvernig allt breytist í framtíðinni og vona að fjölbreytileika hommasamfélagsins verði fagnað frekar en hann þaggaður niður. 23
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.