Skessuhorn - 19.05.2021, Síða 30
MiðViKudAGuR 19. MAÍ 202130
Í hvaða sæti heldur þú að
Ísland lendi í Eurovision?
Spurning
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Davíð Kristjánsson
„1. sæti.“
Guðfinna Olga Sveinsdóttir
„4. sæti.“
Gunnar Sigurjónsson
„4. sæti.“
Aðalheiður Rósa Harðardóttir
„1. sæti.“
Guðmundur Hagalín
Guðjónsson
„5. sæti.“
Meistaraflokkur kvenna hjá ÍA
lagði lið Augnabliks í jöfnum og
spennandi leik í blíðskaparviðri á
Akranesvelli á miðvikudagskvöld-
ið í síðustu viku. Þetta var annar
leikur ÍA í Lengjudeildinni í sum-
ar en eftir tap fyrir Gróttu í fyrstu
umferðinni var ljóst að sigur væri
nauðsynlegur fyrir þær til að koma
sér í efri hluta deildarinnar. Þetta
byrjaði þó ekki vel því Vigdís Lilja
Kristjánsdóttir kom gestunum yfir
á 4. mínútu með þrumuskoti sem
small í þverslánni og niður og rétt
inn fyrir marklínuna. Skagastúlkur
sóttu meira í fyrri hálfleik en gekk
illa að skapa sér góð marktækifæri
og staðan í hálfleik 0-1.
Skagastúlkur héldu áfram að
sækja í seinni hálfleik og uppskáru
loks á 71. mínútu með flottu marki
Erlu Karítasar Jóhannesdóttur sem
fékk boltann fyrir framan vítateig-
inn og skaut hörkuskoti í bláhorn-
ið. Eftir þetta sóttu liðin á bága
bóga og það var ÍA sem skoraði
sigurmarkið í uppbótartíma. Lilja
Björg Ólafsdóttir fylgdi þá vel eft-
ir góðri fyrirgjöf og lagði boltann
í netið eftir klafs og mistök gest-
anna. Frábær sigur og ÍA komið
á blað í Lengjudeildinni með þrjú
stig. Þá má hrósa umgjörð leiksins
sem var til fyrirmyndar á Akranes-
velli á miðvikudagskvöldið: Vallar-
þulur, klapplið og stemning í stúk-
unni.
Næsti leikur ÍA í Lengjudeild-
inni verður gegn KR föstudaginn
21. maí á Meistaravöllum í Vestur-
bænum og hefst kl. 19.15.
vaks
Knattspyrnulið ÍA, sem leikur í
Lengjudeild kvenna, hefur feng-
ið liðsstyrk fyrir baráttuna í sumar.
Bandaríski framherjinn McKenna
Akimi davidson er gengin til liðs
við félagið en hún lék síðast í Lithá-
en þar sem hún spilaði með FC
Gintra. Þá hefur Hulda Margrét
Brynjarsdóttir ákveðið að taka fram
takkaskóna á ný eftir að hafa ver-
ið fjarri knattspyrnuiðkun í nokkur
ár vegna barneigna. Hulda Margrét
er fædd árið 1993 og hefur alla tíð
spilað fyrir ÍA hér á landi.
vaks
Skallagrímsmenn fóru fýluferð
vestur á Ísafjörð á mánudaginn
þegar þeir mættu Vestra í undanúr-
slitum 1. deildar karla í körfuknatt-
leik. Skallagrímur hafði áður tryggt
sig áfram í undanúrslitakeppnina
með sigri á Álftanesi síðastliðinn
föstudag og var leikur Skallagríms
og Vestra sá fyrsti í einvígi liðanna
en vinna þarf þrjá leiki til að komast
áfram í úrslitaviðureignina.
Þeir grænklæddu komu ákveðn-
ir til leiks og stýrðu leiknum fram-
an af í fyrsta fjórðungi sem endaði
með eins stigs forystu gestanna úr
Borgarnesi. Leikurinn hélt sama
takti fram að hálfleik og var staðan
33-32 fyrir heimamönnum þegar
gengið var til klefa.
