Morgunblaðið - 11.02.2021, Blaðsíða 50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021
Einar þekkja flestir landsmenn af
störfum sínum úr afþreyingargeir-
anum og Yngvi hefur starfað við út-
varp í fjölmörg ár. Þetta er frumraun
Önnu í útvarpi sem kemur fersk í
starfið. Hún er leiklistarmenntuð frá
Bretlandi og starfar sem aðstoð-
arforstöðumaður í félagsmiðstöð.
Þátturinn er léttur mannlífsþáttur
þar sem þjóðinni er komið á notaleg-
an hátt inn í helgina með gríni,
glensi, viðtölum, fréttum og
skemmtilegu spjalli ásamt bestu tón-
listinni.
Lengi staðið til
„Það er rosalega gaman að fara í
loftið með Önnu Möggu,“ segir Ein-
ar. „Hún er skemmtileg og hefur
góða nærveru sem er plús því við
komum beint í bílinn til hlustenda og
setjumst við eldhúsborðið og vinn-
una með þeim alla laugardags-
morgna.“ Í eitt og hálft ár stýrði Ein-
ar þættinum Bakaríinu á Bylgjunni
ásamt Svavari Erni. „Menn segja að
ég sé með andlit fyrir útvarp. Ég veit
ekki alveg hvað það þýðir en ég
treysti sprelligosunum í Hádeg-
ismóum. Þeir vita hvað þeir eru að
gera.“
Sigurður Gunnarsson, dagskrár-
stjóri K100, segir að lengi hafi staðið
til að vera með meiri dagskrá um
helgar á K100. „Það gleður mig að
við séum að fara í loftið með þennan
þátt,“ segir Sigurður. „Einar er nátt-
úrlega margreyndur í þessum
bransa og það er gaman að fá hann
til þess að stýra þessu ásamt Önnu
sem kemur sterk inn í fyrsta starfið
sitt í útvarpi. Ég er sannfærður um
að þau eiga eftir að gera gott mót á
laugardagsmorgnum og treysti því
að hlustendur okkar taki þeim vel.“
audun@mbl.is
Einar Bárðarson og
Anna Margrét Káradótt-
ir stýra nýjum morgun-
þætti á laugardögum á
K100 ásamt Yngva Ey-
steinssyni sem er þeim
til halds og trausts.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Nýr þáttur að hefja göngu sína á K100
Koma landan-
um í gott skap
á laugardags-
morgnum
Þríeykið Einar Bárðarson, Anna Margrét
Káradóttir og Yngvi Eysteinsson stýra
nýjum þætti á laugardagsmorgnum á K100.
Einar sagðist hafa heyrt á síðustu
dögum, „off record“, í samtölum úr
ýmsum áttum að of fá smit hér á
landi voru talin geta spillt fyrir þess-
um fyrirætlunum. „Þeir voru samt
sem áður ekki búnir að slá þetta út
af borðinu,“ sagði Einar. „Þeir Kári
og Þórólfur eru ekki alveg búnir að
loka þessu endanlega. Þeir eiga ein-
hver samtöl eftir en það var augljóst
af fundinum með Pfizer að Þórólfi
var búið að ganga of vel að draga úr
smitunum og það spillti fyrir mögu-
leikanum til þess að geta gert þessa
rannsókn. Það var nú reyndar eitt
sem Þórólfur sagði í viðtalinu við
Kastljós: Ef það kæmi ný bylgja þá
væri kannski hægt að skoða hvort
það væri hægt að gera þessa rann-
sókn. Kári sagði að það hefði ekki
verið auðvelt hjá Pfizer að semja við
Evrópusambandið og fleiri lönd sem
eru að berjast um að fá bóluefni. Það
þurfa að vera mjög veigamikil rök
fyrir því að senda hingað 550 þúsund
skammta framhjá þeim samningi
sem þeir hafa gert við ESB. Það þarf
að vera hægt að
búa til nýja þekk-
ingu með rann-
sóknum sem
gagnast öllum
heiminum í fram-
leiðslu svona
bóluefna.“
Þáttastjórn-
endur Ísland
vaknar hafa tekið
eftir því að í hvert
skipti sem Einar ber upp spurningu
kemur hann við úrið sitt og hreyfir
það. Hann var spurður hvort sina-
skeiðabólga væri eitthvað að hrjá
hann þessa dagana.
„Ég á í erfiðu sambandi við úrið
mitt,“ sagði Einar. „Ég er alltaf að
setja það á mig og taka það af mér.
Þegar ég er að skrifa þarf ég að taka
það af mér og líka þegar ég fæ mér
að borða. Þegar ég hugsa fyrir
spurningum í viðtölum kemur
kannski þessi brýna þörf til að taka
af mér úrið,“ sagði Einar og hló.
audun@mbl.is
Einar í Kastljósinu á
erfitt með úrið sitt
Einar
Þorsteinsson
Einar Þorsteinsson, einn umsjónarmanna Kastljóss var
til viðtals í morgunþættinum Ísland vaknar á K100 í
gærmorgun. Viðtal hans við Kára Stefánsson forstjóra
Íslenskrar erfðagreiningar og Þórólf Guðnason sótt-
varnalækni vakti athygli en þar var til umræðu möguleg
bóluefnarannsókn Pfizer hér á landi sem ekkert varð úr.
21
Ræktum og verndum geðheilsu okkar
Nýir skammtar daglega á gvitamin.is
Mundu
að brosa