Bændablaðið - 25.03.2021, Blaðsíða 21
Bændablaðið | Fimmtudagur 25. mars 2021 21
Tveir Lely A3 mjaltaþjónar - árgerð 2008
Báðir vinstri þjónar. Lely mjaltaþjónunum fylgir:
Nýr Lely forkælir • Ný Atlas Copco loftpressa.
60 nýir Lely ISO-ID hálskubbar ásamt hálsböndum og lesara.
Nýr tölvupakki sem samanstendur af tölvu, skjá, prentara og ufsa.
Nýtt Lely Horizon hugbúnaðarleyfi.
Búið að skipta um þau gúmmí sem þarf þegar mjaltaþjónn fer milli landshluta.
Tilbúnir til uppsetningar í október/nóvember 2021.
Allan líftímann á þjónustusamningi. Þjónustusamningur í boði á báða.
6 mánaða ábyrgð frá gangsetningu.
Verð 8.500.000 og 8.300.000 auk vsk. uppsettir og byrjaðir að mjólka.
Staðfestingargjald er 1 milljón til að festa sér kaupin.
Nánari upplýsingar gefa Jóhannes í síma 822-8636
eða Jón Stefán 822-8616
www.lely.com/is/centers/reykjavik/
“Þeir sem einu sinni fá Lely
Juno í sína þjónustu skila
honum ekki aftur.
Svo miklu munar að hafa
einn slíkan í fjósinu.”
Lely Center Ísland
Reykjavík
Krókháls 5f
Sími 414 0000
Akureyri
Óðinsnes 2
Sími 464 8600 lci.is
Vatnsverksmiðja Jóns Ólafssonar í Ölfusi:
Selur vatnið út
um allan heim
Icelandic Glacial, vatnið í
vatnsverksmiðju Jóns Ólafssonar
í Ölfusi, er einstakt náttúrulegt
lindarvatn. Það er tekið úr
uppsprettu lindarvatns í Ölfusi
sem á uppruna sinn fyrir meira
en 5.000 árum og er varið fyrir
mengun með hraunbreiðum, sem
er náttúrulegur varnarveggur
náttúrunnar.
Lindin framleiðir vatn sem er svo
hreint að engu er bætt út í vatnið
eða tekið úr því. Vatnið frá Icelandic
Glacial er þess vegna einstakt því
það inniheldur lítið af steinefnum
og sýrustigið er 8,4pH af náttúrunnar
hendi.
Í mestu mögulegu framleiðslu
fyrirtækisins er tekið sem samsvar-
ar 1% af heildarvatnsstraumi Ölfus
bergvatnslindarinnar, sem annars
rynni til sjávar. Icelandic Water
Holdings, eigandi vörumerkisins
Icelandic Glacial, og Coca-Cola
European Partners á Íslandi (Coca-
Cola á Íslandi) skrifuðu nýlega undir
áframhaldandi samstarfssamning um
dreifingu vara „Icelandic Glacial“
hér á landi og nær samningurinn nú
einnig yfir nýjar vörur „Icelandic
Glacial“, sem verður dreift samhliða
vörutegundum Coca-Cola á Íslandi.
„Icelandic Glacial er í miklum
vexti á alþjóðavettvangi en
heimamarkaðurinn er okkur ekki
síður mikilvægur og erum við ánægð
með áframhaldandi samstarf okkar
við Coca-Cola á Íslandi. Það eru
spennandi tímar fram undan en
von er á nýjum vörum frá okkur á
næstu mánuðum sem við hlökkum
til að kynna,“ sagði Jón Ólafsson,
stofnandi og stjórnarformaður
Icelandic Glacial. /MHH
Einar Magnússon frá Coca Cola og Jón Ólafsson þegar skrifað var undir
nýja samninginn.
LÍF&STARF