Morgunblaðið - 11.02.2021, Page 71
MENNING 71
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
VA R I E T Y C H I C AG O S U N
T I M E S
I N D I E W I R E T H E T E L E G R A P H
Nafngift nýrrar íslenskrargamanmyndar, Hvernigá að vera klassa drusla,fangar athygli manns.
Drusla er vissulega gildishlaðið orð,
notað til að niðra og stýra konum en
á undanförnum árum hefur það verið
notað á valdeflandi hátt af femín-
ískum hreyfingum eins og Druslu-
göngunni. Þessi örlítið stuðandi titill
er nokkuð lýsandi fyrir kvikmynd
sem reynir að vekja athygli áhorf-
andans á beinskeyttan máta, en
kynjapólítík og kynhegðun kvenna
liggja henni tvímælalaust til grund-
vallar. Hvernig á að vera klassa
drusla virðir þó háleitnina að vettugi
og miðar ætíð á lægsta samnefn-
arann – typpi og píkur (og allt sem
getur farið úrskeiðis á stefnumótum
þeirra) eru til umfjöllunar.
Í upphafsatriðinu er upplegg
myndarinnar kynnt á snarplegan
hátt undir dynjandi upptakti tónlist-
ar. Karen (Ásta Júlía Einarsdóttir),
keyrandi um á rallíjálki, sækir Tönju
(Ylfa Marín Haraldsdóttir) sem er
vant við látin við að fleygja eigum
kærasta síns út á götu. Tanja hoppar
upp í og er ferðinni heitið út í sveit,
þar sem Karen þekkir vel til, en
drónaskot (þessu ofnotaða og hvim-
leiða stílbragði mætti úthýsa í hvelli)
gerir ferðalagi kaggans á þjóðveg-
inum skil. Stúlkurnar staðnæmast
við bensínstöð en bíllinn vill ekki í
gang aftur. Við stöðina eru tvær
verslanir, merktar með ósannfær-
andi heimagerðum skiltum, þ. á m.
„bifreiðaverkstæði Alla“. Hinn ungi
og myndarlegi Alli mætir sótugur á
hlýrabol, drjúpandi af svita og segul-
magnaðri karlorku. Karen, klædd
leðurjakka og þröngum gallabuxum,
beygir sig yfir skott bílsins og setur
stút á varirnar. Fáranleiki mynd-
skeiðsins framkallar hugrenninga-
tengsl við ógrynni bíómyndaklisja og
gefur til kynna að hér sé um ofur
kyngerða veröld að ræða. Söguheim-
urinn er ýktur og klúr, málaður
stórum dráttum og einkanlega bíó-
myndalegur í eðli sínu.
Söguhetjurnar Karen og Tanja
eru tvær hliðar spaugpenings, hálf-
gerðar erkitýpur og fullkomið
tvíeyki. Sveitapían Karen er spaði
sem hefur alltaf svar á reiðum hönd-
um og lifir eftir lífsmottóinu „ríða,
búið, bless“ – engin ábyrgð, engin
eftirsjá. Besta vinkona hennar Tanja
er óörugg með sig og „ástsjúk“ að
mati Karenar – en líka óinnvígð og
„óþekkta aflið“ í sveitinni. Hún fetar
braut einkar nútímalegrar kven-
hetju, að hætti Bridget Jones og Liz
Lemon t.a.m., en hrakföll hennar
virðast engan enda geta tekið. Karen
reynir með misjöfnum árangri að
leggja Tönju lífsreglurnar og kenna
henni að sletta úr klaufunum. Ásta
Júlía Einarsdóttir leikur Karenu og
Ylfa Marín Haraldsdóttir gerir
Tönju skil. Ásta Júlía fær bitastæð-
ustu brandarana og er með hnefann
fullan af stælum. Ylfa Mist er
ólukkulegi leiksoppurinn og sýnir
breidd í gamanleik sínum en grín
hennar er hvað skemmtilegast þegar
það er „líkamlegt“. Gaman er að sjá
ný andlit fá tækifæri og standa sig
jafn vel og raun ber vitni.
