Fréttablaðið - 28.08.2021, Qupperneq 51
Nýtt kaffihús
Hersins er að
spyrjast út á meðal
almennings og það
höfðar til þeirra sem
vilja gæða sér á ljúf-
fengum mat um leið og
þeir láta gott af sér leiða.
Sigrún Lára Hauksdóttir.
Linda Björk Hávarðardóttir
tók við verkefnastjórn BUH,
barna- og unglingastarfs
Hjálpræðishersins, í upphafi
árs 2020. Deildin stendur
fyrir metnaðarfullri dag-
skrá fyrir börn, unglinga og
foreldra í glæsilegum húsa-
kynnum Hjálpræðishersins.
„Markmið starfsins er að bjóða
upp á stað þar sem börn og
unglingar geta komið og átt
gæðastundir með jafnöldrum
sínum og foreldrum,“ segir Linda
Björk. „Allir eru velkomnir til
okkar, óháð búsetu, baklandi,
fjárhags stöðu og trú. Við byggjum
starfið upp eins og félagsmiðstöð.
Stundum förum við í bíó eða Rush
og stundum er bara opið hús og
krakkarnir geta komið og hangið.
Það er alveg jafnmikilvægt að gefa
börnum og unglingum andrými
til að hanga. Hér er öllum tekið
fagnandi, stundum taka margir
þátt og stundum er fámennt og
góðmennt,“ segir Linda Björk.
Áskorun í Covid
Að sögn Lindu Bjarkar var heilmik-
il áskorun að taka við nýju starfi
með hugann fullan af hugmynd-
um, en svo hafi heimsfaraldur
skollið á. „Samkomutakmarkanir
komu í veg fyrir ýmislegt. Þrátt
fyrir erfitt tímabil og að flest starf-
semi hafi legið niðri, höfum við
nær allan tímann náð að halda úti
opnu húsi á miðvikudagskvöldum
fyrir börn og unglinga. Krakkarnir
áttu alltaf einhvern stað að koma
á, líka þegar við vorum að flytja í
nýtt húsnæði.“
Saman undir regnhlíf
„Við nýttum tímann í Covid til að
skipuleggja allt starfið okkar, þar
á meðal barna- og unglingastarfið.
Nýtt regnhlífarkerfi undir nafninu
„Saman“ var sett í gang sem nær þá
yfir fjölbreytta starfsemi Hjálp-
ræðishersins.“ Allt barna- og
unglingastarf á vegum Hjálpræðis-
hersins er frítt og á kvöldin er í
boði heitur matur. „Við ráðleggjum
foreldrum þó að skrá börnin og
borga lágt skráningargjald til
málamynda, svo við getum haldið
utan um gestakomur og svo að
tryggingar nái yfir gesti.“
Samhjálp
Samhjálp byrjar enn og aftur í
haust á þriðjudags- og fimmtu-
dagseftirmiðdögum klukkan 3-5
fyrir börn- og unglinga. Þar hjálpa
sjálfboðaliðar krökkunum með
heimanámið. „Því miður hafa ekki
allir foreldrar jafna möguleika
á að hjálpa börnum sínum með
heimavinnu. Margir eru þreyttir
eftir langan vinnudag, aðrir eru
af erlendu bergi brotnir og erfiða
við að hjálpa börnum sínum með
heimanám vegna tungumála-
þröskulda.“
Samleið
Á fimmtudagskvöldum klukkan
fimm, eftir Samhjálpina, verður
börnum og foreldrum á leið heim
úr vinnu og skóla boðið að eiga
saman gæðastundir í húsi Hjálp-
ræðishersins. „Gífurlega mikið af
tómstundum er í boði fyrir börn,
þar sem foreldrar skila börnum
á staðinn og taka ekki þátt. Við
viljum bjóða upp á tíma og rými
fyrir fjölskyldur, utan heimilisins,
án þess að heimanámið liggi eins
og mara á sambandinu. Samleið fer
líka af stað í Reykjanesbæ.“
Samfélag
Á laugardögum verður Samvera
þar sem foreldrar og börn eiga
saman gæðastundir. „Það verður
alls konar í gangi, eins og föndur-
kirkja, eða Messy Church. Þar
föndra foreldrar og börn saman
upp úr biblíusögunum eða öðru.
