Bændablaðið - 25.03.2021, Side 38

Bændablaðið - 25.03.2021, Side 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 25. mars 202138 Vandaðar samlokueiningar í miklu úrvali. Fást bæði með PIR og steinullar einangrun. GRÓÐURHÚS Tryggðu þér vandað gróðurhús fyrir sumarið! YLEININGAR TÖLVUPÓSTUR sala@bkhonnun . is SÍMI 571-3535 VEFFANG www .bkhonnun . is Margar gerðir gróðurhúsa - fást í ál lit, svörtu og grænu. 4 mm hert gler eða 10 mm ylplast Glerárgata 34b við Hvannavelli • S 461 1092 • asco.is OKKAR ÆR OG KÝR — STARTARAR OG ALTERNATORAR — Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 SÍUR Í DRÁTTARVÉLAR LÍF&STARF Leita að fæðingarsögum feðra úr sveitum landsins Parið Ísak Hilmarsson og Gréta María Birgisdóttir eru að vinna að verkefni þessi misserin sem heitir Fæðingarsögur feðra. Verkefnið gengur út á að koma hlutverki og upplifunum feðra af fæðingum í umræðuna. Ætlunin er að gefa sögurnar út í bók. Þau fóru af stað með verkefnið á feðradaginn 10. nóvember árið 2019. Tilgangurinn með verkefninu er tvenns konar. Annars vegar vilja þau fá feður til þess að ræða um upp- lifanir sínar og reynslu af fæðingum barna sinna. Hins vegar óska þau eftir því að feður skrifi niður sínar sögur og sendi þeim til birtingar í bók sem þau hyggjast gefa út. Þannig vilja þau varðveita sögurnar og gefa fleirum tækifæri á að lesa þær. Sögurnar í bókinni verða nafnlausar en við hverja sögu mun koma fram fæðingarár föður og barns sem og fæðingarstaður. Hugsunin með því er að gefa lesandanum smá innsýn í aðstæður. Gréta María er ljósmóðir og vinn- ur á Landspítalanum og Ísak vinnur sem þjónustustjóri í hugbúnaðarfyrir- tæki í Kópavogi. Saman eiga þau tvö börn, 3 ára stelpu og dreng fæddan í ágúst á síðasta ári. Hugmyndin að verkefninu kviknaði hjá þeim sum- arið 2019. Sögur strax á fyrsta sólarhringnum Gréta og Ísak voru búin að undirbúa verkefnið í nokkrar vikur áður en þau opnuðu verkefnið með Facebook- síðunni ,,Fæðingarsögur feðra“. Þau vildu vanda til verka frá fyrsta degi. ,,Það er ýmislegt sem þarf að huga að þegar farið er af stað með jafn persónu- legt verkefni og þetta. Það er sennilega fátt sem er jafn persónulegt fyrir fólki og að ræða um fæðingar barna sinna,“ segir Ísak og bætir við: ,,Við vorum ákveðin í því frá upphafi að hafa sögurnar í verkefninu nafnlausar svo að áherslan yrði á sögurnar og inni- hald þeirra en ekki persónurnar.“ Ísak segir að þau hafi viljað hafa verkefnið opið og sýnilegt fyrir öllum hvaða fólk stæði á bakvið það. Það kom því ekkert annað til greina en að Ísak myndi skrifa sína fæðingarsögu og birta á Facebook-síðunni undir nafni. ,,Ég vildi opna á umræðuna með sögunni minni og það verður eina sagan sem mun koma undir nafni í verkefninu, þó svo að hún verði nafn- laus í bókinni sjálfri. Ég hugsaði það út frá mér að ef ég ætti að senda ein- hverjum mína fæðingar- sögu þá yrði ég að vita hver stæði að baki verkefninu.“ Þeim fannst mikilvægt að verkefnið væri á persónu- legu nótunum og allt uppi á borðum varðandi tilgang verkefnisins. Eins og áður sagði þá opnuðu Gréta og Ísak ver- kefnið á Facebook-síðu sinni. Ekki liðu nema nokkr- ir klukkutímar frá því að síðan var opnuð og þar til að fyrsta sagan kom inn í verkefnið. ,,Viðbrögðin sem við höfum fengið frá fyrsta degi hafa verið algjörlega frábær. Við vissum ekki hvernig fólk myndi taka þessu ver- kefni þar sem samfélagið er ekki vant að ræða mikið um hlið feðra í fæðingarferlinu. Það segir ansi mikið um verkefnið finnst mér að fyrsta sagan kom inn eftir aðeins nokkra klukkutíma. Það var faðir sem átti söguna til og hafði skrifað hana niður fyrir nokkrum árum.