Bændablaðið - 25.03.2021, Blaðsíða 54

Bændablaðið - 25.03.2021, Blaðsíða 54
Bændablaðið | Fimmtudagur 25. mars 202154 Einn mest seldi fólksbíll landsins síðustu 15 ár er Skoda Octavia. Fyrir stuttu síðan prófaði ég nýj- ustu „Octaviuna“. Hægt er að fá sex mismunandi bíla á verði frá 5.190.000 upp í 6.190.000, en bíll- inn sem ég prófaði var ódýrasti bíllinn, en með aðeins af auka- búnaði (tæplega 500.000 króna aukabúnaður í bílnum sem próf- aður var). Kraftmikil bensínvél með rafmagnshjálp Vélin er 1,5 lítra bensínvél sem á að skila 150 hestöflum plús rafmagnshjálparmótor sem hleðst inn á í akstri og þegar bíllinn keyrir létta keyrslu drepst á vélinni og rafmagnsmótorinn heldur hraðanum. Svolítið skrítið að keyra og allt í einu drepst á mótornum en bíllinn keyrir samt áfram með dautt á mótor. Fyrst byrjaði ég að taka um 40 km í innanbæjarakstri og var eyðsla mín þá 8,2 lítrar á hundraðið. Næst var það langkeyrsla og eftir rúmlega 100 km sagði aksturstölvan að ég hefði verið að eyða 5,6 lítrum á hundraðið, en uppgefin eyðsla samkvæmt bæklingi er 5,3 miðað við blandaðan akstur. (Mjög sáttur, miðað við að mitt aksturslag var alls ekki neinn sparakstur). Mjög ánægður með hraðastillinn (Cruse Control) Að keyra bílinn er mjög gott, sætin góð og þægileg. Eitt það besta fannst mér vera brekkuaðstoðin (hill holder), en þegar maður stoppar og stígur á bremsuna þá fer brekkuaðstoðin á og fer ekki af fyrr en maður gefur í aftur, þá fara bremsurnar af (frábær hönnun á búnaði að mínu mati). Hraðastillirinn er það góður að hann nær að fylgja bílnum fyrir framan í mjög krappar beygjur og hringtorg, en sem dæmi þá stillti ég hraðastillinn á 90 eftir hringtorgið í Hveragerði og fylgdi bílnum fyrir framan alla leið að matsölustaðnum og bensínstöð AO við Sprengisand í Fossvogi. Á þessari leið kom ég aldrei við bremsupedalann því hraðastillirinn sá algjörlega um aksturinn. Það var ekki fyrr en að ég beygði inn á Bústaðaveg að enginn bíll var fyrir framan til að fylgja að ég tók hraðastillinn af með því að stíga á bremsuna. Bíllinn fullur af alls konar aukabúnaði Miðað við verð á bílnum þá hefði maður haldið að ekki væri mikið af auka- og tæknibúnaði í bílnum, en það er ekki svo, Skoda Octavia Limo e-Tec (mild hybrid) bíllinn sem var prófaður er hlaðinn öryggis- og aukabúnaði. Akreinalesari, ABS og EBD hemlunardreifing, fjarlægðar- skynjarar framan og aftan, stöð- ugleikastýring, árekstrar vörn með neyðarhemlun, veg farendaskynjari að framan (skynjar gangandi og hjólandi) og er með innbyggða neyðarhemlun. Þá er eitt sem ég hef ekki séð í nýjum fólksbíl, en það er slökkvitæki sem staðsett er undir farþegasæti frammi í bílnum. Af þægindabúnaði er m.a. 230 V. tengi í farþegarými. Þráðlaus farsímahleðsla, hiti í stýri (3 mis- munandi stillingar) og lyklalaust aðgengi. Bíllinn læsir sér ef lykill fer langt frá bíl og opnar bíl þegar lykillinn nálgast. Mikið stillanleg sæti eru í bílnum og góð loftræsting ásamt fleiru. Einn stór neikvæður og leiðinlegur takki í bílnum Fyrir mér er þessi bíll frábærlega hannaður, verðið gott og lítil elds- neytiseyðsla. Fullbúið varadekk í skottinu og farangursrýmið mjög stórt. Að sitja í aftursætunum er gott, sæti þægileg og rými fyrir fætur mikið. Miðað við hvað allt er gott við bílinn og gott að keyra bæði á mal- biki og malarvegum þá var bara eitt atriði sem ég var mjög ósáttur við. Ljósatakkinn fyrir ökuljósin er takki sem þarf að ýta á, en ekki snúa eins og í flestum bílum. Þetta fannst mér og finnst gjörsamlega vonlaus útbúnaður. Maður gat ekki með nokkru móti vitað hvaða ljós voru á bílnum nema að fara út til að gá, eða vera þannig staðsettur að maður sæi í speglun af rúðu til að sjá hvort afturljós væru á bílnum. Nánari upplýsingar um bílinn má nálgast á vefslóðinni www.skoda.is. VÉLABÁSINN Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Lengd 4.689 mm Hæð 1.468 mm Breidd 1.994 mm Helstu mál og upplýsingar Nýr vel útbúinn Skoda Octavia Skoda Octavia Limo e-Tec. Myndir HLJ Svolítill sóði á afturendann. Slökkvitæki undir farþegasætinu vinstra megin frammi í er stór öryggisplús. Stórt farangursrými og fullbúið varadekk er stór plús. Veit vel að maður á ekki að taka mynd á ferð, en hér er ég með hraðastillinn stilltan á 90 og bíllinn fylgir bílnum fyrir framan á hans ferð. Þessi ljósatakki finnst mér gjörsamlega glórulaus. Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 ALTERNATORAR gerðir dráttarvéla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.