Morgunblaðið - 11.02.2021, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021 63
Bankasýsla ríkisins er sérstök ríkisstofnun með sjálfstæða stjórn sem heyrir undir fjármála- og efnahagsráðherra. Fer stofnunin með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum
í samræmi við lög, góða stjórnsýslu- og viðskiptahætti og eigendastefnu ríkisins á hverjum tíma. Í umsýslu hennar eru 100% eignarhlutur í Íslandsbanka hf., 98,2%
eignarhlutur í Landsbankanum hf. og 49,5% eignarhlutur í Sparisjóði Austurlands hf.
Við val á einstaklingum sem tilnefndir eru sem stjórnarmenn eða varamenn í stjórnir fjármálafyrirtækja tekur valnefnd mið af yfirsýn, þekkingu og reynslu viðkomandi
í tengslum við fyrirtækjarekstur og starfsháttum fjármálafyrirtækja. Nefndin leitast við að það sitji sem næst jafnmargar konur og karlar í stjórnum fjármálafyrirtækja.
Þá er jafnframt miðað að því að þekking og reynsla stjórnarmanna sé fjölbreytt.
Bankasýsla ríkisins leitar að einstaklingum
til stjórnarsetu í fjármálafyrirtækjum.
Áhugasamir einstaklingar sem telja sig uppfylla
framangreind skilyrði eru hvattir til að senda
ferilskrár og kynningarbréf ásamt upplýsingum
um framangreind atriði til valnefndar Banka sýslu
ríkisins á netfangið valnefnd@bankasysla.is.
Óskað er eftir að umbeðnar upplýsingar
berist eigi síðar en 15. febrúar nk.
Nánari upplýsingar veitir
Jón G. Jónsson, forstjóri Bankasýslu ríkisins,
sími 550-1700.
VIÐ MAT Á HÆFI EINSTAKLINGA LÍTUR VALNEFNDIN MEÐAL ANNARS TIL EFTIRFARANDI ATRIÐA:
Einstaklingar sem vilja gefa kost á sér
þurfa að uppfylla margvísleg lagaleg
skilyrði, m.a. vegna ákvæða laga nr.
161/2002 um fjármálafyrirtæki, ásamt
því að standast hæfismat Fjármálaeftirlits
Seðlabanka Íslands.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu
Bankasýslu ríkisins www.bankasysla.is.
• Yfirgripsmikil reynsla af rekstri og þekking á íslensku atvinnulífi.
• Þekking á rekstri banka og starfsemi fjármálafyrirtækja.
• Reynsla af alþjóðlegum viðskiptum.
• Traust og gott orðspor.
• Leiðtogahæfileikar.
• Reynsla af stjórnun og stefnumótun.
• Fjárhagslegt sjálfstæði.
• Menntun sem nýtist í starfi.
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is