Skessuhorn - 19.05.2021, Page 12
MiðViKudAGuR 19. MAÍ 202112
Ný grunnsýning var opnuð síðast-
liðinn fimmtudag á Byggðasafn-
inu í Görðum á Akranesi. undan-
farin fjögur ár hefur verið unnið að
hönnun og uppsetningu sýningar-
innar og er þetta fyrsta gagngera
breytingin sem gerð er á safninu
frá því það var opnað í húsinu 1974.
Safnaskálinn sem opnaður var fyr-
ir aldamót og rúmaði þá þrjár sýn-
ingar, gegnir nú hlutverki geymslu-
rýmis en þar eru einnig skrifstofur.
Hið upprunalega byggðasafnshús
er því að nýju orðið aðal sýning-
arrýmið á safnasvæðinu. Safnkost-
ur og allar merkingar hafa verið
endurnýjaðar og húsið sjálft hef-
ur verið tekið í gegn innan sem
utan. Þema hinnar nýju sýning-
ar á byggðasafninu er lífið til sjós,
í landi, í vinnu og í leik. Það voru
Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri
á Akranesi, Linda Björk Pálsdótt-
ir sveitarstjóri Hvalfjarðarsveit-
ar og Ólafur Páll Gunnarsson for-
maður menningar- og safnanefnd-
ar Akraneskaupstaðar sem klipptu
á borða og opnuðu sýninguna. um
síðustu helgi var safnið svo opið al-
menningi og íbúum boðið að kíkja
í heimsókn.
Sýning í
nútímalegri umgjörð
Áður en klippt var á borða og safn-
ið opnað formlega hélt Ólafur Páll
Gunnarsson formaður menningar-
og safnanefndar tölu þar sem hann
fór ítarlega yfir þær breytingar sem
gerðar hafa verið og hverjir komu
að verkinu. Þá flutti hljómsveitin
Travel Tunes nokkur lög, en hana
skipa hjónin Valgerði Jónsdótt-
ir og Þórður Sævarsson auk dótt-
ur þeirra Sylvíu. „Það var af tilefni
60 ára afmælis safnsins sem ákveð-
ið var að endurnýja grunnsýningu
þess en safnið var stofnað þann 13.
desember árið 1959. Söfn gegna
mikilvægu hlutverki í samfélaginu
sem þau starfa í sem felst meðal
annars í því að halda utan um og
miðla sögu samfélagsins. Í sýning-
unni er lögð áhersla á að endur-
spegla þá sérstöðu sem starfssvæði
safnsins býr yfir en safnið er í eigu
Akraneskaupstaðar og Hvalfjarð-
arsveitar. Efnistökum er skipt upp
í einstök þemu sem eru: Lífið til
sjós, lífið í landi, ferðalangar, lífið
í vinnu og lífið í leik. Sýningin er
sett fram í nútímalegri umgjörð og
með fjölbreyttum hætti. Segja má
að ljósmyndir, kvikmyndir, hljóð
og hljóðleiðsögn gegni aðalhlut-
verki auk safngripa sem eru valdir
af kostgæfni. Hljóðleiðsögnin nær
til fjörutíu og þriggja frásagna og
er í boði bæði á ensku og íslensku.
Auk þess er víða í sýningunni fatn-
aður sem gestir mega handfjatla
og máta, skúffur til að opna, snert-
iskjásýning og nýja krakkabingó
sem börnum gefst tækifæri á að
reyna við,“ sagði Ólafur Páll.
Aðgengileg öllum
Í sýningarhúsnæðinu eru jafnframt
kvikmyndarými og sérsýningar-
rými sem gefa safninu kost á því að
vera með fjölbreytni í sýningarhaldi
til framtíðar. „Í dag eru tvær heim-
ildarmyndir um Akranes í sýningu,
önnur þeirra er frá árinu 1947 og
hin frá 1974. Í sérsýningarrýminu
er sýning Kolbrúnar Kjarval leir-
listakonu og bæjarlistamanns Akra-
ness árið 2017, Hvað ef? Með nýrri
sýningu og breytingu á sýningar-
húsnæði er unnið að því að gera
safnið að fróðlegum og áhuga-
verðum stað heim að sækja. Vonir
standa til þess að sýningin höfði til
breiðs hóps íbúa og gesta þannig að
þeir verði tíðir gestir á safninu. Þá
má jafnframt taka fram að sérstök
áhersla hefur verið lögð á að gera
sýninguna aðgengilega öllum. Má
þar sérstaklega nefna að gert er ráð
fyrir hjólastólaaðgengi og lausnum
fyrir þá gesti sem hafa takmarkanir
varðandi sjón og heyrn.“
Þá sagði Ólafur Páll að áður en
hægt hafi verið að hefjast handa við
uppsetningu sýningar hafi þurft að
pakka eldri sýningu niður, mála allt
húsæði að innan sem utan, endur-
gera salerni, betrumbæta rafmagn,
endurnýja glugga og brunavarnir,
sinna ýmiskonar viðhaldsverkefn-
um og ófyrirséðum uppákomum.
mm
Ný grunnsýning opnuð á Byggðasafninu á Akranesi
Klippt á borða og safnið enduropnað eftir fjögurra ára breytingar. F.v. Linda Björk, Ólafur Páll og Sævar Freyr.
Píanó, grammófónn og glimskratti sem var í einni af sjoppum bæjarins, eru meðal
sýningarmuna.
Á vegg á safninu má finna ýmis eldri götunöfn sem voru aflögð meðal annars
vegna trúarskoðana.
Skemmtileg uppstilling. Sími, Camel sígarettur í öskubakka og fölsku tennurnar í
glasi.
Sagt er frá verslunum sem voru í bæjarfélaginu. Sögu atvinnulífsins eru gerð góð skil.