Fréttablaðið - 28.08.2021, Síða 31

Fréttablaðið - 28.08.2021, Síða 31
Ofurbókari með margar hendur ERA er fyrirtækjaþjónusta nýrra tíma sem þjónustar marga aðila innanlands sem utan. Við sinnum fjármálaþjónustu fyrir fjölda sjálfstæðra rekstrareininga og byggjum ferlana okkar á framsækinni, rafrænni nálgun. Auk þess erum við með sérþekkingu á persónuvernd og trausti í víðum skilningi laga, fjármála og tækni. Við leitum að kröftugum einstaklingi til þess að leiða hóp starfsmanna og veita framúrskarandi þjónustu. Grunnþjónustan er í NAV en teygir sig vítt og breitt til annarra kerfa. Við óskum eftir einstaklingi sem hjálpar okkur að nýta tæknina enn betur og þróa áfram skilvirkni í ferlum og fyrirkomulagi. Þekking og hæfni • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Reynsla af fjármálastjórnun og færslu bókhalds nauðsynleg • Greiningarhæfni • Góð tæknileg þekking; færni í Excel nauðsynleg Nánari upplýsingar fást með að senda fyrirspurn á atvinna@era.is Umsóknir sendist á atvinna@era.is fyrir 3. september. • Reynsla af ársreikningaskilum æskileg • Snerpa og nákvæmni • Geta til að vinna undir álagi Framkvæmdastjóri - Fólk og fasteignir Hlutverk Þjóðskrár Íslands er að greiða götu fólks og fyrirtækja í samfélaginu og gæta upplýsinga um réttindi þeirra og eignir. Við sinnum því með því að safna, varðveita og miðla upplýsingum um fólk, mannvirki og landeignir. Innan starfssviðs Þjóðskrár Íslands er rekstur fasteignaskrár og þjóðskrár, útgefið fasteignamat og brunabótamat og umsjón með útgáfu vegabréfa. Við leggjum ríka áherslu á jákvæð samskipti og góða samvinnu sem er undirstaða góðrar þjónustu. Við teljum eftirsóknarvert að fá til liðs við okkur þá sem vilja starfa í anda gilda okkar um virðingu, sköpunargleði og áreiðanleika. Við kunnum vel að meta frumkvæði, nákvæmni og hraða í vinnubrögðum og nýtum aðferðir straumlínustjórnunar til að gera betur í dag en í gær. Nánari upplýsingar má finna á www.skra.is. Menntunar- og hæfniskröfur: Þjóðskrá leitar að framsæknum og reyndum leiðtoga til að stýra málaflokki er varðar fólk og fasteignir. Málaflokkurinn tekur til fasteignaskrár, fasteignamats og brunabótamats. Jafnframt fellur þjóðskrá, útgáfa vottorða og vegabréfa þar undir. Um er að ræða spennandi starf þar sem viðkomandi gefst tækifæri til að móta stefnu og skipulag, sem og að þróa og innleiða nýja stafræna ferla og samskipti í stafrænni vegferð stofnunarinnar. Þjóðskrá hefur tvær starfsstöðvar, á Akureyri og í Reykjavík. Starfið getur verið staðsett á hvorum stað sem er. Nánari upplýsingar um starfið veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Einar Örn Ævarsson (einarorn@intellecta.is) í síma 511 1225. • Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri og mannauðsmálum málaflokksins • Áætlunargerð, stefnumótun og framkvæmd á stefnu stofnunar • Skipulag stafrænnar vegferðar málaflokksins • Forysta og samskipti við fyrirtæki og stofnanir • Alþjóðasamstarf og þróunarvinna • Þátttaka í framkvæmdastjórn Þjóðskrár Helstu verkefni og ábyrgð: Umsóknarfrestur er til og með 13. september 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Um er að ræða fullt starf og laun samkvæmt kjarasamningum ríkisstarfsmanna. • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, ásamt meistaraprófi eða yfirgripsmikilli reynslu sem nýtist í starfi • Marktæk og árangursrík stjórnunarreynsla er skilyrði • Framsýni, metnaður og drifkraftur í starfi ásamt samskipta- og skipulagsfærni • Framúrskarandi hæfni til að skapa góða liðsheild ásamt jákvæðu og lausnarmiðuðu hugarfari • Marktæk reynsla af stefnumótun og markmiðasetningu • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur • Þekking og reynsla af fasteignamálum er kostur • Reynsla á sviði stafrænnar þróunar er kostur • Góð íslensku- og enskukunnátta og færni til að tjá sig skipulega bæði í ræðu og riti Mest lesna atvinnublað Íslands* Atvinnublaðið Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621 *Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.