Morgunblaðið - 11.02.2021, Síða 58
Íslenskt ál um allan heim | nordural.is
Norðurál leitar
að öflugu fólki
Íslenski áliðnaðurinn er með stærstu útflutningsgreinum landsins
og Norðurál er eitt stærsta iðnfyrirtæki á Íslandi. Hjá okkur starfa
um 600 manns með fjölbreytta menntun og bakgrunn. Á hverju ári
notum við endurnýjanlega raforku til að framleiða um 320.000 tonn
af áli fyrir erlenda markaði.
Norðurál óskar eftir að ráða öfluga sérfræðinga
Verkefnin eru fjölmörg, áhugaverð og krefjandi í lifandi og góðu
starfsumhverfi þar sem metnaður og fagmennska eru í fyrirrúmi.
Við leggjum áherslu á jöfn tækifæri, góðan starfsanda og samstarf
ásamt ríkri öryggis- og umhverfisvitund.
Áreiðanleikafræðingur (Reliability Engineer)
Helstu viðfangsefni eru gerð fyrirbyggjandi viðhaldsáætlana fyrir
fram leiðslubúnað, rýni á viðhaldskerfi til að greina tækifæri til um-
bóta, greining gagna, skýrslugerð og tölfræðileg úrvinnsla ásamt
þróun lykilmælikvarða. Áreiðanleikafræðingur sinnir rótar greiningu
á bilunum í framleiðslubúnaði, gæðaeftirliti, veitir verk áætlanadeild
og viðhaldsteymi tæknilegan stuðning og tekur þátt í þverfaglegum
umbótaverkefnum.
Sérfræðingur iðntölvukerfa steypuskála
Helstu viðfangsefni eru þróun stýri- og stjórnkerfa, umsjón með
iðnstýriforritum fyrir búnað steypuskála og hýsingu þeirra, stuðla að
aukinni sjálfvirkni búnaðar og nýtingu upplýsinga frá iðnstýrikerfum
og að hámarka skilvirkni ferla og kerfa. Viðkomandi er þátttakandi í
skilgreiningu og hönnun vegna breytinga og nýfjárfestinga.
Sérfræðingur vélbúnaðar
Helstu viðfangsefni eru tæknilegur stuðningur og ráðgjöf vegna
viðhalds og reksturs á vélbúnaði, hönnun og eftirfylgni með
breytingum á vélbúnaði og þátttaka í verkefnum um aukna sjálfvirkni
búnaðar. Viðkomandi mun sjá um samskipti við framleiðsludeildir og
framleiðendur búnaðar og taka þátt í skilgreiningu og hönnun vegna
breytinga og nýfjárfestinga.
Nánari upplýsingar um störfin og menntunar- og hæfniskröfur
er að finna á intellecta.is.
Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon (torfi@intellecta.is) og Hafdís Ósk
Péturs dóttir (hafdis@intellecta.is) í síma 511 1225. Umsóknarfrestur er til og með
17. febrúar nk. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Sótt er um á intellecta.is og þarf starfsferilskrá að fylgja umsókn.