Morgunblaðið - 11.02.2021, Side 16
16 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021
G O S I
Ævint ýri spý tustráks
Barnasýning
ársins 2020
Næstu sýningar
1 3. feb. 13:00 15:15 Uppselt
14. feb. 13:00 15:15 Uppselt
20. feb. 13:00 15:15 Uppselt
21. feb. 13:00 15:15 Uppselt
27. feb. 13:00 15:15 Ör fá sæti laus
28. feb. 13:00 15:15 Ör fá sæti laus
06. mar. 13:00 15:15
07. mar. 13:00 15:15
SBH. Morgunblaðið
Við fjölgum sýningum — tryggðu þér miða á borgarleikhus.is
Ísíðustu viku horfði ég á SigurðGuðmundsson, fyrrverandilandlækni, í frábærusjónvarpsviðtali segja frá
reynslu sinni í Malaví, þar sem heil-
brigðisvandamálum og lausnum á
þeim var eilítið öðruvísi háttað en í
okkar litla en auðuga eyríki. Það er
ekki víst að „hver er sinnar heilsu
smiður“ eigi jafnvel við í Malaví og
hjá okkur þar sem stór hluti af okkar
heilbrigðisvandamálum er lífsstíls-
tengdur.
Lífsviðhorf hafa áhrif á heilsuna
Mín reynsla eftir 38 ár sem læknir
er að almennt lífsviðhorf hvers og
eins hefur mikil áhrif á hvernig þeim
gengur að eiga við hverja heilbrigð-
isvá sem að þeim steðjar og þar tel ég
almenna jákvæðni til lífsins og fólks í
kringum sig einn sterkasta þáttinn í
velgengni í baráttunni við vágestinn
og sennilega á það við að einhverju
leyti alls staðar.
Meðferðarheldni er annar mjög
sterkur áhrifaþáttur og ekki síst í
baráttu við okkar lífsstílstengdu heil-
brigðisvandamál í hinum „þróaða“
heimi, þar sem tróna á toppnum stór-
æðasjúkdómar í hjarta, heila og út-
æðum, ásamt sykursýki og öðrum
áhættuþáttum þessu tengdum.
Þegar við skoðum nánar, þá er
meðferðarheldni við langtímalyfja-
meðferð u.þ.b. 50%, skammtímalyfja-
meðferð um 70-80% og lífsstílsbreyt-
ingar um 20-30%! Botninum nær þó
vikuleg beinþynningarmeðferð í
töfluformi eða heil 16%.
Bretarnir hafa áttað sig á að þetta
er stórt og dýrt vandamál og rétt fyr-
ir aldamótin tóku heilbrigðisyfirvöld
höndum saman með breska konung-
lega lyfjafræðingafélaginu og settu af
stað verkefni til að reyna að skilja
betur hvað lægi hér að baki og hvern-
ig best væri tekið á þessu. Niður-
staðan var „From Compliance to
Concordance“. Lykilorðin voru jafn-
ingjar og samvinna! Áherslur á að
upplýsa viðkomandi svo hann/hún
geti tekið upplýsta ákvörðun um sína
meðhöndlun í samvinnu við lækninn.
Niðurstaðan var og er sem sagt að:
Sjúklingurinn er auðvitað mikil-
vægasti meðferðaraðilinn!
Ef við fáum skjólstæðinginn ekki
með okkur í slaginn er stríðið tapað!
Eitt af mikilvægustu verkefnum
okkar í heilsugæslunni er að virkja
skjólstæðinga okkar til þátttöku í eig-
in meðferð og þannig ýta undir sjálfs-
eflingu og árangursríkari meðferð.
Vonandi tekst okkur þannig saman
að auka lífsgæði viðkomandi bæði til
skemmri og lengri tíma.
Það hefur verið mikil áhersla á há-
tæknilækningar alllengi, enda hafa
þær mikil áhrif hér og nú fyrir hvern
og einn. Hins vegar er spurning hvort
lágtæknilækningar og þjóðfélagsleg
inngrip hafi í raun ekki miklu víðtæk-
ari og langvinnari áhrif þegar á heild-
ina er litið.
Aukin áhersla heilsu-
gæslunnar á lífsstíl
Nærtækasta dæmið fyrir okkur er
auðvitað inngrip og einfaldar ráð-
leggingar sóttvarnalæknis í tengslum
við Covid-19, sem hafa ekki bara haft
jákvæð áhrif á dreifingu Covid-19
heldur líka á aðrar sýkingar og mikið
minnkaða sýklalyfjanotkun. Svo ekki
sé minnst á gífurlega jákvæð áhrif
bólusetninga almennt á heilbrigði alls
heimsins. Annað dæmi er bann við
reykingum á veitingastöðum og op-
inberum stöðum 2007 , sem á örfáum
vikum fækkaði hjartaáföllum um 17-
19% bæði hjá reykingamönnum og
hjá þeim sem ekki reyktu (óbeinar
reykingar). Með áherslu heilsugæsl-
unnar á lífsstíl og tengdar móttökur,
þar sem lengst eru komnar sykursýk-
ismóttökur, er vonandi að lágtækni-
lækningar með áherslu á m.a. með-
ferðarheldni fari að hasla sér frekari
völl hér á landi.
Ráðleggingar um heilbrigðan lífs-
stíl, næringu og hreyfingu er að finna
bæði á heilsuvera.is og á
throunarmidstod.is/leidbeiningar/
sykursykismottaka/skjolstaeding-
urinn.
Hver er sinnar heilsu smiður!
Morgunblaðið/Eggert
Skokkað Mikilvægi hreyfingar er ómetanlegt fyrir heilsu, líf og líðan.
Unnið í samstarfi við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins.
Heilsuráð
Hörður Björnsson
svæðisstjóri og fagstjóri lækn-
inga í Heilsugæslunni Miðbæ
Morgunblaðið/Eyþór
Aldin Ávextirnir eru ágætir og ómæld hollusta er í hverjum bita.
Morgunblaðið/Valli
Matur Grænmetisrétturinn er grill-
aður, góður og afar girnilegur.