Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2020, Page 55

Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2020, Page 55
Föstudagskvöldið 22. september 2017 var spenna og eftirvænting í loftinu í úthverfi Kaíró, höfuðborgar Egyptalands, þar sem 35 þúsund manns höfðu safnast saman undir berum himni til að berja augum eina frægustu rokkhljómsveit Arabaheimsins: Mashrou’ Leila. Líbönsku fjórmenningarnir í Mashrou’ Leila hafa starfað saman frá 2008 og á síðustu árum vakið eftirtekt um gervallan Arabaheiminn sem og utan hans fyrir grípandi, dansvæna tónlist sem sker sig úr í annars nokkuð einsleitum heimi arabískrar dægurtónlistar. Þeir þykja fremstir í nýrri öldu arabískra rokkara. En sveitin hefur einnig vakið athygli — jákvæða og neikvæða — fyrir beinskeytta texta sem taka á erfiðum samfélagsmálum: spillingu, fátækt, ofríki yfirvalda og réttindum kvenna og hinsegin fólks. Söngvara Mashrou’ Leila, Hamed Sinno, hafa einhverjir líkt við Freddie Mercury, ekki aðeins vegna sönghæfileika hans og þess að hann skartar jafnan yfirvaraskeggi — heldur er Sinno hinsegin og talar opinskátt um það, einn sárafárra frægðarmenna í Arabaheiminum sem gerist svo djarfur. Það hefur ekki verið bandinu átakalaust. Þeir eru umdeildir víðast hvar í íhaldssömum samfélögum Arabaheimsins. Árið 2016 var Mashrou’ Leila til að mynda meinað að koma fram í Jórdaníu, þar sem þeir eiga skara aðdáenda, vegna andstöðu jórdanskra þingmanna við kynhneigð Sinnos. Fyrirhuguðum tónleikum á menningarhátíð í heimalandi þeirra Líbanon í ágúst 2019 var aflýst eftir mótmæli kristinna trúarleiðtoga. Á síðari árum hefur sveitin mest komið fram í Evrópu og Norður- Ameríku, þótt aðdáendurnir séu eftir sem áður flestir í Miðausturlöndum. Litadýrð og regnbogafánar Þetta föstudagskvöld í Kaíró 2017 voru tvö ár síðan Mashrou’ Leila spilaði síðast í Egyptalandi og aðdáendur tóku vel undir við frægustu lög sveitarinnar. Risaskjáir blikkuðu og útisviðið glitraði í litum og ljósum. Svo juku nokkrir ungir aðdáendur enn á litadýrðina — drógu upp regnbogafána hinsegin fólks og veifuðu yfir mannskaranum. „Þetta kvöld var töfrum líkast,“ sagði söngvarinn Sinno síðar. Tónleikunum lauk og áhorfendur héldu heim á leið, margir í gleðivímu — ekki aðeins yfir tónlistinni, heldur vegna þess að þetta var í fyrsta sinn sem þau höfðu séð regnbogafánanum veifað opinberlega í Egyptalandi. „Enginn var hræddur. Við upplifðum frelsi í eitt andartak. Við vorum að gera eitthvað sem við höfðum haldið að við gætum aldrei gert,“ sagði einn ungu fánaberanna, Ahmed Alaa, í viðtali síðar meir. Hann lýsti þessu sem einhverjum bestu mínútum lífs síns. „Við vorum eins og keisarar í okkar eigin keisaradæmi. Við vorum að sigrast á hatri. Eins og enginn gæti stöðvað okkur.“ Eflaust fór hann svo sáttur til sængur en morguninn eftir vaknaði Alaa við að myndir af honum og félögum hans með fánann á tónleikunum voru alls staðar í egypskum fjölmiðlum. Og það kom ekki til af góðu. Hundruð fangelsuð fyrir „siðspillingu“ Ólíkt ýmsum öðrum ríkjum í þessum heimshluta er samkynhneigð ekki beinlínis bönnuð með lögum í Egyptalandi. Það hefur þó aldrei reynst egypskum stjórnvöldum erfitt að ofsækja samkynhneigða, trans fólk og annað hinsegin fólk með ýmsum öðrum lagalegum leiðum. Yfirleitt bera yfirvöld fyrir sig áratuga gömul lög gegn „siðspillingu“, sem einnig hafa verið notuð til að ofsækja fólk í kynlífsvinnu. Samkvæmt skýrslu egypsku mannréttindasamtakanna Egyptian Initiative for Personal Rights (EIPR) voru 185 handtekin þar í landi og sökuð um „siðspillingu“ eða að „hvetja til siðspillingar“ á árunum 2000 til 2013 — langflest þeirra samkynhneigðir karlmenn og trans konur. Árið 2013 steypti egypski herinn, með herforingjann Abdel Fattah Al-Sisi í broddi fylkingar, fyrsta og eina lýðræðislega kjörna forseta Egyptalands, íslamistanum Mohamed Morsi, af stóli. Æ síðan hafa Al-Sisi, sem nú er forseti, og stjórn hans unnið að því að herða tök sín á egypsku samfélagi og reynt að slökkva alveg þær vonarglætur lýðræðis og mannréttinda sem kviknuðu í arabíska vorinu og mótmælunum á Tahrir- torginu í Kaíró 2011. Meðal annars hefur Al-Sisi ofsótt hinsegin fólk af auknum krafti, líklega í von um að ganga þannig í augun á íhaldssömum trúaröflum í egypsku samfélagi, sem enn syrgja fall Morsis. Í sömu skýrslu mannréttindasamtakanna 55

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.