Bændablaðið - 25.03.2021, Side 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 25. mars 202138
Vandaðar samlokueiningar í miklu úrvali.
Fást bæði með PIR og steinullar einangrun.
GRÓÐURHÚS
Tryggðu þér vandað gróðurhús fyrir sumarið!
YLEININGAR
TÖLVUPÓSTUR
sala@bkhonnun . is
SÍMI
571-3535
VEFFANG
www .bkhonnun . is
Margar gerðir gróðurhúsa - fást í ál lit, svörtu og
grænu. 4 mm hert gler eða 10 mm ylplast
Glerárgata 34b við Hvannavelli • S 461 1092 • asco.is
OKKAR ÆR OG KÝR
— STARTARAR OG ALTERNATORAR —
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
SÍUR Í
DRÁTTARVÉLAR
LÍF&STARF
Leita að fæðingarsögum
feðra úr sveitum landsins
Parið Ísak Hilmarsson og Gréta
María Birgisdóttir eru að vinna að
verkefni þessi misserin sem heitir
Fæðingarsögur feðra. Verkefnið
gengur út á að koma hlutverki og
upplifunum feðra af fæðingum í
umræðuna. Ætlunin er að gefa
sögurnar út í bók.
Þau fóru af stað með verkefnið
á feðradaginn 10. nóvember árið
2019. Tilgangurinn með verkefninu
er tvenns konar. Annars vegar vilja
þau fá feður til þess að ræða um upp-
lifanir sínar og reynslu af fæðingum
barna sinna. Hins vegar óska þau
eftir því að feður skrifi niður sínar
sögur og sendi þeim til birtingar í
bók sem þau hyggjast gefa út. Þannig
vilja þau varðveita sögurnar og gefa
fleirum tækifæri á að lesa þær.
Sögurnar í bókinni verða nafnlausar
en við hverja sögu mun koma fram
fæðingarár föður og barns sem og
fæðingarstaður. Hugsunin með því
er að gefa lesandanum smá innsýn
í aðstæður.
Gréta María er ljósmóðir og vinn-
ur á Landspítalanum og Ísak vinnur
sem þjónustustjóri í hugbúnaðarfyrir-
tæki í Kópavogi. Saman eiga þau tvö
börn, 3 ára stelpu og dreng fæddan
í ágúst á síðasta ári. Hugmyndin að
verkefninu kviknaði hjá þeim sum-
arið 2019.
Sögur strax á fyrsta
sólarhringnum
Gréta og Ísak voru búin að undirbúa
verkefnið í nokkrar vikur áður en þau
opnuðu verkefnið með Facebook-
síðunni ,,Fæðingarsögur feðra“. Þau
vildu vanda til verka frá fyrsta degi.
,,Það er ýmislegt sem þarf að huga að
þegar farið er af stað með jafn persónu-
legt verkefni og þetta. Það er sennilega
fátt sem er jafn persónulegt fyrir fólki
og að ræða um fæðingar barna sinna,“
segir Ísak og bætir við: ,,Við vorum
ákveðin í því frá upphafi að hafa
sögurnar í verkefninu nafnlausar svo
að áherslan yrði á sögurnar og inni-
hald þeirra en ekki persónurnar.“ Ísak
segir að þau hafi viljað hafa verkefnið
opið og sýnilegt fyrir öllum hvaða fólk
stæði á bakvið það.
Það kom því ekkert
annað til greina en að
Ísak myndi skrifa sína
fæðingarsögu og birta á
Facebook-síðunni undir
nafni. ,,Ég vildi opna á
umræðuna með sögunni
minni og það verður eina
sagan sem mun koma
undir nafni í verkefninu,
þó svo að hún verði nafn-
laus í bókinni sjálfri. Ég
hugsaði það út frá mér að
ef ég ætti að senda ein-
hverjum mína fæðingar-
sögu þá yrði ég að vita hver
stæði að baki verkefninu.“
Þeim fannst mikilvægt að
verkefnið væri á persónu-
legu nótunum og allt uppi
á borðum varðandi tilgang
verkefnisins.
Eins og áður sagði þá
opnuðu Gréta og Ísak ver-
kefnið á Facebook-síðu
sinni. Ekki liðu nema nokkr-
ir klukkutímar frá því að síðan var
opnuð og þar til að fyrsta sagan kom
inn í verkefnið.
