Fréttablaðið - 28.08.2021, Qupperneq 66
Maxus rafbílamerkið
er selt hjá Vatt.is sem er
í eigu Suzuki á Íslandi
og er staðsett í Skeif-
unni.Viltu ganga til liðs við
Karlakórinn Fóstbræður auglýsir hér með eftir söngmönnum sem hafa áhuga á
að ganga til liðs við kórinn á haustönn sem nú er að hefjast.
Æfingar eru að jafnaði á miðvikudagskvöldum auk fyrsta mánudagskvölds
hvers mánaðar (5 æfingar á mánuði). Sóttvarnir eru viðhafðar í kórstarfinu á
meðan nauðsynlegt reynist.
Æskilegast er að nýjir félagar séu fæddir eftir Heimaeyjargos og hafi einhverja
reynslu af kórsöng en það er þó ekki skilyrði. Nýliðum er boðið upp á sérstaka
raddþjálfun til að byrja með.
Karlakórinn Fóstbræður hefur starfað frá árinu 1916. Æfingar fara fram í
Fóstbræðraheimilinu að Langholtsvegi 109 í húsnæði sem er sérsniðið að
þörfum kórsins. Söngstjóri Fóstbræðra er Árni Harðarson.
Raddprufur fara fram miðvikudagskvöldið 1. september eða eftir
samkomulagi dagana þar á eftir. Æfingar hefjast mánudagskvöldið
6.september.
Áhugasamir hafi samband við formann eða varaformann kórsins.
Arinbjörn: arinbjornvi@gmail.com / gsm 820-8582
Halldór: halldor.thorarinsson@gmail.com / gsm 898-1610
Karlakórinn Fóstbræður?
njall@frettabladid.is
Land Rover ætlar í XL útgáfu af Def-
ender ef marka má nýlegar njósna-
myndir sem náðst hafa af bílnum við
prófanir. Líklega er um átta manna
útgáfu að ræða til að hægt sé að
keyra hann á hefðbundnu ökuskír-
teini. Bíllinn er væntanlegur á næsta
ári og eins og sjá má af myndinni er
hann með mun meira hjólhafi en
110 bíllinn auk þess að vera lengri
fyrir aftan afturhjól. Hann verður
um 5.100 mm að lengd, eða heilum
342 mm lengri en 110 bíllinn, en það
er líka 227 mm lengra en Mercedes-
Benz G-lína, sem er einn af hans
helstu keppinautum.
Búast má við að hann verði
fáanlegur í f leiri útgáfum en átta
sæta og verði markaðssettur sem
lúxus útgáfa með meira rými. Vélin
verður þriggja lítra, sex strokka línu
vél með mildum tvinnbúnaði, sem
skilar samtals 394 hestöflum. Einn-
ig verður 296 hestafla dísilvél í boði
og hugsanlega 400 hestafla tengil-
tvinnútgáfa. Orðrómur er loks uppi
um að undirvagn þessa bíls verði
notaður fyrir pallbílsútgáfu Defen-
der sem verið er að þróa í leyni. n
Langur Land Rover
Defender væntanlegur
Myndin af bílnum náðist í Þýskalandi
en bíllinn fær líklega nafnið 130.
njall@frettabladid.is
Maxus hefur hafið prófun á nýjum
rafdrifnum pallbíl sínum í Noregi,
en hann gæti verið athyglisverður
keppinautur við bíl eins og Ford
F-150 Lightning. Mun hann eiga að
geta komist 520 km á hleðslunni, en
reyndar er aðeins um tvíhjóladrifna
útgáfu að ræða með 177 hestafla raf-
mótor, sem gefur honum ekki mikið
upptak, en meira drægi vegna 88,5
kWst rafhlöðu. Að sögn Þorsteins
Ólafssonar hjá Vatt.is, sem er með
umboð fyrir Maxus rafbíla, er ekki
komin nákvæm áætlun yfir það
hvenær slíkur bíll gæti verið vænt-
anlegur til Íslands. „Fyrstu bílarnir
sem koma til Evrópu eru 4X2 en þar
sem það er ekki mikill markaður
fyrir einsdrifs pallbíla munum við
bíða eftir 4X4 bílnum,“ segir Þor-
steinn. Líklega mun vera einhver
bið í þann bíl samkvæmt heimilda-
mönnum Maxus-merkisins. n
Maxus rafpallbíllinn
prófaður í Noregi
Maxus pallbíllinn er kominn til
Noregs til prófana en það er fyrsti
viðkomustaður þeirra í Evrópu.