Þetta kostar ekki krónu og gefur
fjölskyldum andrými til þess að
mynda tengsl og slappa af. Einnig
er stefnt að því að fara af stað með
fjölskylduskáta á laugardögum á
móti föndurkirkjunni.“
Samvera
Á þriðjudögum eru foreldra-
morgnar frá 10-13 fyrir foreldra
með ungbörn. „Hingað mæta
sérfræðingar og fræða gesti um
ýmislegt eins og næringu barna,
fyrstu hjálp, fæðingarþunglyndi og
annað. Sumir morgnar eru svo ein-
faldlega samverustundir þar sem
við hlustum á tónlist og spjöllum
saman. Erlendar mæður koma
mikið til okkar enda falla þær
stundum á milli skips og bryggju
í kerfinu. Margar hafa ekki fengið
mikilvægar upplýsingar eins og að
þær eigi að fara í Heilsuveru til þess
að fylgjast með bólusetningum
barna sinna. Við sinnum oft þess-
ari fræðslu og bendum foreldrum á
rétta staði.“
Samspil
„Samspil eru spilakvöld fyrir
börn og fullorðna á föstudögum
frá klukkan 18.00. Þar eru spiluð
meðal annars borðspil en einnig
verður í boði rafspil og höfum við
fengið gefins tölvur fyrir það. Mörg
börn eru í rafíþróttum en það
spila ekki allir foreldrar tölvuleiki
með börnum sínum. Hér er nýtt
tækifæri fyrir tengslamyndun fjöl-
skyldunnar.
Samstuð
„Samstuð byrjar með haustinu og
er opið hús fyrir börn og unglinga í
4. bekk og upp í 10. bekk. Samstuð
er á miðvikudögum frá klukkan
16.30-18.00 fyrir 5. til 7. bekk og frá
19.00 til 21.00 fyrir 8. til 10. bekk.
Í þennan klukkutíma sem þar er
á milli er boðið upp á heita máltíð
sameiginlega fyrir báða hópana,
þeim að kostnaðarlausu.“
Noregsferðir fyrir börn,
unglinga og fermingarbörn
Á sumrin eru farnar Noregsferðir,
á barna- og unglingaráðstefnur.
„Krakkarnir hitta jafnaldra sína
frá Noregi og Færeyjum og mynda
dýrmæt tengsl sem hafa í sumum
tilfellum enst í mörg ár. Það var
mjög súrt að þurfa að aflýsa ferð-
unum síðustu tvö sumur vegna
faraldursins, og enn leiðinlegra var
að aflýsa fermingarferðinni sem er
farin árlega til Noregs á haustin.
En í haust bjóðum við ferm-
ingarbörnunum sem fermast í vor,
sem og þeim sem fengu ekki ferð í
fyrra, að koma til Noregs. Ferming-
arfræðslan hjá Hjálpræðishernum
fer fram einu sinni í mánuði í
átta mánuði og kostar ekkert.
„Fermingarferðirnar og sumar-
ferðirnar kosta, en ef foreldrar hafa
ekki efni á því þá geta þeir sótt um
í velferðarsjóðinn okkar. Einnig
höfum við haldið fjáraflanir fyrir
ferðirnar. Fjárhagsstaða foreldra á
ekki að standa í vegi fyrir að barn
taki þátt í starfinu okkar.“
Gæluverkefni fyrir unga fólkið
Linda Björk minnist einnig á að
hún sé með gæluverkefni í vinnslu.
„Mig langar að stofna til hittinga
á kaffihúsi Hjálpræðishersins
fyrir unga fólkið, til að hittast á
vímuefnalausum forsendum til að
spjalla, hlusta á tónlist og skemmta
sér. En slík rými eru af skornum
skammti og margir á þessum aldri
búa enn í foreldrahúsum. Mig
dreymir um „open mic“ kvöld þar
sem bílskúrsbönd, uppistandarar
og fleiri troða upp. Við eigum líka
þythokkí, borðtennisborð, pílu-
kast og fleira sem fólk getur nýtt
sér.“ n
Gæðastundir fjölskyldunnar í Herkastalanum
Linda Björk er spennt að takast á við haustið og býður alla krakka velkomna í
hús Hjálpræðishersins. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓTTAR
„Hér er í kastalanum ríkir alltaf
gleði og aldrei nein lognmolla og
það er alveg sérstaklega gaman að
fá þessa hlaupandi orku í húsið,“
segir Sigrún Lára Hauksdóttir,
móttökustjóri Hjálpræðishersins,
þar sem hún undirbýr dýrindis
hádegismat handa 130 börnum úr
Fossvogsskóla sem nú mæta hvern
skóladag í nýja Herkastalann við
Suðurlandsbraut.
Börnin snæða hádegismat í
nýjum og glæsilegum matsal
þangað sem einnig koma daglega
yfir 100 skjólstæðingar Hersins í
frían hádegismat, þó ekki á sama
tíma.