,,Viðbrögðin sem við höfum
fengið frá fyrsta degi hafa verið
algjörlega frábær. Við vissum ekki
hvernig fólk myndi taka þessu ver-
kefni þar sem samfélagið er ekki
vant að ræða mikið um hlið feðra í
fæðingarferlinu. Það segir ansi mikið
um verkefnið finnst mér að fyrsta
sagan kom inn eftir aðeins nokkra
klukkutíma. Það var faðir sem átti
söguna til og hafði skrifað hana niður
fyrir nokkrum árum.“
Þau taka við öllum tegundum af
sögum frá feðrum og er eina skil-
yrðið að sagan sé um hlið föðurins.
,,Við hvetjum alla til þess að ræða
saman um hlið feðra í fæðingum.
Gildir þá einu hvort það er par að
ræða um sitt eigið barn eða hvort
fólk ræðir við foreldra sína um
eigin fæðingu.“ Sjálfur vissi Ísak
ekki hvort faðir hans hafi verið við-
staddur sína fæðingu fyrr en að þau
fóru af stað með verkefnið og hann
spurði föður sinn út í það. Þau nefna
einnig að það sé algengt í vinahópn-
um þeirra að báðir aðilar hafi verið
viðstaddir fæðingar barnanna
og að það sé óalgengt að pör
ræði saman eftir fæðingar um upp-
lifanir sínar.
,,Það kom okkur í raun á óvart
þegar við fórum að spyrjast fyrir um
þetta hjá foreldrum í kringum okkur
hversu fáir hafa rætt sín á milli um
fæðingar barna sinna. Það að eign-
ast barn er eitthvað það merkilegasta
sem hægt er að upplifa í lífinu og
okkur þykir mikilvægt að við ræðum
meira saman um þennan atburð. Það
á bæði við um góðu stundirnar þar
sem allt gengur vel upp og einnig þær
sem fara ekki eins og við vonuðumst
eftir í upphafi.“
Allar tegundir af sögum
Gréta og Ísak taka það skýrt fram að
þau taki vel á móti öllum tegundum
af sögum.
,,Við viljum fá sem flestar sögur
í verkefnið. Við leitum eftir
stuttum, löngum, skemmtilegum,
fyndnum, erfiðum og öllum
hinum sögunum líka. Við viljum
heyra af hefðbundnum fæðingum,
heima fæðingum, keisaraskurðum,
fæðingum í bílum, nýjum sögum,
eldri sögum og sögum úr sveitum
þessa lands, svona eins og þær voru
hér áður fyrr. Það er svo sannar-
lega pláss fyrir allar sögur í ver-
kefninu,“ segir Ísak.
Ísak kemur úr Stykkishólmi
en amma hans og hafi bjuggu á
Þingvöllum í Helgafellssveit.
,,Við vitum að það eru til
margar áhugaverðar sögur sem
tengjast sveitum og fæðing-
um barna, bæði nýjar og eldri
sögur, og okkur langar mikið
til þess að heyra slíkar sögur
frá feðrum og fá inn í verk-
efnið,“ segir Ísak.
Á Facebook og Instagram
Ísak og Gréta halda
úti Facebook síðunni
Fæðingarsögur feðra ásamt
Instagram-reikningi með
sama heiti. Feður geta ýmist
sent inn sínar sögur á sam-
félagsmiðlana eða í gegnum
tölvupóst á faedingarsog-
urfedra@gmail.com
Að lokum hvetja þau
alla til að ræða fæðingar barna
sinna og velta fyrir sér hlið feðr-
anna og sjá þannig hversu mismun-
andi upplifunin getur verið frá sama
atburði þar sem foreldrarnir gegna
auðvitað mismunandi hlutverk-
um í fæðingum. Eins getur verið
áhugavert og dýrmætt að skrifa
niður eigin reynslu af fæðingum
barna sinna til þess að eiga, þar sem
sumir hlutir gleymast með tíman-
um. Það væri síðan algjör bónus ef
viðkomandi myndi senda söguna
inn í verkefnið.
Hefur þú heyrt söguna af því
þegar þú komst í heiminn, kæri
lesandi?
Parið Ísak Hilmarsson og Gréta María Birgisdóttir leita nú til lesenda
Bændablaðsins vegna verkefnis sem heitir Fæðingarsögur feðra. Verkefnið
gengur út á að safna saman sögum og koma hlutverki og upplifunum feðra
af fæðingum í umræðuna. Ætlunin er að gefa sögurnar út í bók.
BK
Hönnun