njall@frettabladid.is
Tesla hefur hafið kynningu á Model
Y en kominn er reynsluakstursbíll
í sal Tesla í Vatnagörðum. Fyrsta
sending Model Y bíla kom í vikunni
og voru fyrstu bílarnir af hentir á
miðvikudag. Munu sendingar af
Model Y koma vikulega út septem-
bermánuð. Bílarnir sem hingað
koma eru framleiddir í verksmiðju
Tesla í Kína og eru allir fjórhjóla-
drifnir. Þeir kosta frá 7.900.000 kr.
með virðisaukaskatti í Long Range
útgáfu. Tesla stendur í stórræðum
á Íslandi þessa dagana því stutt er
í að opnuð verði hraðhleðslustöð á
Akureyri, en einnig eru stöðvar á
Egilsstöðum, Kirkjubæjarklaustri,
Selfossi og Höfn í Hornafirði í far-
vatninu. n
Tesla Model Y
komin í Vatnagarða
Kia Sportage er væntanlegur í
dagsljósið á næstu dögum en
hann verður byggður á sama
grunni og Kia Sportage og
kemur því í rafdrifinni tvinn-
og tengiltvinnútgáfu.
njall@frettabladid.is
Kia hefur nýlega frumsýnt nýjan
EV6 og er hann kominn í sölu, en
einnig verður nýr Sportage frum-
sýndur á bílasýningunni í Mün-
chen á næstu dögum. Samkvæmt
yfirmanni Kia í Evrópu, Sjoerd
Knipping, eru tveir EV merktir raf-
bílar væntanlegir frá merkinu á
næstu tveimur árum. Fyrstur í röð-
inni verður stór rafjepplingur sem
er ætlaður á Bandaríkjamarkað og
fær annaðhvort nafnið EV7 eða
EV8. Hann verður með sjö sætum
líkt og Ionic 7 sem kemur á mark-
að árið 2024. Í Evrópu er það svo
blendingsbíllinn EV4 sem er næstur
og byggður er á EV6 sem nýlega er
kominn fram á sjónarsviðið.
EV4 verður byggður á E-GMP
undirvagninum eins og EV6 en
með aðeins minna hjólhafi. Lík-
lega verður hann mjög nálægt
Kia Sportage að stærð, sem frum-
sýndur verður um mánaðamótin.
Hvort hann geti fengið sömu 77,4
kWst raf hlöðu og EV6 verður að
koma í ljós, en það myndi gefa
honum drægi upp á vel yfir 500
kílómetra. Búast má við að bíllinn
verði boðinn með bæði einum og
tveimur rafmótorum svo að fjór-
hjóladrif verður möguleiki. Hann
fær líka sama 800 volta rafkerfi og
EV6, sem þýðir að hægt verður að
hlaða bílinn upp í 80% á aðeins 18
mínútum. Kia áætlar að hafa 11 raf-
drifna bíla í sýningarsölum sínum
árið 2025, og verða sex þeirra 100%
rafdrifnir. n
Kia með nýjan Sportage og fleiri
rafdrifin EV módel í farvatninu
Á þessari tölvugerðu mynd er útlit nýs Sportage byggt á nýjum EV6 með svipuðum ljósabúnaði.
Tesla Model Y Long Range er með
507 km drægi og er aðeins fimm
sekúndur í hundraðið.
BÍLAR FRÉTTABLAÐIÐ 28. ágúst 2021 LAUGARDAGUR