Fréttablaðið - 28.08.2021, Síða 2
Hársbreidd frá metinu
það byrjar at með fjórum fræjum
ENN HOLLARI OLÍA
OMEGA 3 & 6
+ D - & E-VÍTAMÍN
fanndis@frettabladid.is
COVID-19 Eitt og hálft ár er nú liðið
frá því að fyrsta tilfelli Covid-smits
greindist hér á landi, en frá þeim
tíma hafa hátt í 11 þúsund manns
smitast og 32 látist.
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir segist ekki hafa haft neinar
fastmótaðar hugmyndir þegar
Covid kom hingað til lands, um
hversu lengi við myndum glíma við
vágestinn. Hann hafi þó búist við að
það tæki einhvern tíma.
„Á meðan maður þarf að halda
faraldrinum niðri, á meðan maður
getur ekki bara leyft honum að
fara óhindrað um samfélagið, að
þá erum við að teygja þetta á lang-
inn og það sá maður fyrir strax í
byrjun,“ segir Þórólfur.
„Þannig að ég sá jú fyrir mér að
þetta gæti dregist í eitt til tvö ár,
en nákvæmlega í hvaða formi var
náttúrlega ekki ljóst.“
Þórólfur vísar til þess að þegar
bóluefnin komu hafi farið að birta
til og vonir bundnar við að við
værum á lokasprettinum. „Svo
kemur þetta Delta-af brigði sem
breytir myndinni svolítið.“
Fjórða bylgja faraldursins hófst
í júlí síðastliðnum þar sem gripið
var til hertra aðgerða enn á ný og
var ljóst að veiran væri ekki að fara
að gefast upp.
Aðspurður um hvar hann haldi að
við munum standa þegar tvö ár eru
liðin frá fyrsta smitinu hér á landi
segir Þórólfur það ómögulegt að
segja, það fari allt eftir því hvernig
veiran hagar sér í framtíðinni.
„Það eru margir óvissuþættir í
þessu og við þurfum bara að halda
áfram að læra, safna gögnum, sjá
hvað við erum að gera og breyta þá
um stefnu og nálgun eftir því hvað
gögnin eru að segja okkur.“ n
Sá strax í byrjun
að baráttan gæti
dregist á langinn
Nýr kór er í bígerð í Hall-
grímskirkju. Auglýst var eftir
meðlimum í síðasta helgar-
blaði Fréttablaðsins og fóru
viðtökur fram úr björtustu
vonum. Vantar helst sterka
bassa.
benediktboas@frettabladid.is
SAMFÉLAG „Það er alltaf spennandi
að fá að vera með í því að búa til eitt-
hvað nýtt. Það að móta eitthvað inn
í framtíðina er eitthvað sem vekur
spennu hjá mér og fólkinu sem vill
koma í prufur,“ segir Steinar Logi
Helgason, organisti og kórstjóri í
Hallgrímskirkju.
Hallgrímskirkja auglýsti fyrir
viku í helgarblaði Fréttablaðsins
eftir meðlimum í nýjan kór, en eins
og frægt varð hefur Mótettukór
kirkjunnar sungið sitt síðasta lag
í henni. Fleiri kórar landsins hafa
einnig auglýst eftir áhugasömum
söngfuglum og eru viðtökur þar
einnig góðar. Kóramenning lifir því
góðu lífi hér á landi.
„Viðtökurnar hafa verið framar
vonum. Það eru f leiri kórar en við
að auglýsa eftir röddum í kórprufur.
Mér sýnist stefna í að stór hópur af
fólki vilji syngja í flottum kór í Hall-
grímskirkju. Hafandi sagt það þá
geta allir áhugasamir haft enn sam-
band við mig því ég er að raða niður
í kórprufur,“ segir Steinar.
Raddprufur verða haldnar í lok
mánaðarins en Steinar segir að
stefnt sé að fyrstu æfingu í byrjun
september. Æft verður á þriðjudags-
kvöldum og verður ein helgaræfing.
„Það er þannig með tónlistarstarfið
hér í Hallgrímskirkju að við viljum
búa til kór sem getur f lutt burðar-
virki kirkjutónlistarsögunnar, en
líka skoða hvað grasrótin er að gera
og sjá hvað er að gerast í listsköpun
nútímans. Vera í samstarfi og sam-
vinnu við þetta flotta og unga lista-
fólk sem við eigum í landinu.“
Hann segir að trúlega þurfi hann
f leiri bassa og jafnvel sóprana í
kórinn, en þó vilji hann aðallega
fá sem flesta í prufur enda sé fátt
skemmtilegra en að vera í kór. „Þetta
er áhugamannastarf þar sem eru
gerðar miklar söngkröfur. Þegar fólk
er að helga eitthvað af frítíma sínum
í svona starf er mikilvægt að það sé
skemmtilegt. Að þetta sé hópur sem
finnst gaman að mæta á æfingar og
sé félagslega sterkur.
Verkefnin eiga að vera þess eðlis
að fólk hlakki til að koma á æfingu.
Það er á mína ábyrgð að svo sé. Ég
hlakka allavega til fyrstu æfingar-
innar. Meira að segja mjög mikið.“ n
Fjölmargir vilja koma í
nýjan kór í Hallgrímskirkju
Steinar Logi Helgason, kórstjóri Hallgrímskirkju, var ráðinn um miðjan
mánuð. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann talsverða reynslu af stjórn kóra og
þykir ákaflega fær í sínu fagi. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Þegar fólk er að helga
eitthvað af frítíma
sínum í svona starf er
mikilvægt að það sé
skemmtilegt.
arnartomas@frettabladid.is
GRÆNLAND Vísindamenn við Kaup-
mannahafnarháskóla uppgötvuðu
fyrir tilviljun litla eyju norður af
Grænlandi sem er sú nyrsta í heimi.
Hingað til var eyjan Oodaq talin
sú nyrsta í heimi áður en nýupp-
götvaða eyjan, sem hefur enn ekki
fengið nafn, fannst um 780 metrum
norðar.
Í fréttatilkynningu frá háskólan-
um segir að eyjan sé um 30 sinnum
60 metrar að flatarmáli og teygi sig
um þrjá til fjóra metra yfir sjávar-
máli. Að sögn jarðvísindamann-
anna sem uppgötvuðu eyjuna gæti
hún þó verið skammlíf. Hún hafi
líklegast orðið til skyndilega í miklu
óveðri og gæti að sama skapi eyðst
jafn fljótt ef mikill stormur gengur
yfir. n
Nyrsta eyja í
heimi fundin
Það eru margir óvissu-
þættir í þessu og við
þurfum bara að halda
áfram að læra.
Þórólfur
Guðnason.
Sundkappinn Már Gunnarsson varð þrettándi í 50 metra skriðsundi í flokki S11 á Ólympíuleikum fatlaðra í Tókýó. Keflvíkingurinn kom í mark á 29,3 sekúnd-
um og var því um hálfri sekúndu frá Íslandsmeti sínu. Már keppti svo aftur í nótt, í þetta skipti í 100 metra baksundi. SJÁ SÍÐU 10 FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
2 Fréttir 28. ágúst 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