Morgunblaðið - 11.02.2021, Blaðsíða 46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021
Ferðalög á
Páll Guðmundsson
palli@fi.is
Þrátt fyrir vinsældir fjallsins til
útivistar og fagurt yfirbragð er
Esjan krefjandi fjall. Í raun vold-
ugur fjallgarður með fjölmörgum
krefjandi gönguleiðum. Víða eru
uppgönguleiðir hennar varðar með
klettabelti. Hæst er Esjan 914
metrar og er því hæsta fjall í ná-
grenni Reykjavíkur. Vinsældir Esj-
unnar sem útivistarsvæðis hafa far-
ið stöðugt vaxandi undanfarin ár.
Það sést meðal annars vel í gesta-
bókum Ferðafélags Íslands á Þver-
fellshorni og við Stein. Um leið hef-
ur slysum í fjallinu fjölgað og
Esjan er það fjall á landinu þar
sem flest útivistarslys hafa orðið sl.
ár. Því er rétt að hafa góðan búnað
þegar gengið er á fjallið, ekki síst
að vetrarlagi, og þarf þá allan bún-
að til vetrarfjallamennsku. Byrj-
endur í fjallamennsku ættu frekar
að ganga á lægri fjöll en Esjuna,
t.d. Úlfarsfell eða Mosfell.
Nafn Esjunnar hefur aldrei verið
útskýrt svo með góðu móti sé.
Fyrstu landnemarnir hafa líklega
gefið fjallinu nafn. Esja er þekkt
nafn í norsku máli. Samkvæmt
landnámu var Örlygur gamli land-
námsmaður á Kjalarnesi sá er
fyrstur bjó á Esjubergi. Ekki er
ólíklegt að hann hafi gefið fjallinu
nafn eða þá Helgi Bjóla sem var
fyrsti landnámsmaður á Kjalarnesi.
Á landsnámstíð kom Esja kerling
frá Írlandi og tók við búi af Örlygi
landnámsmanni á Esjubergi , líkt
og fram kemur í Kjalnesingasögu.
Esja kerling var rík og afgerandi
og lét til sín taka og ekki óeðlilegt
að ætla að fjallið væri nefnt eftir
henni.
Esjan virðist frá Reykjavík vera
langur fjallgarður sem nær frá
Hvalfirði að vestanverðu, austur að
Skálafelli og drögum Mosfells-
heiðar, um 17 km í beinni loftlínu.
Hún er þó frekar fjallbálkur, marg-
klofinn af djúpum dölum og mynd-
ar í raun mörg fjöll og marga hálsa
sem liggja í allar áttir frá há-
Esjunni. Há-Esjan rís í vestri með
Kerhólakambi og endar í austri við
Móskarðahnúk þar sem Svínaskarð
klýfur fjalllendið frá Skálafelli. Há-
Esjan er að ofan óreglulegt flat-
lendi, víðast hvar á bilinu 850-900
metrar yfir sjó. Áður var lengi talið
að Hátindur, sem er 908 metra hár,
væri hæsti tindur Esjunnar eins og
nafn hans gefur óbeint til kynna en
svo er ekki. Í mælingum hefur
komið í ljós að Hábungan er hæsti
tindur Esjunnar, 914 metrar.
Gönguleiðir á Esju
Gaman er að ferðast um landið
og þekkja það betur og betur bæði
út frá örnefnum, gróðurfari og
dýralífi og ekki síður sögu landsins
og menningu. Esjan hefur það
fram yfir mörg fjöll að hún hefur
að geyma margar gönguleiðir.
Margir þekkja reyndar kannski að-
eins þær vinsælustu. Og sumir
þekkja Esjuna Kjósarmegin nánast
ekki neitt þrátt fyrir að þar liggi
margar góðar gönguleiðir og rísi
áhugaverðir tindar.