“ Þau taka við öllum tegundum af sögum frá feðrum og er eina skil- yrðið að sagan sé um hlið föðurins. ,,Við hvetjum alla til þess að ræða saman um hlið feðra í fæðingum. Gildir þá einu hvort það er par að ræða um sitt eigið barn eða hvort fólk ræðir við foreldra sína um eigin fæðingu.“ Sjálfur vissi Ísak ekki hvort faðir hans hafi verið við- staddur sína fæðingu fyrr en að þau fóru af stað með verkefnið og hann spurði föður sinn út í það. Þau nefna einnig að það sé algengt í vinahópn- um þeirra að báðir aðilar hafi verið viðstaddir fæðingar barnanna og að það sé óalgengt að pör ræði saman eftir fæðingar um upp- lifanir sínar. ,,Það kom okkur í raun á óvart þegar við fórum að spyrjast fyrir um þetta hjá foreldrum í kringum okkur hversu fáir hafa rætt sín á milli um fæðingar barna sinna. Það að eign- ast barn er eitthvað það merkilegasta sem hægt er að upplifa í lífinu og okkur þykir mikilvægt að við ræðum meira saman um þennan atburð. Það á bæði við um góðu stundirnar þar sem allt gengur vel upp og einnig þær sem fara ekki eins og við vonuðumst eftir í upphafi.“ Allar tegundir af sögum Gréta og Ísak taka það skýrt fram að þau taki vel á móti öllum tegundum af sögum. ,,Við viljum fá sem flestar sögur í verkefnið. Við leitum eftir stuttum, löngum, skemmtilegum, fyndnum, erfiðum og öllum hinum sögunum líka. Við viljum heyra af hefðbundnum fæðingum, heima fæðingum, keisaraskurðum, fæðingum í bílum, nýjum sögum, eldri sögum og sögum úr sveitum þessa lands, svona eins og þær voru hér áður fyrr. Það er svo sannar- lega pláss fyrir allar sögur í ver- kefninu,“ segir Ísak. Ísak kemur úr Stykkishólmi en amma hans og hafi bjuggu á Þingvöllum í Helgafellssveit. ,,Við vitum að það eru til margar áhugaverðar sögur sem tengjast sveitum og fæðing- um barna, bæði nýjar og eldri sögur, og okkur langar mikið til þess að heyra slíkar sögur frá feðrum og fá inn í verk- efnið,“ segir Ísak. Á Facebook og Instagram Ísak og Gréta halda úti Facebook síðunni Fæðingarsögur feðra ásamt Instagram-reikningi með sama heiti. Feður geta ýmist sent inn sínar sögur á sam- félagsmiðlana eða í gegnum tölvupóst á faedingarsog- urfedra@gmail.com Að lokum hvetja þau alla til að ræða fæðingar barna sinna og velta fyrir sér hlið feðr- anna og sjá þannig hversu mismun- andi upplifunin getur verið frá sama atburði þar sem foreldrarnir gegna auðvitað mismunandi hlutverk- um í fæðingum. Eins getur verið áhugavert og dýrmætt að skrifa niður eigin reynslu af fæðingum barna sinna til þess að eiga, þar sem sumir hlutir gleymast með tíman- um. Það væri síðan algjör bónus ef viðkomandi myndi senda söguna inn í verkefnið. Hefur þú heyrt söguna af því þegar þú komst í heiminn, kæri lesandi? Parið Ísak Hilmarsson og Gréta María Birgisdóttir leita nú til lesenda Bændablaðsins vegna verkefnis sem heitir Fæðingarsögur feðra. Verkefnið gengur út á að safna saman sögum og koma hlutverki og upplifunum feðra af fæðingum í umræðuna. Ætlunin er að gefa sögurnar út í bók. BK Hönnun

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.