Morgunblaðið - 11.02.2021, Side 24

Morgunblaðið - 11.02.2021, Side 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021 Bolholti 4 • 105 Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a Úrval aukahluta: Hulstur, Hleðslutæki, Snúrur, Minniskort, USB lyklar og fleira VIÐ GERUM VIÐ allar tegundir síma, spjaldtölva, tölva og dróna Bolholt 4 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Tillaga arkitektastofunnar Kurtogpí bar sigur úr býtum í samkeppni um nýjar byggingar á Kirkjusandi. Þær koma í stað Íslandsbankahússins sem stendur á lóðinni. Húsið verður rifið en það var dæmt ónýtt vegna rakaskemmda. Vinningstillagan verður unnin áfram sem nýtt deili- skipulag fyrir Kirkjusand 2, lóð A á Kirkjusandsreit. Fimm byggingar munu rísa á reitnum. Aðalbyggingin, næst Sæ- braut, verður sjö hæðir og útlit hennar minnir á Íslandsbankahúsið, sem nú stendur á reitnum. Samkeppnin var lokuð fram- kvæmdakeppni í samstarfi við Arki- tektafélag Íslands. Verkkaupi var fjárfestingasjóðurinn Langbrók sem er lóðarhafi á Kirkjusandi 2. For- sögn samkeppninnar var unnin í samstarfi við skipulagssvið Reykja- víkurborgar. Langbrók er í stýringu hjá Íslandssjóðum. Verkkaupi bauð eftirtöldum arki- tektastofum þátttöku í lokaðri fram- kvæmdakeppni: Gláma Kím, Kurt- ogpí, Studio Arnhildur Pálmadóttir og THG arkitektar. Allar stofurnar skiluðu inn tillögum. Dómnefnd var einróma í afstöðu sinni og hlaut Kurtogpí verðlaunin, eina milljón króna. Höfundar tillögunnar eru arkitektarnir Ásmundur Hrafn Sturluson og Steinþór Kári Kárason og samstarfsfólk voru arkitektarnir Garðar Snæbjörnsson og Jóhanna Hoeg Sigurðardóttir. Sterk einkenni gamla hússins „Hugmyndir um endurbyggingu, staðsetningu og nýtt hlutverk gamla frystihússins eru vel ígrundaðar. Það er endurbyggt sem íbúðarhús og ber hið endurbyggða hús sterk einkenni gamla frystihússins hvort sem er í mælikvarða, samsetningu eða efn- iskennd. Byggingarmassar tillög- unnar bjóða almennt upp á vel skipu- lagðar og bjartar íbúðir af mismunandi stærðum og gerðum og stórt hlutfall þeirra er með úthliðar til fleiri átta,“ segir m.a. um sigur- tillöguna í áliti dómnefndar. Fimm byggingar verði á lóðinni, hver með sitt einkenni og hlutverk. Skipulag lóðar er rökrétt og í góðu samhengi við aðrar lóðir á Kirkju- sandsreit, segir dómnefndin. Upp- bygging lóðarinnar sé yfirveguð og afslöppuð. Byggingar hafi gott and- rými þrátt fyrir þéttleika reitsins, myndi áhugaverð borgarrými og styðji vel við götumynd Hallgerðar- götu. „Samspil bygginga og borgarrýma er sannfærandi og gefur fyrirheit um vönduð almenningsrými sem styðja við lifandi mannlíf á svæðinu. Göngu- leiðir eru fjölbreyttar, bjóða upp á ólíkar upplifanir og skapa góð tengsl við nærumhverfið.“ Íslandsbankabyggingin var upp- haflega frystihús, sem reist var á ár- unum 1955-1962 af hlutafélögunum Júpíter og Mars. Byggingin á Kirkjusandi er 7.719 fermetrar að stærð. Þarna voru aðalstöðvar Ís- landsbanka til ársins 2017 er hann flutti í Kópavog. Ástæðan var sú að rakaskemmdir voru í húsinu á Kirkjusandi. Sérfræðingar voru kall- aðir til og dæmdu þeir húsið ónot- hæft og var því ákveðið í framhald- inu að rífa það. Í dómnefnd sátu Jónas Þór Jón- asson, sjóðsstjóri og formaður dóm- nefndar, og Kristján Eggertsson, arkitekt FAÍ, tilnefndir af Landbrók og Sigríður Magnúsdóttir, arkitekt FA, tilnefnd af Arkitektafélagi Ís- lands. Ritari dómnefndar var Bjarg- ey Björgvinsdóttir,verkfræðingur og arkitekt FAÍ. Trúnaðarmaður sam- keppninnar var Helga Guðjóns- dóttir, skrifstofustjóri Arkitekta- félags Íslands. Hægt er að kynna sér niðurstöður arkitektasamkeppn- innar á vefnum www.kirkjusand- ur.is. Ný bygging líkist þeirri gömlu  Arkitektastofan Kurtogpí varð hlutskörpust í samkeppni um nýtt íbúðarhús sem rís á Kirkjusandi  Kemur í stað Íslandsbankahússins sem var metið ónýtt og verður rifið  Langbrók er lóðarhafinn Tölvumynd/Kurtogpí Ný ásýnd Sæbrautar Hér má sjá hvar hið nýja hús (hvítt) hefur verið sett inn í götumynd Sæbrautarinnar. Það verður nær götunni en gamla húsið er nú. Morgunblaðið/sisi Íslandsbankahúsið Það hefur verið dæmt ónýtt og verður rifið til að rýma fyrir nýjum byggingum. Engin starfsemi hefur verið í húsinu síðan 2017. Íbúaráð Grafarvogs hefur dregið til baka tillögu sína um breytingu á póstnúmeri Bryggjuhverfis, sem samþykkt var á fundi ráðsins 6. jan- úar síðastliðinn. Á þeim fundi óskaði íbúaráð Graf- arvogs eftir því við póstnúmera- nefnd að póstnúmeri Bryggjuhverfis yrði breytt. Núna er póstnúmer Bryggjuhverfisins 110, sem er það sama og í Árbæjarhverfi. Í núver- andi skipulagi fylgi Bryggjuhverfi Grafarvogi, sem er með póstnúmer 112, og því sé eðlilegast að hverfið fái sama póstnúmer og önnur hverfi í Grafarvogi Fram kom á fundi íbúaráðsins 3. febrúar sl. að eftir að upphaflega til- lagan var samþykkt hafi farið fram miklar umræður um málið í Bryggjuhverfi og var ákveðið að taka málið fyrir á aðalfundi Bryggju- ráðs, íbúasamtaka í Bryggjuhverfi. Var niðurstaða Bryggjuráðsins að óskað yrði eftir því við íbúaráð Graf- arvogs að draga tillöguna til baka. Vakin var athygli á því að frekari umræðu væri þörf í hverfinu ef fara ætti í breytingar á póstnúmeri þess. „Vill því íbúaráð Grafarvogs verða við þessari beiðni íbúa og draga upp- haflega tillögu um breytingu á póst- númeri til baka,“ segir í bókun íbúa- ráðsins. sisi@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Bryggjuhverfið Póstnúmer hverfisins verður það sama og verið hefur, 110. Póstnúmerið óbreytt í Bryggjuhverfinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.