Fréttablaðið - 28.08.2021, Side 18

Fréttablaðið - 28.08.2021, Side 18
Sigmar Guðmundsson ákvað að kveðja Ríkisútvarpið eftir aldarfjórðung og stefna á Alþingi. Sjómannssonurinn úr Garðabæ sem varð ræðu- snillingur hefur glímt við drauga áfengissýki og mis- notkunar, en veit nú ekkert betra en að hlaupa úti í nátt- úrunni. Sigmar segir að hann hafi ekki sjálfur leitað eftir því að komast á lista fyrir kosn-ingar í haust, heldur hafi honum óvænt boðist sæti á lista Viðreisnar. Hann hafi ávallt haft áhuga á pólitík og Viðreisn sé flokkur sem hann eigi hugmynda- fræðilega samleið með. „Mér fannst þetta spennandi og ákvað að láta slag standa,“ segir Sig- mar. „Ég er búinn að vera um aldar- fjórðung á RÚV, og líkar það ekki illa, en ég þurfti ekki að hugsa mig lengi eða mikið um. Ég fann að þetta var réttinn tíminn til að breyta til, ef ég ætlaði á annað borð að gera það.“ Stefna f lokksins varðandi Evr- ópumál, gjaldeyrismál, viðskipta- frelsi og sjávarútvegsmál heillaði Sigmar, sem og loftslagsmálin og heilbrigðismálin sem hann telur mjög aðkallandi á komandi kjör- tímabili . „Í umhver f ismálum megum við ekki aðeins horfa á vandamálin sem slík heldur einn- ig þau tækifæri sem bjóðast, í nýsköpun og f leiru, til þess að snúa þróuninni við,“ segir hann. „Í heilbr igðismálunum hef ur faraldurinn opinberað veikleika Landspítalans sem þarf að takast á við. Óhjákvæmilega litar þetta stjórnmálabaráttuna svo skömmu fyrir kosningar, en mér finnst einn- ig mikilvægt að það verði kosið um fleira en baráttuna við Covid.“ Sigmar segist ekki byrjaður að hugsa um hvort hann stefni á lang- an þingferil eða ráðherrastól. Verk- efnið núna er að komast inn á þing og tryggja flokknum góða stöðu. „Ef ríkisstjórnin fellur gæti orðið f lókið að mynda ríkisstjórn í ljósi Eitt úrræði hentar ekki öllum þess hvernig f lokkakerfið hefur þróast,“ segir hann, en telur að Við- reisn gæti leikið lykilhlutverk við myndun nýrrar stjórnar. „Við úti- lokum engan frá stjórnarsamstarfi en augljóslega yrði erfiðara að semja við suma flokka frekar en aðra.“ Sjómannssonur úr Garðabæ Stöðu sinnar vegna sem frétta- maður hjá RÚV hefur Sigmar hingað til ekki haft bein afskipti af stjórn- málastarfi, ef frá er talið stutt stopp í ungliðastarfi Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ, þar sem hann er alinn upp. Sigmar er sjómannssonur og sjó- mennska í báðum ættum hans, í Bolungarvík og á Akranesi. Faðir hans, Guðmundur Baldur Sigur- geirsson, var skipstjóri á fraktskipi. „Onei!“ segir Sigmar inntur eftir því hvort sjórinn hafi aldrei kallað á hann. „Garðabær er ekki beint mikill útgerðarbær. Ég man að ég fór einn túr með togara í Bolungarvík og síðan hef ég farið í nokkur skipti með Akraborginni. Þá er það upp- talið,“ segir hann og brosir. Túrar á fraktskipi gátu verið langir og því voru Sigmar og bróðir hans mest með móður sinni, Ölmu Hákonardóttur. Guðmundur og Alma skildu þegar Sigmar var á unglingsaldri. Snemma fékk Sigmar áhuga á fjölmiðlum og skráði hann sig á fjölmiðlabraut í Framhaldsskól- anum í Garðabæ. Hann segist þó oft og tíðum hafa sinnt félagslífinu mun betur en skólabókunum. „Ég er