Sveitin er afar kunnuglegt sögu-
svið íslenskra kvikmynda sem ber
sína fjölmörgu bagga. Snúið er
skemmtilega upp á téðar venjur í
Hvernig á að vera klassa drusla en
hér er veröldin ekki þunglamaleg og
harmræn heldur deila hreppsbúar
nektarmyndum á kynlífsappinu
„Sveitasex“. Eflaust væri hægt að
gera samanburð á myndinni og Dala-
lífi Þráins Bertelssonar, en rýnir er
ekki nægilega dómbær til þess. Lög
og reglur söguheimsins líkjast þó
mest amerískum gagnfræða- og
menntaskólaræmum á borð við Am-
erican Pie og Mean Girls. Andhetjan
Sandra minnir á Rizzo úr Grease í
leðurjakka sínum er hún keppir við
Karenu í ralli og um hylli strákanna
og grefur um leið undan vináttu
þeirra Tönju. Strákarnir eru auðvit-
að ávallt í lopapeysum, þ.e.a.s. þegar
þeir eru ekki í fjósinu að sprauta
vatni hver yfir annan en erótískt
augnaráð myndavélarinnar kyngerir
karlpeninginn af þvílíkri kátínu. Kári
Gotta og Rúnar Vilberg leika ástar-
viðföngin Ívar og Kára og skila
skemmtilegri og heillandi frammi-
stöðu. Vöðvastælti „lúðinn“ Kári
þjálfar sig fyrir geimferð með flaug-
um NASA og frosið yfirborð harð-
naglans Karenar bráðnar hægt og
bítandi. Geimfaraminnið er ein af
fjölmörgum klisjum sem er listilega
beitt í myndinni en stórskemmtilegt
er að sjá henni fleygt inn í íslenskt
sveitalíf. Einn af hápunktum mynd-
arinnar er þegar kappinn, undir lok
myndar, skartar óvænt heilgalla
merktum geimferðastofnuninni (og
Kaupfélagi Borgfirðinga), en sjón er
sögu ríkari.
Brandarar kvikmyndarinnar eru
linnulausir. Auðvitað hitta þeir ekki
allir í mark og myndin veigrar sér
ekki við aulagríni, en athyglisvert er
að húmorinn tekur á sig ýmsar birt-
ingarmyndir. Leikstjóri og handrits-
höfundur myndarinnar, Áslaug B.
Torfadóttir, sýnir að hún á auðugt
kómískt vopnabúr og samvinna
hennar með frekar óreyndu leikara-
liði er til fyrirmyndar (en reyndari
leikarar á borð við Steinunni Ólínu,
Ólafíu Hrönn og Þorstein Bachmann
eru nýttir vel í aukahlutverkum og
styrkja heildarmyndina). Samvinna
þeirra Magnúsar Ingvars Bjarna-
sonar, kvikmyndatökumanns og
klippara, er ekki síst eftirtektarverð
og gefur glensinu myndræna vídd.
Fallísk form finnast í spenastrokki
og Ylfa Marín verður hálfgerð „slap-
stick“-drottning í meðförum þeirra.
Eitt er að vera fyndin í orði en annað
að gera það á sjónrænan hátt.
Atburðarás myndarinnar reynir á
vináttubönd stúlknanna tveggja en
þær læra af reynslunni og vaxa fyrir
vikið – þessi venjulegi gangur. Allt er
þetta gert til að þjóna gríninu og er
öllu drama stillt í algert hóf. Hvernig
á að vera klassa drusla veit nefnilega
nákvæmlega hvað hún vill vera –
taumlaus og lágkúruleg skemmtun
og er það hennar helsti styrkur.
Myndin er afar lofandi frumraun
leikstjórans og ferskur andblær í ís-
lenskt kvikmyndalandslag.
Lof sé lægsta samnefnara
Skemmtileg Kvikmyndin er „taumlaus og lágkúruleg skemmtun og er það hennar helsti styrkur. Myndin er afar
lofandi frumraun leikstjórans og ferskur andblær í íslenskt kvikmyndalandslag,“ skrifar rýnir. Hér eru Ylfa Marín
Haraldsdóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Ásta Júlía Einarsdóttir í hlutverkum sínum.
Borgarbíó, Háskólabíó,
Laugarásbíó, Smárabíó
Hvernig á að vera klassa drusla
bbbmn
Leikstjórn og handrit: Ólöf Birna Torfa-
dóttir. Kvikmyndataka: Magnús Ingvar
Bjarnason. Klipping: Kári Jóhannesson,
Magnús Ingvar Bjarnason. Aðalleikarar:
Ásta Júlía Einarsdóttir, Ylfa Marín Har-
aldsdóttir, Konni Gotta, Rúnar Vilberg,
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir. Ísland,
2021. 89 mín.
GUNNAR
RAGNARSSON
KVIKMYNDIR