Morgunblaðið - 11.02.2021, Síða 80
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
laugardaga og sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
20-50%
Sparadu-
af borðstofu-
húsgögnum
11. feb. – 1. mars
20%
Sparadu-
af öllum borðbúnaði
CACTUS BORÐSTOFUBORÐ
borðplata úr svörtum marmara. Ø130 cm. Áður 159.900 kr.
Nú 127.900 kr. SPARAÐU 32.000 kr.
Konseft til ka-
oss nefnist
myndlistarsýn-
ing Aðalsteins
Þórssonar sem
haldin verður í
Deiglunni, sal
Gilfélagsins á
Akureyri, um
helgina. Sýn-
ingin verður opnuð annað kvöld, föstudagskvöld, kl. 20
og opin bæði laugardag og sunnudag milli kl. 14 og 17.
Um sýninguna segir Aðalsteinn: „Sama vatnið rennur
um ána, sama hvernig ásýnd árinnar breytist í því sí-
breytilega landslagi sem hún rennur um.“ Í tilkynningu
frá skipuleggjendum kemur fram að listamaðurinn
haldi á sýningunni áfram að tefla saman verkum sem
unnin eru út frá ólíkum nálgunum frá ólíkum tímum.
Fyrir þremur mánuðum var það Skáld nú er kaos. Á sýn-
ingunni má sjá ný verk og eldri sem fæst hafa verið
sýnd áður opinberlega. Nánari upplýsingar um Aðal-
stein og verk hans má sjá á vefnum www.steini.art.
Konseft til kaoss í Deiglunni
FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 42. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
„Mér fannst þetta spennandi ævintýri. Það er gott að
prófa nýja hluti. Það hefur enginn Íslendingur spilað í
deildinni þarna, þeir eru meistarar síðustu þriggja ára
og þetta er nýtt félag sem var fyrst í deildarkeppninni
2016. Það er mikil uppbygging í liðinu og það er
skemmtilegt að fara aðrar leiðir en aðrir íslenskir leik-
menn,“ segir knattspyrnumaðurinn Axel Óskar Andr-
ésson sem samdi í vikunni við lettneska liðið Riga. Axel
er 23 ára gamall og lék með öllum yngri landsliðum Ís-
lands en hann er alinn upp hjá Aftureldingu. »68
Skemmtilegt að fara aðrar leiðir en
aðrir íslenskir knattspyrnumenn
ÍÞRÓTTIR MENNING
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Paradísarheimt er minnisstætt
verkefni sem markaði tímamót í ís-
lenskri kvikmyndagerð. Skáldsaga
Nóbelsskáldsins er einstök um
margt. Er fróðleg, fyndin og gerist í
framandi umhverfi sem þurfti að
endurskapa sem leikmynd. Úr því
varð ævintýri sem hér er endursagt,“
segir Björn G. Björnsson leikmynda-
teiknari.
Steinahlíðar og Salt Lake City
Í Landsbókasafni Íslands í Þjóð-
arbókhlöðunni er nú uppi sýningin
Paradísarheimt 60/40, hvar sýnt er
og sagt frá leikmyndagerð fyrir sjón-
varpsmynd sem byggð var á sam-
nefndri skáldsögu Halldórs Laxness.
Sýningin var sett upp í tilefni þess að
á síðasta ári voru 60 ár síðan bók
Laxness kom út og 40 ár frá gerð
sjónvarpsmyndanna. Handrit Hall-
dórs að sögunni, ritað með hans eigin
hendi, er á sýningunni sem er hin
fyrsta sem sett er upp úr safnkosti
Leikminjasafns Íslands sem nú hefur
verið lagt niður. Ritaðar heimildir
þess voru afhentar Landsbókasafni
en leikmunir og annað slíkt fór til
Þjóðminjasafns Íslands.
Í Paradísarheimt segir frá Steinari
bónda í Hlíðum undir Steinahlíðum,
sem skírðist til mormónatrúar og
leitaði eftir það að landi fyrirheitna
lífs síns og fann í Utah-ríki í Banda-
ríkjunum. Bær Steinars var end-
urskapaður sem leikmynd, sem enn
stendur að hluta og er við Hvalnes í
Lóni. Í Salt Lake City í Utah var
smíðuð heil gata fyrir myndatök-
urnar. Atriði sem gerast áttu í Dan-
mörku voru tekin upp í Slésvík-
Holtsetalandi í Norður-Þýskalandi,
þar á meðal senurnar í konungshöll-
inni.
„Eftir að tökum lauk hélt ég til
haga teikningum, ljósmyndum og
ýmsum öðrum gögnum frá þessu
verkefni. Þetta má núna sjá og skoða
í Þjóðarbókhlöðunni, auk þess sem
brot úr sjónvarpsmyndunum rúlla
þar á skjá,“ segir Björn G. Björnsson
sem starfaði við gerð sjónvarpsefnis í
áratugi. Síðustu árin hefur hann ein-
beitt sér að gerð og hönnun sögusýn-
inga, sem finna má á menning-
arsetrum og byggðasöfnum víða um
land.
Fimm sýningar
Í fyrra vann Björn fimm sýningar
sem aldrei voru formlega opnaðar
vegna Covid-19 en fara nú að verða
aðgengilegar. Sýning um grá-
sleppukarla er í Byggðasafni Hafn-
arfjarðar, önnur um landpóstana
gömlu í Skógasafni og
Paradísarheimtarsýningin. Þá var
svonefnd saltfisksýning í menningar-
húsinu Kviku í Grindavík flutt í nýjan
sal og endurgerð. Og enn bíður upp-
setningar sýning um Tryggvaskála á
Selfossi, elsta húsið þar í bæ, sem að
stofni til er frá árinu 1891.
Paradísarheimt er
nú á nýrri sýningu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sýning Paradísarheimt var minnisstætt verkefni sem markaði tímamót í ís-
lenskri kvikmyndagerð,“ segir Björn G. Björnsson hér í Þjóðarbókhlöðu.
Ævintýri endursagt Leikmyndir úr Lóni og frá Utah
Handrit Frumdrög Nóbelsskáldsins að Paradísarheimt, bæði handskrifaðar
skissur og vélrituð blöð. Upphaf að öðru og meira, sem eftirtekt vakti.