Bændablaðið - 25.03.2021, Blaðsíða 37
Bændablaðið | Fimmtudagur 25. mars 2021 37
15% AFSLÁTTUR Í FORSÖLU
8.542 kr. pr./bréf
9.324 kr. pr./bréf
BETRI ÁRANGUR MEÐ
JOSILAC íblöndunarefni
Öll verð eru án vsk.
Verð miðast við bréf (150g)
Eykur fóðurgæði Betri inntaka Meiri meltanleiki Heilbrigðari kýr Betri afkoma
Gildir til 15. apríl
JOSILAC Ferm - 9.324 kr. - 15% afsl. 7.925 kr.
JOSILAC Classic - 8.542 kr. - 15% afsl. 7.260 kr.
Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing
og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020
eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Vegna aukinnar eftirspurnar óskum
við eftir bújörðum á söluskrá
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
STÍUGRINDUR
1,23m og 1,84m
FJÁRMÁLARÁÐGJÖF
Tökum að okkur ráðgjafaverkefni fyrir minni og
meðalstór fyrirtæki gagnvart eftirfarandi þáttum:
✓ Fjármögnun og endurfjármögnun
✓ Fjárfestingaráðgjöf
✓ Almenn rekstrarráðgjöf og viðskipta áætlanir
✓ Gegnisáhætta, gengisvarnir og áhættustýring
✓ Stjórnarseta
Yfir 25 ára reynsla af fjármálamörkuðum
Nánari upplýsingar gefur Sverrir í síma
665 8818 eða á sverrir@econsulting.is
LÍF&STARF
Sameining í A-Hún.:
Þarf að byggja
upp traust
Íbúar í Austur-Húnavatnssýslu
telja að ein helsta áskorunin við
mögulega sameiningu sveitarfé-
laganna sé að byggja upp traust
og auka trú íbúa á að hag þeirra
verði betur borgið í sameinuðu
sveitarfélagi, að þjónusta nái til
allra íbúa og að áhrif jaðarbyggða
verði tryggð. Sameining sveitar-
félaga geti ekki farið þannig fram
að eitt sveitarfélag yfirtaki önnur.
Þetta er meðal þess sem fram
kom á rafrænum íbúafundi um sam-
einingarmál sem haldin var nýverið
og fjallað er um á vef sameiningar-
verkefnisins; hunvetningur.is.
Þá var varað við því að lofa
of miklu í tengslum við mögu-
lega sameiningu, eða halda því
fram að allt verði óbreytt. Íbúar
leggja jafnframt áherslu á að ein-
kenni, menning og mannlíf hvers
samfélags verði varðveitt. Þannig
verði íbúar áfram Blönduósingar,
Skagstrendingar og Vatnsdælingar
svo dæmi sé tekið.
Möguleg sameining
skóla til umræðu
Mikil umræða var um fræðslumál
og áhersla lögð á að skólar svæðis-
ins haldi sínum sérkennum og geti
veitt þjónustu í samræmi við þarfir
á hverjum stað. Ein viðamesta
breytingatillagan sem kynnt var á
fundinum er möguleg sameining
Blönduskóla og Húnavallaskóla og
var mikil umræða um þá tillögu.
Mikil áhersla var lögð á að sam-
eining skóla, væri raunverulega
sameining skóla en ekki yfirtaka
stærri skóla á þeim minni. Afar mik-
ilvægt væri að vinna að verkefninu í
samstarfi við starfsfólk og foreldra.
Tækifæri í auknum slagkrafti
Tækifæri svæðisins eru talin liggja
í auknum slagkrafti til atvinnu-
þróunar og hagsmunagæslu gagn-
vart ríki og Alþingi, sérstaklega í
samgöngumálum. Væntingar eru
um að sameiningarframlög hjálpi
svæðinu að verða fjárhagslega
sterkara og til að efla stjórnsýslu
og þjónustu. Þá töldu þátttakendur
í fundinum að mikil tækifæri felist
í aukinni áherslu á umhverfis- og
skipulagsmál og uppbyggingu á
Húnavöllum.
Sérstaða hvers byggðakjarna
Á öðrum rafrænum fundi um
sameiningarmálin kom fram að
óvissa væri ríkjandi og eðlilegt
að fólk hefði áhyggjur af því hver
þróunin yrði. Íbúar óttast að missa
áhrif og að dregið verði úr þjón-
ustu, viðhaldi eða framkvæmdum
í þeirra nærumhverfi og að fjármál
sveitarfélagsins yrðu ekki nægilega
sterk til að byggja upp þjónustu og
sækja fram.
Fram kom að mikilvægt væri að
varðveita núverandi þjónustu og
bæta hana, halda sérstöðu hvers
byggðakjarna og halda áfram með
staðbundna menningarviðburði
eins og þorrablót. Þá var á fundin-
um áréttað að alla breytingar yrðu
undirbúnar vel og íbúar upplýstir
um málin hvort heldur væri varð-
andi sameiningu sveitarfélaga eða
sameiningu skóla. /MÞÞ