Í þriðja leikhluta skellti Vestri
hreinlega í lás á Skallagríms-
menn sem áttu engin svör við vörn
heimamanna. Vestri náði að halda
Borgnesingum í tíu stigum í leik-
hlutanum en heimamenn bættu
við 26 stigum og komu sér í væn-
lega stöðu fyrir loka fjórðunginn.
Skallagrímur sýndi smá lífsmark
síðustu tíu mínúturnar en bilið sem
Vestri bjó til í þriðja fjórðungi var
gestunum um megn og náðu þeir
grænklæddu aldrei að ógna af ein-
hverri alvöru. Vestramenn sigldu
því nokkuð þægilegum sigri í höfn,
81-55, og tóku í leiðinni forystu í
einvíginu, 1-0.
Lang stigahæstur í liði heima-
manna var Ken-Jah Bosley með 34
stig og 6 stoðsendingar. Hann náði
einnig að fiska 9 villur á Borgnes-
inga í leiknum. Næst stigahæstir
voru Marko dmitrovic og Nem-
anja Knezevic með 12 stig hvor en
sá fyrrnefndi reif niður 21 frákast
fyrir Ísfirðinga. Í liði Skallagríms
var Marques Oliver stigahæstur
með 13 stig. Næst stigahæstur var
Eyjólfur Ásberg Halldórsson með
12 stig, 7 fráköst og fjórar stoð-
sendingar.
Leikur númer tvö í einvígi lið-
anna fer fram í Borgarnesi föstu-
daginn 21. maí kl. 19:15.
glh
Íslandsmót unglinga í badmin-
ton var haldið í íþróttahúsinu við
Vesturgötu um síðustu helgi. Bad-
mintonsamband Íslands hélt mót-
ið í samstarfi við Badmintonfélag
Akraness og var framkvæmd móts-
ins til fyrirmyndar, samkvæmt frétt
á heimasíðu badmintonsambands-
ins. Sýnt var beint frá öllum leikjum
mótsins á Youtube rás sambandsins.
Til leiks voru alls skráðir 159 kepp-
endur frá níu félögum og var ÍA
með alls 16 keppendur. Sex kepp-
endur náðu þeim frábæra árangri
að verða þrefaldir Íslandsmeistarar
og þar á meðal var Skagamaðurinn
María Rún Ellertsdóttir sem sigraði
í einliðaleik, tvíliðaleik og tvennd-
arleik í u17. Annar Skagamaður,
davíð Logi Atlason, lenti í 2. sæti í
einliðaleik og tvíliðaleik snáða u11
og í tvenndarleik í sama flokki. Þá
lenti Máni Berg Ellertsson í 2. sæti
í einliðaleik og tvenndarleik sveina
u15 en fagnaði sigri með félaga
sínum, Arnari Frey Fannarssyni í
tvíliðaleik í þeim flokki. TBR var
með flesta keppendur, alls 60, BH
var með 30 og uMFA með 24. Þá
voru einnig keppendur auk ÍA frá
KR, Hamri, TBS, Samherjum og
Tindastóli. vaks
Eva María Jónsdóttir í leik gegn Augnabliki fyrr í sumar. Ljósm. sas
Frábær sigur hjá Skagastúlkum gegn Augnabliki
Marinó Þór í baráttu við liðsmann Vestra í deildarleik liðanna frá því í vetur.
Tap í fyrsta leik undanúrslita gegn Vestra
Verðlaunahafar ÍA á Íslandsmótinu: Frá vinstri: María Rún Ellertsdóttir, Arnar
Freyr Fannarsson, Davíð Logi Atlason og Máni Berg Ellertsson. Ljósm. bsí.
Íslandsmót unglinga í badminton
var á Akranesi um helgina
Skagakonur
fá liðsstyrk
Úr leik Gróttu og ÍA á dögunum.
Ljósm. sas.