Bændablaðið - 25.03.2021, Blaðsíða 27
Bændablaðið | Fimmtudagur 25. mars 2021 27
Hafðu samband: bondi@byko.is
ERU LÉTTAR STÁL-
KLÆDDAR SAMLOKU-
EININGAR SEM FÁST
MEÐ ÞÉTTIFRAUÐS- EÐA
STEINULLARKJARNA.
Einingarnar eru sterkar og burðar-
miklar og fást með mismunandi
yfirborði og litum að eigin vali.
Helstu kostir þess að nota
samlokueiningar er auðveld og
fljót uppsetning, auðveld þrif, mikil
burðargeta, mikið einangrunargildi
og er ódýr kostur ef miðað er við
hefðbundnar lausnir.
Yleiningar henta vel fyrir eldri
gripahús þar sem skipta þarf út
þak- og eða veggjaklæðningum.
BALEX yleiningar eru framleiddar
undir ströngu eftirliti samkvæmt
viðurkenndum evrópskum stöðlum.
YLEININGAR
Hýsi-Verkheimar ehf. | Smiðjuvegi 44-46, Kópavogi | Sími 497 2700 | hysi@hysi.is | www.hysi.is
Einfaldar & Hagkvæmar Byggingar
Z-Strúktúr
Stálgrindarhús
Z-Strúktúr stálgrindarhúsin eru í boði ýmist stöðluð eða sérhönnuð og eru klædd með yleiningum.
Bogahúsin eru framleidd eftir pöntunum í fimm mismunandi breiddum 8-16m í þeirri lengd sem kaupandi óskar.
Val er um glugga og hurðir ásamt því hvort húsin verði einangruð eða óeinangruð.
Þessar byggingar eru hagkvæmar, fljótar í reisingu og eru þaulreyndar við íslenskar veðuraðstæður.
Öll sérhönnuð hús frá Hýsi-Verkheimum ehf. eru seld með aðal- og burðarvirkisteikningum.
Bogahýsi
Færanleg
Bogahús
Varanleg
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
STÝRISENDAR
gerðir dráttarvéla
Bænda
15. APRÍL
Langanesbyggð og Svalbarðshreppur:
Viðræðuhópur vegna mögu-
legrar sameiningar
Samþykkt hefur verið í sveitar-
stjórn Langanesbyggðar að skipa
þrjá kjörna sveitarstjórnarfulltrúa
í sameiginlega nefnd með fulltrúum
sveitarstjórnar Svalbarðshrepps.
Nefndinni er ætlað að hefja
óformlegar viðræður um mögu-
lega sameiningu sveitarfélaganna
tveggja. Sveitarstjóri og skrifstofu-
stjóri í Langanesbyggð munu starfa
með viðræðunefndinni. Fulltrúar
Langanesbyggðar verða þau
Þorsteinn Ægir Egilsson, Mirjam
Blekkenhorst og Siggeir Stefánsson.
Þá var samþykkt að minnihluta verði
boðið að tilnefna áheyrnarfulltrúa í
nefndina.
Einnig var samþykkt á fund-
inum að efna til íbúafundar í
Langanesbyggð áður en ákvörðun
er tekin í sveitarstjórn um formlegar
sameiningarviðræður sveitarfélag-
anna.
Sveitarstjórn Langanesbyggðar
fjallað einnig um tillögu samráðs-
hóps minni sveitarfélaga um eflingu
og stækkun sveitarfélaga og var lagt
fram á fundinum minnisblað sveitar-
stjóra vegna þess.
Vilji íbúa og nauðsyn
ekki valdboð
Fram kemur í umsögn sveitarstjórnar
Langanesbyggðar um frumvarp til
laga um breytingu á sveitarstjórn-
arlögum að hún leggist gegn því
að lágmarksíbúafjöldi sveitarfélaga
verði settur í lög og sveitarfélög
þannig þvinguð til sameiningar
óháð öðrum aðstæðum. Sameining
sveitarfélaga eigi að mati sveitar-
stjórnar að gerast á grundvelli vilja
íbúa og nauðsynjar, ekki með vald-
boði. Slík ákvæði í lögum skerða
sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga
og íbúa þeirra.
Mikilvægara að sameina
samfélög en skrifstofur
Enn fremur minnir sveitarstjórn
Langanesbyggðar á mikilvægi þess
að sátt sé meðal íbúa um samein-
ingar eigi þær að takast vel og mik-
ilvægara sé að sameina samfélög
en skrifstofur sveitarfélaga. Fagnar
sveitarstjórn Langanesbyggðar hins
vegar nauðsynlegri umræðu um
hlutverk sveitarfélaga og eflingu
styrkja til þeirra sveitarfélaga sem
hyggja á sameiningu. /MÞÞ