Bændablaðið - 25.03.2021, Blaðsíða 57
Bændablaðið | Fimmtudagur 25. mars 2021 57
Prjónað púðaver úr DROPS Paris.
Prjónað í röndum, með garða-
prjóni og snúningum.
DROPS Design: Mynstur w-059-bn
Stærð: Þvermál af púðaverinu: ca 35 cm. Passar fyrir
hringlaga kodda ca 40 cm að þvermáli.
Garn: DROPS PARIS (fæst í Handverkskúnst)
- Ljósblár nr 101: 50 g
- Fífill nr 14: 50 g
- Rjómahvítur nr 17: 50 g
- Apríkósa nr 01: 50 g
- Rauður nr 12: 50 g
Prjónar: Hringprjónn 60-80 cm nr 3 eða sú stærð
sem þarf til að fá 20 lykkjur x 40 umferðir = 10x10
cm.
Hringlaga púði ca 40 cm að þvermáli.
GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.
Litaröð-1:
Mynstureining 1 og 8: ljósblár
Mynstureining 2 og 6: fífill
Mynstureining 3 og 10: rjómahvítur
Mynstureining 4 og 7: apríkósa
Mynstureining 5 og 9: rauður
Litaröð-2:
Mynstureining 1 og 8: rjómahvítur
Mynstureining 2 og 6: rauður
Mynstureining 3 og 10: ljósblár
Mynstureining 4 og 7: apríkósa
Mynstureining 5 og 9: fífill
PÚÐI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón í
2 stykkjum sem síðan eru prjónuð saman í lokin.
Prjónað er garðaprjón og styttar umferðir í mynstu-
reiningum og gatamynstur er prjónað á milli hverra
mynstureininga.
PÚÐAVER: Fitjið upp 35 lykkjur á hringprjón nr 3
með ljósbláum. Prjónið garðaprjón og litaröð-1 –
sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT eru prjónaðar
styttar umferðir (1. umferð = rétta): Prjónið þar til 2
lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman (passið
að prjóna þær ekki laust), snúið við og prjónið slétt
til baka. Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2
lykkjur slétt saman, snúið við og prjónið til baka.
Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur
slétt saman, snúið við og prjónið til baka. Prjónið
þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman,
snúið við og prjónið til baka. Haldið svona áfram þar
til prjónaðar hafa verið 34 umferðir garðaprjón og
prjónað hefur verið einni lykkju færri í hvert skipti sem
snúið er við. Nú er 1 lykkja á prjóni. Næsta umferð er
prjónuð yfir allar lykkjur þannig: 1 lykkja slétt, sláið
uppá prjóninn, *1 lykkja slétt (lykkja sem áður var
prjónuð 2 slétt saman), sláið uppá prjóninn*, prjónið
frá *-* endið á 1 lykkja slétt = 35 lykkjur á prjóninum.
Snúið við og prjónið til baka. ATH! uppáslátturinn er
prjónaður slétt í þessari umferð, það eiga að myndast
göt. Fyrsta mynstureiningin af púðaverinu hefur nú
verið prjónuð. Prjónið næstu mynstureiningu eins
og kemur fram að ofan, þar til prjónaðar hafa verið
10 mynstureiningar. Fellið laust af.
Prjónið annað stykki alveg eins, nema nú eru prjónað
eftir litaröð-2.
FRÁGANGUR: Saumið með þræði í gegnum allar
kantlykkjurnar í miðju og dragið saman, festið
þráðinn vel. Saumið saman uppfitjunarkantinn
og affellingarkantinn. Endurtakið á hinu stykkinu.
Saumið bæði stykkin saman í ystu lykkjubogana/
umferð – passið uppá að gengið sé frá púðaverinu
þannig rendur í sama lit séu á móti hverri annarri.
Skiljið eftir ca 3 mynstureiningar til að setja koddann
í áður en opið er saumað saman.
Prjónakveðja,
mæðgurnar í Handverkskúnst
www.garn.is
Litríkt púðaver
HANNYRÐAHORNIÐ
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
3 2 1 6
1 8 5
9 6
5 6
7 8 1
7 6
8 1 3 5
3 2 8
4
Þyngst
3 2 8 9
8 6 5
9 5
2 8
6 7 1
9 1 5 3 6
6 7
3 2 4 9
4 9 6
9 4
8 1 7
9 7 2
4 3 8
7 6 4
2 5 9
3 5
5 3 1
7 1 5 8
4 3 7
8
2 3 1
3 6 4
9 4 8
9
4 6 1
6 8 2 1
Borða páskaegg,
fara á skíði og í sund
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Jónas er stundvís og glaður stærð-
fræðisnillingur sem á heima í
Kópavogi, með pabba, mömmu,
stóru systur og veiðihundinum
Gauju.
Hann æfir fótlbolta með
Breiðablik og þykir gaman að spila
tölvuleiki. Jónas elskar ís og góðan
mat.
Nafn: Jónas Guðjónsson.
Aldur: 9 ára.
Stjörnumerki: Steingeit.
Búseta: Í vesturbæ Kópavogs.
Skóli: Kársnesskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Stærðfræði og íþróttir
eru skemmtilegastar.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Ljón.
Uppáhaldsmatur: Píta.
Uppáhaldshljómsveit: Daði og
gagnamagnið.
Uppáhaldskvikmynd: Avengers,
Infinity War.
Fyrsta minning þín? Þegar ég fékk
lest í jólagjöf.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Ég æfi fótbolta með
Breiðabliki, ég hef líka prófað frjálsar
íþróttir og það var mjög gaman, en
mig langar til að prófa handbolta.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Húsasmiður eins og
pabbi minn.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Hoppa niður af bílskúrs-
þaki, ég ætla ekki að gera það aftur.
Hvað ætlarðu að gera skemmti-
legt um páskana? Ég ætla að borða
páskaegg, fara á skíði og í sund.
Næst » Ég skora á vinkonu mína,
Heiðrúnu Önnu Kristinsdóttur, að
svara næst.