Morgunblaðið - 11.02.2021, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 11.02.2021, Blaðsíða 67
DÆGRADVÖL 67 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021 Stærðir: 18–24 Verð 10.995 Margir litir Biomecanics-skórnir auðvelda börnum að taka fyrstu skrefin. Aukinn stuðningur frá hliðunum bætir jafnvægi og eykur stöðugleika. Börnin komast auðveldar áfram og af meira öryggi þökk sé sveigjanlegum sóla og sérstyrktri tá. í fyrstu skónum frá Biomecanics SKOÐAÐU ÚRVALIÐ Á VEFSÍÐUNNI OKKAR www.skornirthinir.is ÖRUGG SKREF ÚT Í LÍFIÐ SMÁRALIND www.skornir.is „ÞAÐ KOM ÞVÍ MÖRGUM Á ÓVART AÐ HANN, EFTIR RÖÐ HNEYKSLISMÁLA, SKYLDI SEGJA AF SÉR SEM FORMAÐUR OG FARA Í FRAMBOÐ SEM FORNMAÐUR.” „JÆJA, ÞÁ BYRJUM VIÐ! NÚMER EITT: FARÐU ÚR SKYRTUNNI.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... traustvekjandi. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann HALLÓ! VIÐ ERUM GARN- HNYKLAR. VIÐ KOMUM Í FRIÐI BÍDDU … HVAR ERUM VIÐ LENTIR? MAAAL… Ó, NEI! KATTAPLÁNETAN! MAAAL MAAAL DANGLIÐ Í ÞÁ! DANGLIÐ Í ÞÁ! DANGLIÐ Í ÞÁ! BARINN LOKAR! SKELFILEG ORÐ! SÉRSTAKLEGA ÞEGAR HANN ÖSKRAR ÞAU! 29.10. 1950 í Reykjavík. Hugrún starfaði lengst af hjá Vátrygginga- félagi Íslands. Þau búa í Reykjavík. Foreldrar Hugrúnar voru hjónin Jó- hanna G. Davíðsdóttir, f. 3.9. 1920 á Patreksfirði, d. 4.1. 2003, húsmóðir og Pétur Hafliði Ólafsson, f. 10.2. 1920 í Stykkishólmi, d. 5.12. 2009, sjómaður. Þau voru búsett í Reykja- vík. Börn Marteins og Hugrúnar eru: 1) Margrét, f. 12.11. 1971, fjölmiðla- kona og starfsmaður á Gljúfrasteini, bús. í Reykjavík. Börn hennar með fv. sambýlismanni sínum, Brynjólfi Hilmarssyni, eru Rakel, f. 1995, og Marteinn Elí, f. 2003; 2) Pétur Haf- liði, f. 14.7. 1973, athafnamaður og rekur kaffihús Vesturbæjar o.fl. og er fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu. Eiginkona hans er dr. Unnur Anna Valdimarsdóttir frá Ólafsfirði, prófessor við HÍ. Þeirra dóttir er Lilja Hugrún, f. 2005. Þau búa í Reykjavík; 3) Íris Dögg H., f. 28.8. 1982, sérfræðingur í Brúnni hjá Hafnarfjarðarbæ og rekur fyrir- tækið Elfur ráðgjöf. Eiginmaður hennar er Benedikt Steinar Ben- ónýsson frá Akranesi, umbóta- sérfræðingur hjá Elkem. Börn þeirra eru Viktor Benóný, f. 2005, Hafrún Embla, f. 2006, og Tindur Marinó, f. 2012. Þau búa í Hafn- arfirði. Systkini Marteins eru Agnes, f. 28.4. 1952. d. 28.10. 2018, fram- kvæmdastjóri Smáratorgs ehf. og hannaði og saumaði föt undir fata- merkinu Agnes design, bjó í Kefla- vík; Helga Margrét, f. 3.10. 1954. fv. féhirðir í Íslandsbanka, búsett í Garðabæ; Þorvaldur, f. 26.4. 1958, múrari og fv. slökkviliðs- og sjúkra- flutningamaður, búsettur í Reykja- vík; Guðrún, f. 14.9. 1961, félagsliði í íbúðakjarna fyrir fatlaða hjá Reykjavíkurborg, búsett í Reykja- vík. Foreldrar Marteins voru hjónin Gunnhildur Viktorsdóttir, f. 15.1. 