Morgunblaðið - 11.02.2021, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 1 1. F E B R Ú A R 2 0 2 1
Stofnað 1913 35. tölublað 109. árgangur
GÓÐ HELGI BYRJAR Í NETTÓ!
Lægra verð - léttari innkaup Tilboðin gilda 11.— 14. febrúar
Laxabitar
Sjávarkistan
1.599KR/KG
ÁÐUR: 2.499 KR/KG
-36% -50%Saltkjöt
Verð frá
299KR/KG
ALLT AÐ
32%
AFSLÁTTUR
Bláber
125 gr
249KR/PK
ÁÐUR: 498 KR/PK
ALLTAF GAMAN
AÐ GETA VAND-
AÐ TIL VERKS
LAUFLÉTT
Á LAUGAR-
DÖGUM
BLEIKT ÆVIN-
TÝRALAND Í
SMÁRALIND
NÝR ÞÁTTUR Á K100 50 KAMPAVÍN OG KÓSÍHEIT 48DIMMA MEÐ ÞRJÁR TILNEFNINGAR 74
Nú styttist í að nýr miðbæjarkjarni með hús-
um í gömlum stíl verði opnaður við brúar-
torgið á Selfossi. Þar verða ýmis hús sem fólk
gæti kannast við frá Selfossi, Reykjavík,
Akureyri og annars staðar frá. Fjölbreytt
starfsemi verður í þeim húsum sem risið hafa
í fyrsta áfanga verkefnisins sem Sigtún þró-
unarfélag stendur fyrir.
Félagið er að undirbúa í samvinnu við at-
vinnulífið og hið opinbera að setja upp fjöl-
breyttar skrifstofueiningar á Selfossi. Þær
verða meðal annars í Landsbankahúsinu á
Selfossi og eftir tvö ár er reiknað með að búið
verði að byggja yfir þær í nýja miðbænum.
Sunnlendingar sem vinna á höfuðborgar-
svæðinu geta unnið í þessari aðstöðu hluta úr
viku í stað þess að aka alla daga til Reykja-
víkur. Talið er að aðstaðan geti gert Selfoss
að betri búsetukosti. Einnig eru þær hugs-
aðar fyrir minni fyrirtæki og einyrkja. »4
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjölbreytt starfsemi í húsum í gömlum stíl í nýjum miðbæ
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
„Staðan er náttúrulega mjög slæm.
Maður var að vona að þetta færi að
glæðast upp úr áramótum en það er
ekki sjáanlegt á næstunni. Það er
þungt hljóð í fólki og slæm staða,“
segir Guðbjörg Kristmundsdóttir,
formaður Verkalýðs- og sjómanna-
félags Keflavíkur og nágrennis.
Nýjar tölur Vinnumálastofnunar,
sem birtar voru í gær, sýna að heild-
aratvinnuleysið á Suðurnesjum jókst
úr 23,3% í desember í 26% af vinnuafl-
inu í seinasta mánuði. Meðal kvenna
mældist 29,1% heildaratvinnuleysi í
janúar en 24% hjá körlum. Guðbjörg
segir að þessar atvinnuleysistölur séu
hærri en elstu menn muni eftir og að
sögn hennar er ekki að sjá að neitt sé
að lifna yfir atvinnulífinu neins staðar
á svæðinu. „Þetta hefur aldrei verið
svona slæmt hjá okkur,“ segir hún og
kveðst ekki sjá fram á neina stóra
breytingu á þessu ástandi a.m.k. á
næstu tveimur mánuðum, en kveðst
þó vona að atvinnuástandið fari að
glæðast þegar fer að líða á sumarið.
12,8% heildaratvinnuleysi
Atvinnuleysi fór vaxandi á öllu
landinu í janúar og var meðalfjölgun
atvinnulausra 527 í mánuðinum. Al-
mennt atvinnuleysi jókst úr 10,7% í
desember í 11,6% í janúar og heildar-
atvinnuleysi að hlutabótakerfinu
meðtöldu var 12,8%. Atvinnuleysi
tengt minnkuðu starfshlutfalli minnk-
aði talsvert á landinu í janúar eða um
514 frá desember og var um 1,2%.
Vinnumálastofnun spáir því að al-
mennt atvinnuleysi í yfirstandandi
mánuði aukist lítið eitt og verði á
bilinu 11,6% til 11,9%.
Enn fjölgar í hópi langtímaatvinnu-
lausra. Um seinustu mánaðamót
höfðu alls 4.508 einstaklingar verið án
atvinnu í meira en heilt ár.
Staðan er mjög slæm
Heildaratvinnuleysið á Suðurnesjum komið í 26% For-
maður VSFK segir útlitið dökkt og að þungt hljóð sé í fólki
MAtvinnuleysið nálægt því … »40
Ný hverfi og þétting byggðar um-
hverfis Reykjavíkurflugvöll breyta
vindafari við sumar brautir vall-
arins, þannig að þar getur myndast
ókyrrð og sviptivindar. Sigrún Björk
Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri
Isavia innanlandsflugvalla, segir að
þetta geti skapað hættulegar að-
stæður. Ný hollensk rannsókn sýnir
að 4-5 hæða byggð í Nýja-Skerjafirði
auki vandann enn. »10
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flugöryggi Ný hverfi þétt við Reykjavík-
urflugvöll breyta vindafari við brautirnar.
Ný hverfi valda
ókyrrð á flugbrautum
Reiknuð við-
haldsþörf um 150
friðlýstra kirkna
þjóðkirkjunnar
árið 2019 var
rúmlega 217
milljónir króna,
að sögn Agnesar
M. Sigurðar-
dóttur biskups
Íslands. Þá námu
sóknargjöld til
sókna þjóðkirkjunnar alls tæplega
193 milljónum króna en þau þurfa
að standa undir margvíslegu starfi
og rekstri sóknanna.
Viðhaldsvandi kirkna er út-
breiddur og tengist niðurskurði
sóknargjalda allt frá árinu 2009.
Hann nemur tugum prósenta og er
langt umfram það sem aðrir þurftu
að þola vegna hrunsins. »2
Viðhald kirkna
líður fyrir fjárskort
Agnes M.
Sigurðardóttir