Fréttablaðið - 28.08.2021, Page 36
Hjúkrunarfræðingur
meðferðarsvið 2
Laus er til umsóknar 100% staða hjúkrunarfræðings á meðferðar-
svið 2 á Reykjalundi. Á sviðinu starfa taugateymi, hjartateymi,
lungnateymi og efnaskipta og offituteymi. Staðan er laus strax eða
eftir nánara samkomulagi. Um tímabundna ráðningu til eins árs er
að ræða með möguleika á fastráðningu.
Gerð er krafa um íslenskt hjúkrunarleyfi og þarf viðkomandi að
búa yfir þekkingu á sjúkdómum sem falla undir meðferðarsvið 2
og meðferð þeirra, ásamt ríkri hæfni í mannlegum samskiptum og
sjálfstæðis í starfi.
Laun byggja á kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu auk stofnanasamnings
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Reykjalundar.
Upplýsingar um starfið gefa Lára M. Sigurðardóttir, framkvæmda-
stjóri hjúkrunar í síma 585-2129 laras@reykjalundur.is og
Guðbjörg Gunnarsdóttir, mannauðs
stjóri í síma 585-2143 gudbjorg@reykjalundur.is
Umsóknarfrestur er til 12. september 2021.
Umsóknarform og upplýsingar um Reykjalund má finna á heima-
síðunni www.reykjalundur.is
Á Reykjalundi er unnið í þverfaglegum teymum þar sem áhersla
er lögð á skjólstæðingsmiðaða nálgun og heildræna sýn.
Reykjalundur endurhæfing ehf. Sími 585 2000 – www.reykjalundur.is
Ármúli 2 ı 108 Reykjavík ı Sími 480 6000
Eftirlitsmaður
flugvalla
Í boði er spennandi starf
hjá metnaðarfullri stofnun
í alþjóðlegu umhverfi. Við
bjóðum góða starfsaðstöðu
og frábæra vinnufélaga.
Við hvetjum öll kyn
til að sækja um.
Umsóknarfrestur
er til 6. sept. 2021
Hægt er að sækja
um starfið rafrænt á
samgongustofa.is/storf
Upplýsingar um
Samgöngustofu má finna
á samgongustofa.is
Samgöngustofa leitar að öflugum einstaklingi í stöðu eftirlitsmanns með innviðum,
búnaði og starfrækslu flugvalla á mannvirkja- og leiðsögusviði stofnunarinnar.
Starfið felst í vottun og eftirliti með fyrirtækjum með starfsleyfi til reksturs flugvalla
auk annarra verkefna tengdum flugöryggi og ýmissar sérfræðivinnu í málaflokknum.
Starfshlutfall er 100%. Viðkomandi þarf að standast bakgrunnsskoðun Ríkislögreglu-
stjóra til að starfa á haftasvæði flugverndar á flugvöllum.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun á tæknisviði sem nýtist í starfi, t.d. verkfræði eða tæknifræði,
eða veruleg staðfest reynsla af tæknimálum tengdum starfrækslu flugvalla,
eða flugmenntun og reynsla af flugi.
• Þekking á stjórnunarkerfum, s.s. gæða- og öryggisstjórnunarkerfum,
og reynsla á því sviði er kostur.
• Þekking á íslenskum og alþjóðlegum kröfum til hönnunar og starfrækslu
flugvalla er kostur.
• Mjög góð tök á íslensku og ensku og gott vald á úrvinnslu og framsetningu upplýsinga.
• Frumkvæði, skipulögð og nákvæm en lausnamiðuð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi.
• Jákvæðni í mannlegum samskiptum.
B.Ó. Smiðir ehf. óska eftir að
ráða smiði í vinnu
Umsóknir og fyrirspurnir má senda á bosmidir@bosmidir.is
Vélstjóri
Vinnslustöðin hf. óskar eftir að ráða
1. vélstjóra á Breka VE 61 (2861)
Breki VE 61 er 51,29 metra langur ísfisktogari
sem gerður er út frá Vestmannaeyjum. Skipið
er smíðað í Kína og kom til landsins árið 2018.
Vélastærð skipsins er 1795 kW.
Í umsóknum þurfa að koma fram ítarlegar
upplýsingar um menntun, reynslu og fyrri störf.
Nánari upplýsingar veitir Guðni Ingvar Guðnason í
síma 893-9741 og umsóknir skulu sendar með
tölvupósti á netfangið gudni@vsv.is.
Vinnslustöðin hf..
Hafnargötu 2, 900 Vestmannaeyjar
Sími 488 8000 • vsv@vsv.is • www.vsv.is
Við leiðum
fólk saman
hagvangur.is