1929, d. 14.10. 2014, húsmóðir og vann á saumastofu í Reykjavík, og Geir Þorvaldsson, f. 27.8. 1930, d. 9.12. 2004, verkstjóri í Reykjavík. Þau voru bæði frá Ólafsfirði. Marteinn Elí Geirsson Jón Guðjónsson bóndi á Melum og Reykjum í Mjóafirði Guðrún Jóhannsdóttir Grundtvig húsfreyja í Hringverskoti í Ólafsfirði Sæmundur Pálmi Jónsson bóndi í Hringverskoti Margrét Sæmundsdóttir húsfreyja í Ólafsfirði, síðar matráðskona og ráðskona á Blindraheimilinu við Bjarkargötu Marteinn Elí Ingimarsson sjómaður í Ólafsfirði, stjúpfaðir Gunnhildar Sigríður Ingibjörg Marteinsdóttir húsfreyja í Ólafsfirði Ingimar Jón Jónsson sjómaður í Ólafsfirði Úr frændgarði Marteins Geirssonar Gunnhildur Viktorsdóttir húsmóðir í Reykjavík og vann á saumastofu Þorbjörnsína Helga Árnadóttir húsfreyja í Reykjavík, kjörmóðir Geirs Þorvaldur Jónsson skrifstofumaður í Reykjavík, kjörfaðir Geirs Árni Friðfinnsson bóndi á Hjáleigueyri Sigríður Þorbjörnsdóttir húsfreyja á Hjáleigueyri við Reyðarfjörð Geir Þorvaldsson verkstjóri í Reykjavík, móðir Geirs var Laufey Frímannsdóttir Agnes Jónsdóttir ljósmóðir á Melum og Reykjum Út er komin bókin „Birtingaljóðog laust mál“. Eins og segir í aðfaraorðum er þar að finna sög- ur frá Birtingaholti í Hruna- mannahreppi, m.a. er þar fræðileg úttekt á staðháttum og sagt frá kórastarfi. Mest fer þó fyrir ljóð- unum. Ég nefni hér fyrst til sögunnar stöku eftir Sigurð Ágústsson, „Söngsins tár“: Sá, er lætur söngsins tár í sálarbikar skína, geymir fram á elliár æskugleði sína. „Heilræði“ er yfirskrift þessarar stöku: Láttu sífellt söngsins mál seytla daga og nætur inn í þína ungu sál inn í hjartarætur. Sigurður var einn á ferð út Ölf- us með vagnalest: Hér stendur Kotstrandarkirkja með kross upp úr þakinu. Söfnuður hennar sefur með syndir á bakinu. Hér er drykkjuvísa, sem hefur flogið víða og ég lærði í Hvalstöð- inni fyrir 60 árum rúmum: Gleði raskast, vantar vín verður brask að gera, en ef að taska opnast mín á þar flaska að vera. Og svo eru „Gamlar götur“: Þjóðin hafnar því sem var, þýðist nýja siði. Gömlu kirkjugöturnar gróa nú í friði. Hér yrkir ræktunarmaðurinn og bóndinn Sigurður í glampandi sól- skini: Ég plægi mitt land og er landnáms- maður af lífi og sál, og í hjarta glaður að finna hve moldin freyðir um plóg- inn er fákarnir þramma og leggjast með bóginn í klafana mjúka og kasta toppnum. Hér kýs ég að lifa – undir himninum opnum. Það er bjart yfir vísum Ásthild- ar Sigurðardóttur. Eiginmaður hennar Guðmundur Ingimarsson rifjar upp þessa vorvísu því að „hún var og verður alltaf barn vorins“: Vorið öllum veitir þrótt vorið töfra hefur vorið kemur vært og rótt vorið allt umvefur. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Blaðað í Birtingaljóðum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.