reyndar á þeirri skoðun að eitt það verðmætasta sem ég tók með mér þaðan hafi verið félagslífið. Það var góður grunnur að mörgu seinna í lífinu,“ segir hann. Heimsmet í tölvuleik Sem þekktur sjónvarpsmaður á RÚV og Stöð 2 og þar áður einn alræmd- asti útvarpsmaðurinn á X-inu hefur Sigmar gjarnan verið í kastljósi fjöl- miðlanna. Hann kom landanum þó fyrst fyrir sjónir sem heimsmethafi í tölvuspilinu Gyruss aðeins fimmtán ára gamall árið 1984. „Á þessum árum var lítið fyrir unglinga að gera og við héngum því í spilakassasölunum,“ segir hann um þennan tíma þegar Freddabar og Tralli voru aðalstaðirnir. „Ég eyddi allt of miklum tíma þarna og allt of miklum peningum. Sum spilin voru þannig að maður gat staðið við endalaust því maður gat safnað aukalífum.“ Heimsmetið var nú ekki formlega tekið út af neinum þar til bærum aðila heldur var stigafjöldinn bor- inn saman við það hæsta í amerísku tölvuleikjatímariti. „Ég átti heimsmetið í einum leik og félagi minn í öðrum. En við þurftum að leysa hvor annan af um tíma því hver törn gat verið meira en sólarhringur,“ segir Sigmar og sam- sinnir því að þetta geti ekki verið hollt fyrir börn. Sem betur fer hafi tómstundir barna og unglinga eflst til muna. Ræðulistin nýst vel Fyrir utan Gyruss skaraði Sigmar fram úr á einu sviði, það er í ræðulist. Í þrígang komst FG í úrslit hinnar nýstofnuðu MORFÍS-ræðukeppni í tíð Sigmars, í tvígang sigraði hann og í tvígang var Sigmar valinn ræðu- maður kvöldsins. Aðspurður segir Sigmar að keppn- in hafi ekki aðeins snúist um að flytja ræður, heldur einnig að forma þær og skrifa. Er hann á þeirri skoð- un að ræðulist ætti að vera skyldufag í skólum. „Ræðumennska snýst um að taka mikið magn upplýsinga, tína aðalatriðin til og koma þeim skil- merkilega fram í stuttri ræðu,“ segir hann. „Þetta hefur nýst mér ákaflega vel.“ Nái þeir báðir kjöri munu Sigmar og Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, mætast í pontu Alþingis líkt og þeir gerðu í MORFÍS árið 1987. „Það er ágætis hefð fyrir því að ég vinni Birgi og eigum við ekki bara að halda henni áfram,“ segir Sigmar kíminn. Sigmar segir allan gang á því hversu góðir ræðumenn núverandi og fyrrverandi alþingismenn séu. Gott sé þegar ræðumenn séu mælsk- ir, klárir og hafi mikinn hugsjóna- eld. Enn betra að þeir séu ekki bara bundnir blaði. Sigmar nefnir Helga Hrafn Gunnarsson, fráfarandi þing- mann Pírata, og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttir, formann Viðreisnar, sem góða ræðumenn. Bestur sé þó Steingrímur J. Sigfússon, sem hættir nú á þingi eftir 38 ár. „Mér fannst frábært að fylgjast með Steingrími í pontu þó ég hafi ekki alltaf verið sammála honum,“ segir Sigmar. „Hann talaði af ástríðu en ákaflega skipulega og af mikilli mælsku.“ Kristinn Haukur Guðnason kristinnhaukur @frettabladid.is Sigmar segir það verðmætasta sem hann hafi tekið með sér úr skóla hafa verið félagslífið og að ræðumennskan hefur nýst honum sérstak- lega vel. FRÉTTABLAÐIÐ/ HEIÐA Ég fann að þetta var réttinn tíminn til að breyta til, ef ég ætlaði á annað borð að gera það. 18 Helgin 28. ágúst 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.