Bændablaðið - 25.03.2021, Blaðsíða 48
Bændablaðið | Fimmtudagur 25. mars 202148
NYTJAR HAFSINS
Ríflega helmingur af íslenskum eldislaxi er framleiddur á norðvesturhorni landsins:
Fiskeldi hefur leitt til fjölgunar íbúa á Vestfjörðum
– Greinin hefur verið að skila ríflega 4% af heildaratvinnutekjum á svæðinu og fer stöðugt vaxandi
Fiskeldi er vaxandi atvinnugrein á
Vestfjörðum og miklu skiptir fyrir
samfélag og atvinnulíf svæðisins að
fiskeldi verði sjálfbær og kröftug
atvinnugrein. Til að meta stöðuna
lét Fjórðungssamband Vestfirðinga
(FV) og Vestfjarðastofa KPMG
gera skýrslu sem nú hefur verið
birt undir heitinu Greining á áhrif-
um fiskeldis á Vestfjörðum.
Helstu niðurstöður greiningar
KPMG eru að íbúum hefur fjölgað
síðan 2016 þar sem fiskeldi er komið
vel af stað en þó er fjölgun íbúa ekki
jafn mikil og væntingar voru um í
fyrri skýrslu sem gefin var út árið
2017.
Ríflega helmingur af íslenskum
eldislaxi framleiddur á
Vestfjörðum
Hjá tveimur stærstu fyrirtækjunum í
fiskeldi á Vestfjörðum störfuðu 150
manns árið 2019 og atvinnutekjur
vegna eldis námu 4,2% af heildar-at-
vinnutekjum á svæðinu 2018, sem
eru nýjustu tölur. Ríflega helmingur
af þeim eldislaxi sem framleiddur var
á Íslandi árið 2020 var framleiddur
á Vestfjörðum.
Til að meta áhrif af fiskeldi á
Vestfirði næstu árin er í skýrslunni
leitast við að meta fjölda starfa,
fjölda íbúa sem gætu byggt afkomu
sína að einhverju leyti á fiskeldi
og áætlað söluverðmæti afurða.
Upplýsingar frá Noregi, Skotlandi og
Færeyjum voru hafðar til hliðsjónar
auk reynslutalna af uppbyggingunni
á Íslandi.
Áform um 65.000 tonna eldi með
lífsafkomu fyrir 1.850 manns
Árið 2019 höfðu 150 manns beina
atvinnu af fiskeldi og ef áform um
framleiðslu á hámarkslífmassa,
64.500 tonn, verða að veruleika, má
gera ráð fyrir að fjöldi beinna starfa
við fiskeldi á Vestfjörðum geti orðið
í kringum 640 störf og að um 1.850
manns gætu byggt afkomu sína á
fiskeldi beint eða óbeint.
Miðað við framleiðslu á 30.000
tonnum er það mat innlendra aðila
að stuðullinn fyrir fjölda þeirra
sem fylgja hverju starfi í fiskeldi
sé 1,8 en einnig er byggt á stuðl-
um frá Noregi og Írlandi. Í fyrri
skýrslum Byggðastofnunar og
Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða um
hagræn áhrif af laxeldisuppbyggingu
á Vestfjörðum var gert ráð fyrir að
hverju stöðugildi fylgdi að jafnaði
2,4 íbúar.
51.000 tonn skila
2,2 milljörðum króna í skatta
Áætlað árlegt skattspor fiskeldis á
Vestfjörðum er áætlað, miðað við
51 þúsund tonna framleiðslu, 2,2
milljarðar króna án þess að tekið
sé tillit til tekjuskatts af hagnaði
fyrirtækja. Rík áhersla hefur
verið lögð á af hálfu sveitarfélaga
á Vestfjörðum að tekjur vegna
fiskeldis skili sér til svæðisins í formi
uppbyggingar innviða.
Í skýrslunni er gerður
samanburður á ívilnunum vegna
nýfjárfestinga sem ætlað er að efla
atvinnu- og byggðaþróun á ýmsum
svæðum á landinu. Athygli vekur að
einu ívilnanir ríkisins sem rekja má
beint til fiskeldis eru yfirstandandi
hafnarframkvæmdir á Bíldudal þar
sem framlag ríkisins eru 265 milljónir
króna. Engar aðrar ívilnanir hafa
verið veittar vegna þeirrar gríðarlega
umfangsmiklu uppbyggingar sem
átt hefur sér stað á Vestfjörðum í
tengslum við fiskeldið þrátt fyrir
mikla þörf. Meðal mikilvægustu
verkefna á sviði innviða eru að
tryggja góðar samgöngur innan
atvinnusóknarsvæða.
Framtíðarsýn í fiskeldi
Verkefnið „Framtíðarsýn í fiskeldi“
er áhersluverkefni sóknaráætlunar
Vestfjarða og er einnig styrkt úr
byggðaáætlun en skýrsla KPMG
í heild sinni er aðgengileg á síðu
Vestfjarðastofu. /HKr.
Félagið hefur leyfi upp á 11.800 tonn af hámarkslífmassa. Framleiðsla á
árinu 2019 nam 3.300 tonnum og áætlað er að framleiðsla verði um 7.700
tonn árið 2020.
Heildarfjöldi starfsfólks var tæplega 60 á árinu 2019 og talið að afleidd
störf vegna þeirra nemi um 50 t.d. í vinnslu, pökkun og öðrum tengdum
störfum.
Arctic Fish
Félagið hefur leyfi upp á 25.200 tonn af hámarkslífmassa. Framleiðsla á
árinu 2019 nam alls 10.000 tonnum af laxi. Áætlað er að framleiðsla aukist
nokkuð á næstu árum.
Meðalfjöldi starfsmanna Arnarlax var 111 á árinu 2019. Þar af voru 100
búsettir á Vestfjörðum. Til viðbótar starfa verktakar fyrir Arnarlax við ýmis
verkefni.
Arnarlax
Niðurstaða áhættumats Hafrannsóknastofnunar á mögulegri erfðablöndun
var í árslok 2019 að takmarka framleiðslu á frjóum laxi við 71.000 tonn,
þar af 50.000 tonn á Vestfjörðum. Á fyrsta ársfjórðungi 2020 kom fram nýtt
áhættumat erfðablöndunar Hafrannsóknastofnunar sem gerir ráð fyrir að
ala megi 106.500 tonn af laxi í sjó mælt í hámarkslífmassa á landinu öllu.
Ein stærsta breytingin við endurskoðað mat er að leyfilegt verður að ala
12.000 tonn í Ísafjarðardjúpi. Jafnframt verður leyfilegt að ala 2.500 tonn í
Önundarfirði. Aukning á eldi á Vestfjörðum er með þeim hætti að eldismagn
er aukið úr 50.000 tonnum í 64.500 tonn af hámarkslífmassa.
Erfðablöndun og áhættumat
Unnið við fiskeldiskví í Dýrafirði. Mynd / HKr.