Skógræktarfélag Reykjavíkur
hefur haft umsjón með Esjuhlíðum
frá árinu 2000. Ferðafélag Íslands
hafði áður lagt stíga í efri hluta
fjallsins, byggt göngubrýr og sett
keðjur og þrep í kletta á Þverfells-
horni. FÍ hefur einnig í samstarfi
við Landsbjörg sett upp fræðslu-
skilti með upplýsingum um örygg-
isatriði við upphaf gönguleiða á
Þverfellshorn, Kerhólakamb og
Móskarðahnúka. Skógrækt-
arfélagið í samvinnu við hjólreiða-
félög hefur nýlega byggt upp hjóla-
leið á svæðinu neðan við
Gunnlaugsskarð.
Aðgengilegasta og mest skipu-
lagða göngusvæðið í Esjunni er
undirhlíðar hennar upp frá Mógilsá
og á svæðinu milli Mógilsár og
Kollafjarðarár þar sem liggja
margir greiðfærir göngustígar. Þar
hafa einnig nýlega verið byggðir
upp hjólreiðastígar að frumkvæði
Skógræktarfélagsins í samstarfi
við hjólreiðafélög.
Frá bílastæðinu á Mógilsá er
gengið á Þverfellshorn, vinsælustu
gönguleið Esjunnar sem líklega
gæti einnig borið titilinn vinsælasta
gönguleið landsins. Þverfellshorn
er vesturhluti Þverfells og endar
það í hvössu horni vestast, upp af
fjallsrana eða hálsi sem liggur milli
giljadraga Mógilsár og Gljúfurdals.
Að austanverðu nær Þverfellið að
Gunnlaugsskarði sem er lægð í
fjallinu á milli Kistufells og Þver-
fells.
Aðrar gönguleiðir á Esjuna eru á
Kerhólakamb, upp Gunnlaugs-
skarð, á Kistufell, Hábungu og Há-
tind, um Laufskörð og á Móskarða-
hnúka. Þá eru ótaldir
Dýjadalstindur og Þórnýjartindur,
Trana og Skálatindur. Um Svína-
skarð liggur gömul þjóðleið yfir í
Kjósina. Kjósarmegin eru nokkrir
misstórir dalir sem kljúfa fjallgarð-
inn; Elífsdalur, Blikdalur, Flekku-
dalur, Eyjadalur og Grjótdalur.
Þannig skiptist Esjan í ótal mörg
göngusvæði þar sem finna má
áhugaverðar gönguleiðir og fjöl-
marga tinda.
Esjan í allri sinni dýrð
Esjan er bæjarfjall Reykjavíkur og blasir við borgarbúum handan Kollafjarðar. Á undanförnum árum hefur Esjan
orðið einn vinsælasti útivistarstaður borgarbúa og nú stunda tugþúsundir fjallgöngur og útivist í fjallinu á hverju
ári. Með fjölbreytileika sínum, litbrigðum og síbreytilegri fegurð fangar hún augu og vekur aðdáun borgarbúans.
Ljósmynd/FÍ myndabanki
Esjan og Viðey Esjan er innan borgarmarka Reykjavíkur og er eitt af einkennum höfuðborgarsvæðisins. Hér skartar hún sínu fegursta í vetrarham.
Morgunblaðið/Ingó
Heilsubót Fjölmargir, bæði fólk og ferfætlingar, ganga reglulega á Esju.
Verð: 22.995.-
Stærðir: 36 - 41
Vnr. E-803743
Verð: 22.995.-
Stærðir: 41- 45
Vnr. E-803734
Verð: 22.995.-
Stærðir: 36 - 41
Vnr. E-803743
- Auðvelt að fara í og úr skónum
- ECCO FLUIDFORM™ sóli
- SHOCK THRU höggdempun
- Gott grip
- Léttur, sveigjanlegur
og þægilegur
ECCO ZIPFLEX
NÝ SENDING AF DÖMU- OG HERRASKÓM