Morgunblaðið - 15.04.2021, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2021
„Þetta er eiginlega öfugþróun,“ segir dr.
Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur og
prófessor við Háskóla Íslands, um eldgosið í
Fagradalsfjalli. Venjulega þrengist gosrás
sprungugosa og endar í einum eða fáum gíg-
um. Á Fagradalsfjalli hafa hins vegar opnast
nýir og nýir eldgígar.
„Þessi kvika er frumstæð og tiltölulega eðl-
isþung. Hún tafðist um tíma á um eins kíló-
metra dýpi eins og menn muna. Plötuhreyf-
ingar höfðu myndað litlar sprungur eða
veikleika í skorpunni. Kvikan nýtir sér þá,“
segir Þorvaldur og bætir við að líkja megi
þessum litlu sprungum við sogrör. Nú liggja
nokkur slík niður í kvikuna sem er undir yf-
irþrýstingi í kvikuganginum.
„Þetta skýrir hæðarmuninn á kvikunni í
elstu gígunum í Geldingadölum. Það hefur
alltaf staðið miklu hærra í syðri gígnum en
þeim nyrðri. Það sýnir að það er engin teng-
ing á milli þessara gosopa fyrr en kemur nið-
ur í ganginn. Þetta er eins og að stinga mörg-
um sogrörum í sama glas,“ segir Þorvaldur.
Nyrsti gígurinn, ofan við Meradali, stendur
hæst af gígunum. Mjög hafði dregið af gosi í
honum í gær sem er rökrétt afleiðing af fjölg-
un gosopa sem standa lægra. Ekkert hafði
dregið úr kvikustreyminu í gær, að mati Þor-
valdar. Hann kvaðst telja að það hafi verið
komið yfir tíu rúmmetra á sekúndu.
Safetravel.is tilkynnti í gær að hraun væri
farið að renna nálægt gönguleið A og var fólk
hvatt til að sýna mikla aðgát þar. Leiðin ligg-
ur við endann á skarði austur af elstu gígun-
um. Hraun frá gígunum sem opnuðust í
fyrradag og þeim sem eru norðar hefur runn-
ið í Geldingadali og er að fylla í geilina á milli
nýja hraunsins og hlíðarinnar.
„Þar er komin dálítið mikil hrauntjörn og
allar hraunárnar eru barmafullar og gíg-
arnir einnig. Hliðarnar á hrauntjörninni geta
gefið sig með skömmum fyrirvara. Við förum
líklega að sjá undanhlaup og mjög líklega
þarna í austurátt,“ sagði Þorvaldur í gær.
Hann sagðist ekki geta mælt með göngu-
leið A á umræddum kafla. Hún þyrfti að
liggja fjær nýja hrauninu og helst hærra í
landinu. gudni@mbl.is
Barmafullar hraunár og hrauntjörn geta hlaupið
Morgunblaðið/Eggert
Fagradalsfjall Algengt er að gosvirkni í sprungugosum færist í einn gíg eða fáa. Nú hafa opnast nýir eldgígar hvað eftir annað. Það dró úr gosi í nyrsta gígnum sem stóð hæst í gær.
Morgunblaðið/Eggert
Hrauná Kvikan er brennheitur vökvi og leitar eftir lægðunum.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sjónarspil Fjöldi fólks hefur lagt leið sína að gosstöðvunum.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Eldgígur Gígarnir hafa opnast einn af öðrum. Þeir eru undrafljótir að hlaðast upp og hraunklepradrífan bætir utan á þá.
ELDGOS Á REYKJANESSKAGA
Verð: 22.995.-
Stærðir: 36 - 41
Vnr. E-803743
Verð: 22.995.-
Stærðir: 36 - 41
Vnr. E-803743
Verð: 22.995.-
Stærðir: 41- 46
Vnr. E-803734
Verð: 22.995.-
Stærðir: 41 - 46
Vnr. E-803734
ECCO ZIPFLEX
LÉTTIR OG ÞÆGILEGIR GÖTUSKÓR