„Sá fjöldi fer ört vaxandi, það
sér maður á umsóknum nýrra
flóttamanna sem eru að bætast
við. Til að fá fría máltíð þurfa
ákveðnar forsendur að vera fyrir
hendi. Til okkar leitar fólk sem er
jaðarsett vegna efnahagslegrar og/
eða félagslegrar fátæktar. Þeir sem
geta greitt gera það, aðrir þiggja
fría máltíð. Allt snýst þetta um
að skapa samfélag þar sem fólk í
öllum stöðum þjóðfélagsins getur
komið og deilt máltíð saman. Þá
eru farnir að tínast inn iðnaðar-
menn og íbúar í nágrenninu til að
kaupa sér góðan hádegismat og
það er afskaplega ánægjulegt. Það
er að spyrjast út, nýja kaffihúsið
okkar, og höfðar til þeirra sem vilja
gæða sér á ljúffengum mat um leið
og þeir láta gott af sér leiða, því
þegar viðkomandi greiðir fyrir sína
máltíð, greiðir hann í leiðinni fyrir
einn af matargestunum sem eiga
ekki fyrir mat,“ útskýrir Sigrún.
Hún er að vísa í nýtt kaffihús
Hersins sem á dögunum opnaði
dyr sínar fyrir gesti og gangandi
í nýjum og glæstum Herkastal-
anum.
„Á kaffihúsinu tekur kaffibar-
þjónninn Natashja á móti gestum.
Hún elskar gott kaffi og við erum
með dýrindis kaffibaunir og
mjög f lotta kaffivél, smurt brauð
og bakkelsi í fallegum sal. Við
leggjum líka mikla áherslu á að
vera barnvæn, við erum með
barnvænan mat og falleg, ný
leiktæki í garðinum. Við höfum
farið rólega af stað og viljum stíga
þannig til jarðar að við getum
staðið við það sem við segjum og
gert það vel, og nú erum við loks
til í slaginn,“ segir Sigrún.
Við tökum vel á móti öllum
Það er nýjung að fólk geti komið
inn af götunni til að kaupa sér
hádegismat eða sest yfir kaffi-
bolla og bakkelsi hjá Hjálpræðis-
hernum.
„Máltíðin kostar 1.500 krónur
og er ábót ef viðkomandi vill,
og einnig uppáhellt kaffi. Við
bjóðum upp á gómsætan heimilis-
mat sem er unninn frá grunni af
af bragðs kokkum og fagfólki í eld-
húsinu, og á hverjum degi er einn
kjöt- eða fiskréttur og einn vegan-
réttur. Um helgar er matseðill
næstu viku birtur á síðu Hjálp-
ræðishersins á Facebook en hann
er þó breytingum háður því fyrir
kemur að velunnarar okkar, sem
eru margir, færa okkur eitthvað
sem við viljum koma fram strax
eins og ófrosinn, ferskur fiskur,
og þá gefum við okkur leyfi til að
breyta matseðlinum með litlum
fyrirvara,“ greinir Sigrún frá.
„Það eru allir hjartanlega vel-
komnir á nýja kaffihúsið okkar.
Við tökum vel á móti öllum,
leggjum á borð með hnífapörum
og sérvéttum, og fyrir alla, hvort
sem það eru borgandi gestir eða
ekki, er upplifunin eins og að
setjast inn á fínan veitingastað.
Kaffihúsið opnar klukkan 12 og
undir venjulegum kringumstæð-
um opnum við í matinn klukkan
11.30 en nú hafa börnin forgang
svo við opnum ekki fyrr en 12.15
og lokum klukkan 14. Börnin fá
sama mat og eru alsæl með það;
þetta eru yndislegir krakkar og
við reynum að hugsa eins vel
um þau og við getum. Þau hafa
sitt pláss þar sem ekkert truflar
þau, enda er kastalinn stór og vel
byggður, og það er alltaf nóg pláss
fyrir alla hjá Hernum.“ n
Það er alltaf nóg pláss fyrir alla hjá Hernum
Sigrún Lára
á nýja kaffi-
húsinu í Her-
kastalanum,
þar sem gestir
og gangandi
geta keypt sér
heimilislegan
hádegismat
og ljúffengt
bakkelsi. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/ÓTTAR
Krakkarnir áttu
alltaf einhvern stað
að koma á, líka þegar við
vorum að flytja í nýtt
húsnæði.
Linda Björk Hávarðardóttir
3LAUGARDAGUR 28. ágúst 2021 HJÁLPR ÆÐISHERINN