Morgunblaðið - 11.02.2021, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.02.2021, Blaðsíða 4
Sigtún þróunarfélag er í sam- vinnu við atvinnulífið og hið opinbera um að setja upp fjöl- breyttar skrifstofueiningar á Selfossi. Þar geta Sunnlend- ingar sem vinna á höfuðborg- arsvæðinu unnið hluta úr viku í stað þess að aka alla daga til Reykjavíkur. Einnig eru þær hugsaðar fyrir einyrkja og minni fyrirtæki. Sigtún er með tilbúna að- stöðu í húsinu Stað sem tekin verður í notkun þegar fært þykir vegna kórónuveiru- faraldurs og mun einnig taka 2. og 3. hæð Landsbankahúss- ins undir þá starfsemi. Eftir tvö ár mun starfsemin síðan verða flutt inn í nýjan miðbæ. Leó segir að það auki gæði Selfoss sem búsetukosts ef fólk geti unnið hluta vikunnar í heimabænum. Hann segir að kórónuveirufaraldurinn hafi opnað augu fólks fyrir þess- um möguleika og flýtt þróun- inni. Bætir bú- setuskilyrði SKRIFSTOFUR HEIMA Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Starfsemi hefst í byrjun sumars í þrettán húsum sem byggð eru í gömlum stíl í miðbæ Selfoss. Þar verða mathöll, sögusýning um skyr- ið, kaffihús, verslanir, skemmti- staður, tónleikahöll og 13 íbúðir á efri hæðum. Er þetta fyrsti áfangi uppbyggingar miðbæjarins. „Ég er mjög ánægður með gang framkvæmda. Við treystum heima- fyrirtæki fyrir þessu og það treystir aftur aðallega á heimafyrirtæki sem undirverktaka. Þetta er samstilltur hópur,“ segir Leó Árnason, stjórn- arformaður Sigtúns þróunarfélags. Gísli Halldór Halldórsson bæjar- stjóri segir að uppbyggingin í mið- bænum hafi mikla þýðingu fyrir Sel- foss. „Þetta er góður staður sem getur orðið hjartað í miðbænum, til viðbótar við ráðhúsið og Krónuna. Þarna getur fólk stigið út úr bílnum og notið staðarins og samvista við fólk,“ segir Gísli Halldór. Fyrirmyndir í eldri húsum Öll húsin eru byggð í gömlum stíl og eiga sér fyrirmyndir í byggingum sem staðið hafa á Selfossi og annars staðar á landinu. Í forgrunni verða fjögur hús sem áður stóðu á Selfossi. Þar ber fyrst að nefna hús Mjólkur- bús Flóamanna sem Guðjón Sam- úelsson húsameistari teiknaði og byggt var árið 1929. Það stendur við hringtorgið við brúna og blasir við þeim sem aka yfir Ölfusárbrú. Í Mjólkurbúinu verður sýning um sögu skyrsins og tengingu þess við Selfoss og Suðurland, heimavöll skyrsins í heiminum, eins og Leó tekur til orða. Meðal annarra áberandi húsa má nefna Sigtún, fyrsta hús Kaupfélags Árnesinga, og húsin Ingólf og Höfn. Nú lokar bárujárnsgirðing upp- byggingarsvæðið af. Hún hverfur vitaskuld áður en miðbærinn opnar dyr sínar og blasa þá nýju-gömlu húsin við. Hægt verður að aka beint af hringtorginu eftir aðrein inn á Brúarstræti og þaðan inn á Mið- stræti þar sem hægt verður að leggja bílum. Leó segir að verið sé að ljúka samningum við rekstraraðila að öll- um plássunum. 23 nýir aðilar verða með rekstur þar. Þá verði íbúðirnar þrettán tilbúnar í júní og settar í sölu. Sigtúnsmenn eru byrjaðir að huga að framhaldinu, öðrum áfanga. Eftir er að byggja rúmlega tuttugu hús, meðal annars fyrir hótel, fleiri versl- anir, banka, skrifstofur og aðra þjónustu. Segir Leó að byrjað verði á þessum áfanga á árinu og reiknar hann með að hann taki til stórs hluta af því sem eftir er. Gamall miðbær verður til  Framkvæmdir við nýjan miðbæjarkjarna á Selfossi ganga vel  Nýju-gömlu húsin opna dyr sínar í byrjun sumars  23 ný fyrirtæki með starfsemi í húsunum Skraut Fjölbreytt starfsemi verður í húsunum sem rísa í fyrsta áfanga nýs miðbæjarkjarna á Selfossi. Vonast er til að húsin og starfsemin dragi að gesti. Morgunblaðið/Árni Sæberg Nýtt-gamalt Fjalakötturinn úr Reykjavík, rauða húsið, og Egilssonarhús úr Hafnarfirði, það bláa, lífga upp á umhverfið í nýja miðbænum. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021 „Þetta var ekki einföld ákvörðun og er tekin eftir mikla yfirlegu. Ég vil vera hluti af hóp sem er hægt að treysta til að taka djarf- ar ákvarðanir og tel að innan þingflokks Pí- rata muni hug- sjónum mínum vera best borgið. Í framhaldinu mun ég gefa kost á mér í prófkjöri Pírata til að sjá hvort grasrótin vilji treysta mér fyrir áframhaldandi verkefnum eftir kosningar,“ segir þingmað- urinn Andrés Ingi Jónsson sem í gær tilkynnti að hann væri geng- inn til liðs við Pírata. Sem kunnugt er hefur Andrés Ingi verið utan flokka síðasta rúma árið eftir að hann sagði sig úr þingflokki Vinstri-grænna. Í tilkynningu frá Pírötum kom fram að þingflokkurinn hefði sam- þykkt einróma að bjóða Andrés velkominn í hópinn. „Andrés Ingi og þingflokkurinn hafa átt í góðu samstarfi, flutt saman fjölda þing- mála og unnið náið saman í nefnd- um þingsins. Með tímanum hefur komið í ljós að um er að ræða nátt- úrulega bandamenn með margar sameiginlegar áherslur,“ sagði í tilkynningunni. Andrés Ingi til liðs við Pírata  Gefur kost á sér í prófkjöri flokksins Andrés Ingi Jónsson Reynir Traustason ritstjóri og Trausti Hafsteinsson, fréttastjóri Mannlífs, hafa keypt vörumerkið Mannlíf og lénið mannlif.is af Birtingi útgáfufélagi. Reynir er gamalreyndur blaðamaður og starfaði á árum áður á DV, Fréttablaðinu og fleiri miðlum. Þá var hann einn af stofnendum Stundarinnar. Í tilkynningu er rakið að Birt- íngur útgáfufélag sé í eigu Goð- dala sem sé 100% í eigu Sigríðar Dagnýjar Sigurbjörnsdóttur. Boð- að er áframhaldandi samstarf við tímarit Birtíngs. Kaup Reynis og Trausta eru í gegnum einkahlutafélagið Sól- artún ehf., sem er að 75 prósent hluta í eigu Reynis og Trausti er eigandi að 25 prósenta hlut í félaginu, segir í tilkynn- ingu. Festa kaup á Mannlífi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.